27/02/2026
Minnum á að 1. mars n.k. verður allri þjónustu Borgarskjalasafns Reykjavíkur hætt og eingöngu unnið að flutningum safnkosts til Þjóðskjalasafns Íslands.
-
Allar fyrirspurnir sem varða gögn úr safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur, eftir 1. mars, skulu berast til Þjóðskjalasafns Íslands í gegnum netfangið [email protected]
-
Allar fyrirspurnir er varða skjalamál og ráðgjöf til borgarstofnana skulu berast til skrifstofu upplýsinga og skjalstýringar hjá Reykjavíkurborg í gegnum netfangið [email protected]. Líkt og verið hefur frá 1. janúar 2024.
-
Starfsfólk Borgarskjalasafns Reykjavíkur þakkar kærlega fyrir samskipti og samstarf í gegnum tíðina.
Flutningar á safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur
Þann 1. mars n.k. verður hætt að taka á móti og svara fyrirspurnum hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur.
15/12/2025
Við minnum á að í dag og á morgun eru síðustu opnunardagar lesstofu Borgarskjalasafns Reykjavíkur. Enn verður hægt að senda fyrirspurnir í gegnum fyrirspurnarformið okkar á heimasíðu og öllum erindum áfram svarað. Sjá nánar:
Síðustu opnunardagar lesstofu Borgarskjalasafns Reykjavíkur
verða mánudaginn 15. desember og þriðjudaginn 16. desember n.k. frá 13:00-15:00
24/11/2025
Síðustu opnunardagar lesstofu Borgarskjalasafns Reykjavíkur verða mánudaginn 15. desember og þriðjudaginn 16. desember n.k. frá 13:00-15:00. Eftir það verður lesstofan alfarið lokuð vegna niðurlagningar safnsins. Ennþá verður hægt að senda fyrirspurnir í gegnum fyrirspurnarformið á heimasíðu okkar og verður öllum erindum áfram svarað.
---
Starfsfólk Borgarskjalasafns vill ennfremur þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína til okkar í gegnum árin og nýtt þjónustu lesstofunnar.
Síðustu opnunardagar lesstofu Borgarskjalasafns Reykjavíkur
verða mánudaginn 15. desember og þriðjudaginn 16. desember n.k. frá 13:00-15:00
24/10/2025
Kvennaverkfall!
Sjá umfjöllun á heimasíðu Borgarskjalasafns.
https://www.borgarskjalasafn.is/is/um-safnid/frettir/kvennaverkfall
Stöndum saman! Kvennaverkfall.
Í ár eru liðin 50 ár frá Kvennafríi.
25/07/2025
Sumarfrí á lesstofu Borgarskjalasafns🌼🌸
-
Lesstofa Borgarskjalasafns verður lokuð mánudaginn og þriðjudaginn 28. og 29. júlí og þriðjudaginn 5. ágúst n.k.
Hefðbundinn opnunartími lesstofunnar verður mánudaginn og þriðjudaginn 11. - 12. ágúst klukkan 13:00-15:00.
Hægt er að senda fyrirspurnir í gegnum fyrirspurnarformið á vefsíðu okkar https://www.borgarskjalasafn.is/is/senda-fyrirspurn
📸Með fréttinni birtum við nokkrar ljósmyndir úr skjalasafni Vélamiðstöðvar Reykjavíkur. Okkur þætti gaman að heyra frá ykkur um frekari deili á myndunum og viðfangsefnum þeirra. Sjá nánar í frétt við færslu.
Sumarfrí á lesstofu Borgarskjalasafns
Lokað verður vegna sumarfría starfsfólks 28.-29. júlí og 5. ágúst.
24/04/2025
Starfsfólk Borgarskjalasafns óskar öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn sem senn er að líða. 🌼🌸🌻
Í fréttinni sem fylgir er hægt að sjá nokkrar skjalaskrár sem minna okkur á sumrið!
Gleðilegt sumar!
Sumarlegar skjalaskrár á sumardaginn fyrsta.
17/04/2025
Starfsfólk Borgarskjalasafns Reykjavíkur óskar öllum gleðilegra páska 🐣🌷
Gleðilega páska
Starfsfólk Borgarskjalasafns Reykjavíkur óskar Reykvíkingum og landsmönnum öllum gleðilega páska.
23/12/2024
Í fjórðu og síðustu jólagrein Borgarskjalasafns Reykjavíkur skoðum við dagbókarfærslu frá árinu 1952. Dagbókarfærslan lýsir jólunum um borð í Kötlu á siglingu um Miðjarðarhafið. Gleðileg jól.🎄✨Sjá nánar hér:
Jólin um borð í Kötlu
Í fjórðu og síðustu jólagrein Borgarskjalasafns lítum við niður í dagbók sem má finna í skjalasafni Verslunarinnar Baldur nr. E-103. Júlíus Guðmundsson átti og rak Verslunina Baldur frá árinu 1930-1973/1974 sem staðsett var á Framnesvegi 29. Bróðir hans Ragnar Guðmundsson (f...
19/12/2024
Starfsfólk Borgarskjalasafns Reykjavíkur óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við þökkum kærlega fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða og minnum á að á nýju ári verður áfram hægt að senda fyrirspurnir til safnsins í gegnum vefsíðu þess;
https://www.borgarskjalasafn.is/ - „Senda fyrirspurn“
🎅
Með bestu jólakveðju 🤶🧑🎄
https://www.borgarskjalasafn.is/is/um-safnid/frettir/gledileg-jol-og-farsaelt-komandi-ar-2025
Gleðileg jól og farsæld á komandi ári 2025
Starfsfólk Borgarskjalasafns Reykjavíkur óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum kærlega fyrir ánægjuleg samskipti á árinu s
18/12/2024
Afgreiðslutími á lesstofu Borgarskjalasafns Reykjavíkur yfir hátíðarnar verður sem hér segir:
23. desember – 13.00-15:00
30. desember - 13:00-15:00
Alltaf er hægt að hafa samband og senda fyrirspurnir í gegnum vef safnsins; https://www.borgarskjalasafn.is/ - „Senda fyrirspurn“
Á nýju ári verður lesstofan opin mánudaga og þriðjudaga með hefðbundnum hætti milli kl. 13:00-15:00.
Með bestu jólakveðju, starfsfólk