VIRK

Call Directions Website Contact the organization

VIRK VIRK eflir starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði.

Jari Hakanen og Lode Godderis flytja lykilerindi á ráðstefnunni á Hilton 28. okt. Jari fjallar um vellíðan starfsfólks –...
22/10/2026

Jari Hakanen og Lode Godderis flytja lykilerindi á ráðstefnunni á Hilton 28. okt. Jari fjallar um vellíðan starfsfólks – áskoranir, lausnir og hagnýt verkfæri. Erindi Lode ber heitið Frá forvörnum til þátttöku: Ný sýn á samfellu starfsgetu og endurkomu til vinnu.

Sjá dagskrá og nánari upplýsingar hér: bit.ly/Radstefna28okt

Nýr og uppfærður velvirk.is - vefur forvarnasviðs VIRK er kominn í loftið. Á vefnum er að finna fræðslu, myndbönd og hag...
19/10/2026

Nýr og uppfærður velvirk.is - vefur forvarnasviðs VIRK er kominn í loftið. Á vefnum er að finna fræðslu, myndbönd og hagnýt verkfæri fyrir starfsfólk og stjórnendur, meðal annars efni um streitu, vinnuumhverfi, endurkomu til vinnu og nýja þjónustuleið - VIRK í starfi - sem styður við einstaklinga á vinnumarkaði.

Jari Hakanen fjallar um vellíðan starfsfólks – áskoranir, lausnir og hagnýt verkfæri á ráðstefnu VIRK 28. október n.k. H...
14/10/2026

Jari Hakanen fjallar um vellíðan starfsfólks – áskoranir, lausnir og hagnýt verkfæri á ráðstefnu VIRK 28. október n.k. Hann er einn af fremstu fræðimönnum á sviði vinnusálfræði, rannsóknarprófessor við Vinnuverndarstofnun Finnlands og dósent við Helsinki-háskóla.

Hakanen er þekktur fyrir rannsóknir á jákvæðum og verndandi þáttum vinnu sem sýna meðal annars hvernig sterk félagsleg tengsl, stuðningur stjórnenda, tilgangur í starfi og raunhæfar kröfur geta aukið starfsánægju, dregið úr líkum á vanlíðan og stutt fólk í að vera lengur og heilbrigðara á vinnumarkaði - nálgun sem er sérstaklega mikilvæg þegar kemur að bæði starfsendurhæfingu og forvörnum.

Á ráðstefnunni 28. okt mun Hakanen gefa dýrmæta innsýn í það hvernig jákvæðir þættir í vinnu geta verið lykillinn að árangursríkum forvörnum auk þess að auðvelda endurkomu til vinnu.

Sjá nánar hér: bit.ly/hakanen

Verið Ráðstefna VIRK um tækifæri í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu í vinnu.

Frá forvörnum til þátttöku: Ný sýn á samfellu starfsgetu og endurkomu til vinnu, er heiti erindis Lode Godderis, læknis ...
13/10/2026

Frá forvörnum til þátttöku: Ný sýn á samfellu starfsgetu og endurkomu til vinnu, er heiti erindis Lode Godderis, læknis og prófessors í vinnu- og umhverfislæknisfræði, á ráðstefnu VIRK 28. október n.k.

Rannsóknir Godderis beinast að tengslum vinnu og heilsu, hann leggur mikla áherslu á snemmtækar forvarnir, áhættugreiningu og þróun kerfa sem styðja við heilbrigða atvinnuþátttöku áður en fólk veikist eða dettur út af vinnumarkaði.

Godderis hefur mikla þekkingu og reynslu af því að tengja akademíska rannsóknarvinnu við stefnumótun/framkvæmdir í vinnuumhverfinu. Í starfi sínu hjá IDEWE vinnur hann náið með fyrirtækjum, stjórnendum og opinberum aðilum að því að þróa kerfisbundnar lausnir sem tengja saman vinnuvernd, heilsueflingu og starfsgetu.

Sjá nánar hér: bit.ly/godderis

Verið Ráðstefna VIRK um tækifæri í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu í vinnu.

VIRK í starfi! Fræðsla, ráðgjöf og sérsniðin þjónusta fyrir einstaklinga á vinnumarkaði 🙏 Sjá nánar á velvirk.is: bit.ly...
12/10/2026

VIRK í starfi! Fræðsla, ráðgjöf og sérsniðin þjónusta fyrir einstaklinga á vinnumarkaði 🙏 Sjá nánar á velvirk.is: bit.ly/virkistarfi

Þú finnur jákvæðar og uppbyggilegar tillögur fyrir hvern dag í virknidagatali velvirk.is 🙏 bit.ly/virknidagatal
08/10/2026

Þú finnur jákvæðar og uppbyggilegar tillögur fyrir hvern dag í virknidagatali velvirk.is 🙏 bit.ly/virknidagatal

Vinnustaðir gegna lykilhlutverki þegar kemur að því að styðja fólk til þátttöku og virkni á vinnumarkaði. Með góðu samst...
02/10/2026

Vinnustaðir gegna lykilhlutverki þegar kemur að því að styðja fólk til þátttöku og virkni á vinnumarkaði. Með góðu samstarfi, snemmtækum stuðningi og sveigjanleika er oft hægt að koma í veg fyrir að fólk hverfi af vinnumarkaði og skapa um leið tækifæri fyrir þá sem eru að stíga skrefin aftur til vinnu eftir veikindi eða slys.

Forvarnasvið og atvinnutenging VIRK nálgast verkefnið sitt úr hvorri áttinni en markmiðið er sameiginlegt: að stuðla að þátttöku fólks á vinnumarkaði.

Vinnustaðir geta þannig átt samstarf við VIRK um að styðja starfsmann sem á í erfiðleikum með að halda sér í starfi – og jafnframt skapað tækifæri fyrir einstakling sem er tilbúinn að snúa aftur til vinnu.

Vinnustaðir gegna lykilhlutverki þegar kemur að því að styðja fólk til þátttöku og virkni á vinnumarkaði.

„Það er mikil þörf á að hafa brú á milli atvinnurekenda og þeirra sem eru í þörf fyrir vinnu. Það er mjög algengt að ein...
25/09/2026

„Það er mikil þörf á að hafa brú á milli atvinnurekenda og þeirra sem eru í þörf fyrir vinnu. Það er mjög algengt að einstaklingur sem búinn er að vera lengi frá vinnumarkaði sé búinn að missa dálítið sjálfstraustið gagnvart atvinnumarkaðinum.

Það er mikilvægt að geta veitt aðstoð í slíkum tilvikum, svo sem að hjálpa fólki að gera ferilskrá, finna vinnu og ekki síst að kortleggja hvaða möguleikar séu fyrir hendi því oft getur fólk ekki snúið aftur á fyrri vinnustað og þarf að finna eitthvað allt annað til að starfa við,“ segir Tinna Sigurbjörg Hallgríms, atvinnulífstengill hjá VIRK á Suðurnesjum.

„Nýlega útskrifaði ég einstakling sem fór í vinnu en viðkomandi hafði ekki unnið í fimm ár. Það var óneitanlega gleðilegt. Það hefur sýnt sig að því lengra sem líður því erfiðara er fyrir fólk að komast aftur út á vinnumarkaðinn.

Ég vil bæta því við í þessu sambandi að sjálf hef ég haft ómælda ánægju af mínu starfi sem atvinnulífstengill VIRK, það er fátt betra en að sjá einstakling sem er að ljúka þjónustu hjá VIRK snúa aftur út á vinnumarkaðinn vonglaðan og fullan af nýfengnu sjálfstrausti.“

Viðtal við Tinnu Sigurbjörgu Hallgríms atvinnulífstengil hjá VIRK

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏 S...
22/09/2026

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏 Sjá nánar hér: bit.ly/virkistarfi

Address

Borgartún 18
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545355700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VIRK posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to VIRK:

Shortcuts

Share

Category