Dögun - stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði

Dögun - stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði

Share

Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar http://www.xdogun.is/stefna

02/07/2024

Hver var aftur að tala um græðgi - Var það SFS?

Hér er gagnrýnin grein um svikatafl Samherja og hollenska sjávarútvegsrisans Parlevliet & van der Plas og hvernig þau taka snúning á breskum sjávarútvegi.

Það kæmi verulega á óvart ef breska heimsveldið láti þessa Namibíusvindlara leika sig grátt mikið lengur.

11/11/2021

Hér kemur fundargerð Dögunar þar sem ákveðið var að slíta félaginu.

07/11/2021

Á aðalfundi Dögunar, samtaka um réttlæti og sanngirni og lýðræði, þann 7.nóvember 2021, var ákveðið að slíta félaginu.

Dögun var formlega stofnuð vorið 2012 og bauð fram í alþingiskosningum árið 2013 og 2016.

Á aðalfundinum var enn fremur samþykkt að láta fjármuni Dögunar renna til jafns til Píeta samtakanna og PEPP Ísland, grasrótar fólks í fátækt.

Far­aldurinn hraði á þróun aukins ó­jöfnuðar í ís­lensku sam­fé­lagi 01/07/2021

Ný skýrsla sér­fræðinga­hóps verka­lýðs­hreyfingarinnar um efna­hags­leg á­hrif CO­VID kom út í dag. Þar kemur fram að far­aldurinn er lík­legur til að hraða á þeirri þróun til aukins ó­jöfnuðar sem greina hefur mátt á Ís­landi á undan­förnum árum. Í skýrslunni segir að fram­haldið ráðist að miklu leyti af að­gerðum stjórn­valda og bar­áttunni gegn lang­tíma­at­vinnu­leysi.

Skýrslan er sú fimmta sem hópurinn vinnur og er í henni sjónum beint að ó­jöfnuði á Ís­landi með til­liti til á­hrifa heims­far­aldurs kórónu­veiru.

Fram kemur að sá stóri hópur fólks sem missti vinnu sína vegna CO­VID-far­aldursins hafi orðið fyrir mikilli lífs­kjara­skerðingu. Í þeim hópi er að finna mikinn fjölda ein­stak­linga sem voru í lægri tekju­bilum fyrir og í veikri stöðu til að takast á við tekju­fall.

Á sama tíma, segir í skýrslunni, að kaup­máttur hafi aukist hjá þeim sem ekki hafa orðið fyrir teljandi skakka­föllum af völdum veirunnar. Eig­endur hluta­bréfa hafi hagnast vel. Hús­næðis­eig­endur hafi notið góðs af lágum vöxtum, minnkaðri greiðslu­byrði og mikilli hækkun fast­eigna­verðs. Þetta auki ó­jöfnuð í eigna­skiptingu og valdi mis­ræmi í af­komu ó­líkra sam­fé­lags­hópa.

Far­aldurinn hraði á þróun aukins ó­jöfnuðar í ís­lensku sam­fé­lagi Innlent Far­aldurinn hraði á þróun aukins ó­jöfnuðar í ís­lensku sam­fé­lagi Í skýrslunni er bent á að lausnina við lang­vinnum skaða af CO­VID-kreppunni sé að finna í nor­ræna vel­ferðar­líkaninu. Fréttablaðið/Anton Brink Lovísa Arnardóttir lovisaa@frettabladid....

23/01/2021

Vonarstjarna USA

Hið litla sæta og gerspillta Ísland - Vísir 17/10/2020

„Smæð samfélagsins skapar sérstakar hættur fyrir okkur eins og GRECO hefur bent á og fræðimenn ýmsir. Mín niðurstaða af þessu öllu er pólitísk. Það þarf einfaldlega að skipta um valdaöflin í þessu samfélagi. Koma Sjálfstæðisflokki og Framsókn frá völdum. Þeir flokkar hafa lengst af haldið um stjórnartaumana. Þar hefur ómenningin sem ég lýsi í bókinni þróast hvað lengst og er hvað hatrömmust. Það þarf að skipta um kallana í brúnni,“

Hið litla sæta og gerspillta Ísland - Vísir Gamalgróin spilling og klíkuræði hefur lengi verið plága á Íslandi; ávísun á andverðleikasamfélag að mati Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Borgartún 3. 2. H
Reykjavík
101