12/06/2026
Næsta vika verður ekki síðri hjá okkur.
Við verðum með alla okkar föstu dagskrárliði og bætum við útiveru, leikjum og gönguferðum þegar veður og aðstæður leyfa.
Á miðvikudaginn ætlum við að fagna 17. júní með glæsilegri dagskrá. Við grillum hamborgara og pylsur, bjóðum upp á ís og blöðrur og eigum skemmtilega stund saman. Einnig mun Bjarni Hall söngvari koma og flytja lifandi tónlist fyrir okkur.
Hér má sjá dagskrá næstu viku. Við hlökkum til að njóta hennar með ykkur.
12/06/2026
Elsku íbúar Norðurbrúnar, aðstandendur og þátttakendur í félagsstarfinu okkar.
Þetta var sannarlega viðburðarík vika hjá okkur. Sumarið er komið og það finnur maður á stemningunni og orkunni. Við stunduðum alla okkar föstu dagskrárliði eins og venjulega, en þar sem Listahátíð í Reykjavík stóð yfir ákváðum við einnig að njóta þess sem borgin hafði upp á að bjóða.
Á mánudaginn fórum við í Iðnó þar sem við nutum góða veðursins, settumst út með kaffi og meðlæti og tókum síðan þátt í að hanna mósaíklistaverk. Á þriðjudaginn lá leiðin aftur í Iðnó, þar sem við tókum þátt í skemmtilegri dagskrá með vinum okkar úr meistaranáminu Listir og velferð við Listaháskóla Íslands. Þar var dansað, leikið, andað djúpt og sungið saman með Lay Low, Hafdísi Huld og Unni Þorgeirsdóttur.
Veðurguðirnir hafa verið okkur hliðhollir og því höfum við getað farið í góðar gönguferðir í nærumhverfinu. Í dag ákváðum við svo að færa spjallhringinn út undir bert loft, sem tókst einstaklega vel og þátttakan var frábær.
08/06/2026
Vikan sem er byrjuð verður full af okkar föstu dagskrárliðum
Hreyfismiðjan fellur þó niður í þessari viku, en í staðinn ætlum við að vera menningarleg og kíkja á Listahátíð í Reykjavík. Þar ætlum við að hitta vinkonur okkar úr Listaháskólanum, sem munu sýna afrakstur sinn úr náminu Listir og velferð.
Á fimmtudaginn verður svo SumarBingó með veglegum vinningum 🎉 Eftir það fer bingóið í smá sumarfrí og byrjar aftur í ágúst, sem verður auglýst síðar.
Hér má sjá vikudagskrána okkar
08/06/2026
Takk kærlega fyrir síðustu viku, hún var alveg dásamleg.
Við áttum margar góðar stundir saman í félagsstarfinu og hér eru nokkrar myndir frá vikunni😊
29/05/2026
Í næstu viku ætlum við að leggja sérstaka áherslu á hreyfingu og hvetjum alla til að mæta í morgunleikfimina, boccia og hreyfismiðjuna okkar 💪
Það er svo mikilvægt að halda sér í hreyfingu, viðhalda styrk og jafnvægi og jafnvel byggja upp vöðvamassa. Það er aldrei of seint að hreyfa sig og regluleg hreyfing getur haft jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu.
Katrín mun leysa Önnu af í handavinnunni út júní og hlökkum við til að eiga áfram skapandi og notalegar stundir saman. Handavinnan fer síðan í sumarfrí í júlí og ágúst
Eigið góða helgi og við hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku
29/05/2026
Takk kærlega fyrir vikuna, elsku vinir Norðurbrúnar :D
Við áttum yndislegar stundir saman í félagsstarfinu og það var sérstaklega gaman að taka á móti sumarstarfsfólkinu okkar og kynna alla þá fjölbreyttu dagskrárliði sem hafa bæst við starfið á síðustu mánuðum.
Hér má sjá nokkrar myndir frá vikunni og því skemmtilega starfi sem fram fer hjá okkur
26/05/2026
Þessi vika verður alveg dásamleg hjá okkur 🌿
Við höfum aðeins rætt við veðurguðina og þeir ætla að vera með okkur í liði – þó þeir þurfi auðvitað stundum að vökva gróðurinn 😉☀️🌧️
Vikan byrjar á þriðjudaginn og fram undan er þétt og skemmtileg dagskrá alla vikuna.
Og auðvitað má ekki gleyma bingóinu okkar á fimmtudaginn 🎉 Þar verðum við með glæsilega vinninga eins og alltaf.
26/05/2026
Elsku þátttakendur í félagsstarfinu í Norðurbrún 1
Takk kærlega fyrir góða og skemmtilega síðustu viku.
Í vikunni stunduðum við alls kyns hreyfingu, meðal annars morgunleikfimina sem er á hverjum morgni, boccia á þriðjudögum og fimmtudögum og hreyfismiðjuna sem er síðdegis á þriðjudögum. Við nýttum einnig góða veðrið og fórum í stuttan en notalegan göngutúr
Við vorum skapandi, sungum saman með Unni tónmenntakennara og nutum handavinnustundanna með Önnu okkar 🎨🎶
Við áttum líka góðar samverustundir og mynduðum tengsl í spjallhringnum okkar, bæði í stuttu spjalli á þriðjudeginum og lengri stund á föstudeginum. Þar notum við skemmtilegan spilastokk sem heitir Let’s Connect, þar sem við drögum spurningar sem ýta undir samtöl, hlustun og tengsl 💛
Að sjálfsögðu fórum við einnig í Hrafnistukaffi í góðum félagsskap og nutum þess að vera í hugleiðslu- og slökun með Maggý
15/05/2026
Næsta vika í félagsstarfinu okkar verður fjölbreytt og skemmtileg
Við verðum með alla okkar föstu dagskrárliði og höldum áfram að hvetja fólk til þátttöku, samveru og hreyfingar
Hér er dagskráin fyrir næstu viku
15/05/2026
Takk kærlega fyrir frábæra viku
Það var sannarlega mikið fjör í félagsstarfinu hjá okkur og gaman að sjá svona góða þátttöku.
Metmæting var í boccia með Friðjóni, nýju dagskrárliðirnir okkar komu einstaklega vel út og að sjálfsögðu var frábær stemning í bingóinu okkar eins og alltaf
Hér eru nokkrar myndir frá vikunni