10/06/2026
Við minnum á að lokað verður á lestrarsal á morgun, fimmtudaginn 11. júní vegna viðhalds.
Lokað á lestrarsal fimmtudaginn 11. júní | Þjóðskjalasafn Íslands
Vegna viðhalds verður lestrarsalur Þjóðskjalasafns lokaður fimmtudaginn 11. júní. Lestrarsalur opnar aftur á hefðbundnum afgreiðslutíma mánudaginn 15. júní klukkan 9:30.
08/06/2026
Alþingiskosningar á árunum 1874-1903.
Hrafnkell Láursson sagnfræðingur fræddi hlustendur Morgunvaktarinnar á Rás 1 um nýjan gagnagrunn um alþingiskosningar. Gagnagrunnurinn er samstarfsverkefni Hrafnkels og Þjóðskjalasafns Íslands og veitir áhugaverða innsýn í sögu kosninga og þróun lýðræðis á Íslandi. Hann er aðgengilegur á vef Þjóðskjalasafns hér https://heimildir.is/kjorgogn/
Morgunvaktin - Spilari RÚV
Bogi Ágústsson var með okkur, á dagskrá Heimsgluggans í dag voru tvö mál: Ný dönsk ríkisstjórn og reiðin í Bretlandi vegna morðsins á Henry Nowak.Á seinni tímanum fjölluðum við um stjórnmál, bæði nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar og alþingiskosningar á landshöfðing...
08/06/2026
Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands var haldin miðvikudaginn 3. júní í áttunda sinn undir yfirskriftinni „Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við.“ Líkt og fyrri ár var ráðstefnan mjög vel sótt en alls tóku vel á annað hundrað gesta þátt á staðnum og í streymi.
Reynslan af rafrænum skilum og varðveislu rafrænna gagna | Þjóðskjalasafn Íslands
Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands var haldin miðvikudaginn 3. júní í áttunda sinn undir yfirskriftinni „Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við.“ Líkt og fyrri ár var ráðstefnan mjög vel sótt en alls tóku vel á annað h...
05/06/2026
Það er enn ekki of seint að sækja um nám í hagnýtri skjalfræði fyrir næsta haust. Frestur rennur út í dag, 5. júní!
Nám í hagnýtri skjalfræði heyrir undir Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði. Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að vinna með skjalasöfn eða rannsaka þau og þeim sem starfa við skjalavörslu og skjalastjórn úti í stofnunum og fyrirtækjum. Lagt er upp með að tengja námið við raunhæf verkefni og styrkja fólk í starfi og hafa aðstandendur námsins átt í góðu samstarfi við héraðsskjalasöfn um land allt um verkefni fyrir nemendur. Yfir 50 nemendur með bakgrunn úr fjölbreyttum háskólagreinum hafa lokið náminu frá árinu 2020.
Hagnýt skjalfræði - Örnám
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun
05/06/2026
„Þar sem nú þessar kistu- og beina-leifar voru hinar einu, er varð vart í þessum grafreit, auk kistu- og beina-leifa Stryvings-feðga og þeirra Madsens-hjóna, virðast þær hljóta að vera kistu- og beina-leifar Jónasar Hallgrímssonar, sem þessi rannsókn var gerð til að finna, enda bendir lega þeirra í reitnum, það, að þær eru mikið austar en allar hinar, greinilega á það, að þær stafa frá fyrstu greftrun í honum, greftrun Jónasar Hallgrímssonar.“
Síðustu daga hefur verið fjallað í fréttum um óskir þess efnis að líkamsleifar þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, sem lést í Kaupmannahöfn árið 1845, verði grafnar upp þar sem þær hvíla í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum. Tilgangurinn er að kanna hvort líkamsleifarnar í þjóðargrafreitnum séu í raun hans.
Í skjalasafni forsætisráðuneytisins í Þjóðskjalasafni Íslands er að finna merkileg skjöl sem tengjast uppgreftri líkamsleifanna í Assistens-kirkjugarði í Kaupmannahöfn, þar sem Jónas var upphaflega jarðsettur. Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður, sá um uppgröftinn, sem fram fór dagana 30.-31. ágúst 1946 og skrifaði nákvæma skýrslu um hann, sem fylgir hér með. Jafnframt eru í einkaskjalasafni Matthíasar, sem varðveitt er í Þjóðskjalasafni, vinnugögn hans frá uppgreftrinum, þar á meðal teikningar af legstaðnum, og má sjá sýnishorn þeirra vinnugagna hér.
Heimildir. ÞÍ. Forsætisráðuneytið 1989-37. B/566, örk 1.
ÞÍ. Matthías Þórðarson (1877-1961) þjóðminjavörður 2013-120. BA/5, örk 1.
03/06/2026
Þjóðskjalasafn Íslands og Háskóli Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um nám í hagnýtri skjalfræði. Um leið er ætlunin að efla samstarf á sviði kennslu og rannsókna milli námsbrautar í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafnsins.
Enn er hægt að sækja um örnám í hagnýtri skjalfræði fyrir næsta skólaár en umsóknarfrestur er til 5. júní.
Háskóli Íslands og Þjóðskjalasafnið efla samstarf um nám í skjalfræði | Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands og Háskóli Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um nám í hagnýtri skjalfræði. Um leið er ætlunin að efla samstarf á sviði kennslu og rannsókna milli námsbrautar í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafnsins. Hrefna Róbertsdóttir þj...
02/06/2026
Vegna viðhalds verður lestrarsalur Þjóðskjalasafns lokaður fimmtudaginn 11. júní. Lestrarsalur opnar aftur á hefðbundnum afgreiðslutíma mánudaginn 15. júní klukkan 9:30.
Lokað á lestrarsal fimmtudaginn 11. júní | Þjóðskjalasafn Íslands
02/06/2026
Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands 2026 fer fram miðvikudaginn 3. júní nk. undir yfirskriftinni "Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við"
Fundarstjóri vorráðstefnunnar að þessu sinni kemur úr heimi fjölmiðlanna en það dagskrár- og íþróttafréttakonan Helga Margrét Höskuldsdóttir á RÚV. Helga Margrét hefur stýrt þáttum á RÚV undanfarin misseri við góðan orðstír meðfram fréttamennsku á íþróttadeild og þá mun hún stýra umræðuþáttum vegna HM í knattspyrnu karla á næstunni. Áður en að því kemur mun hún hins vegar hita upp með því að stýra vorráðstefnunni.
Lokað hefur verið fyrir skráningar á staðinn en enn er hægt að skrá sig í streymi. Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna hér: https://island.is/s/thjodskjalasafn/vorradstefna-2026
02/06/2026
www.heimildir.is
Næstu daga munu notendur verða varir við breytingar á miðlunarsíðu Þjóðskjalasafns á heimildir.is. Við erum alltaf að reyna að bæta upplifun notenda vefefnis og munum stíga nokkur skref í átt að einfaldara viðmóti á næstunni.
01/06/2026
Er beðið eftir Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu?
Þjóðskjalsafn býður dyggum lesendum Heimildar mánaðarins að taka forskot á sæluna með upprifjun um undirbúning íþróttafréttamanna fyrir mótið 1966.
Lesið núna, ekki seinna, því annars „má vænta þess að íslenzkir [áhuga]menn fái enga fyrirgreiðslu í sambandi við leiki þessa“
Þurfið þér ritvél? Spurningalistar undirbúningsnefndar HM ´66 til íslenskra íþróttafréttamanna – júní
Heimsmeistaramótið í fótbolta er einn stærsti íþróttaviðburður heims og fer fram í 23. skipti nú í júní. Að ýmsu er að hyggja í undirbúningi slíkra stórviðburða og þar á meðal hvernig eigi að koma fréttum af mótinu til áhugafólks um víða veröld. Fyrir 60 árum fór...