16/06/2026
Í dag var Atvikavaktinni ýtti úr vör, nýju skráningarformi sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Markmiðið með Atvikavaktinni er að efla öryggi, gæði og fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.
Um mikilvægan áfanga er að ræða þegar kemur að auknu öryggi ferðamanna en Atvikavaktin er hönnuð með þarfir ferðaþjónustufyrirtækja í huga til að spara tíma, bæta yfirsýn og styðja við markvisst öryggisstarf.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundi sem Ferðamálastofa stóð fyrir af þessu tilefni.
16/06/2026
Hér er hlekkur á beint streymi frá fundi Ferðamálastofu kl. 15 í dag um hvernig efla megi öryggi og styðja við forvarnir í ferðaþjónustu. Þar mun Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra m.a. kynna til sögunnar Atvikavaktina, nýtt miðlægt skráningarkerfi fyrir atvik og slys í ferðaþjónustu.
Ferðamálastofa - Streymi - 16.6.26
27/05/2026
Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri var kjörinn varaforseti Ferðamálaráðs Evrópu, ETC, á aðalfundi sambandsins sem nú fer fram í Svartfjallalandi. Þrír voru í kjöri og fékk Arnar flest atvæði.
Á fundinum koma saman leiðtogar ferðamálaráða 32ja Evrópulanda til að ræða framtíð evrópskrar ferðaþjónustu. Miguel Sanz, ferðamálastjóri Spánar, var endurkjörinn forseti ETC.
https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/arnar-mar-kjorinn-varaforseti-ferdamalarads-evropu
26/05/2026
Ferðamálastofa hefur gefið út hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti vegna almyrkva á sólu sem verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026.
Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við undirbúning og framkvæmd dagsins með áherslu á öryggi gesta, samræmda upplýsingagjöf, ábyrga nýtingu innviða og góða umgengni um náttúruna.
Sjá nánar í fyrstu athugasemd.
07/05/2026
Ferðaþjónusta í Evrópu stendur sterk í byrjun árs 2026 þrátt fyrir óvissu í heimsmálunum, samkvæmt nýrri skýrslu ETC.
Vöxtur varð víða milli ára norðantil í álfunni sem þó á ekki við um Ísland.
Átökin í Miðausturlöndum eru farin að hafa áhrif á ferðalög á heimsvísu en líklegt á áhrfin í Evrópu verði minni en víða annarsstaðar.
Nánar í fyrstu athugasemd.
30/04/2026
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.
Sérstök áhersla var lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd
24/04/2026
Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár hlaut fyrirtækið Íslandshótel verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur og leiðandi hlutverk í sjálfbærni og ábyrgum rekstri í íslenskri ferðaþjónustu.
Sjá frétt i fyrsty athugasemd.
21/01/2026
Hér koma nokkrar myndir frá Ferðatæknimótinu sem Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn / Iceland Tourism héldu í samstarfi við EDIH - Miðstöð stafrænnar nýsköpunar, í Ferðaþjónustuvikunni í síðustu viku. Ferðatæknimótið var nú haldið í 3. sinn en það er vettvangur til að leiða saman fyrirtæki sem annað hvort leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði ferðaþjónustu. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við ferðatækni og aðra starfræna þróun, sjálfbærni og öryggi innan ferðaþjónustunnar.