16/06/2026
⚓️ Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfulla og kraftmikla einstaklinga í störf yfirvélstjóra og undirvélstjóra á varðskipum stofnunarinnar.
Hlekkur á auglýsingu hér að neðan 👇
www.lhg.is Helstu verkefni Landhelgisgæslunnar eru:
Löggæsla og eftirlit á hafinu umhverfis Ísland.
Ábyrgð og yfirstjórn á leit og björgun á sjó.
Aðstoð við björgun og sjúkraflutninga á landi. Sjómælingar og sjókortagerð
Sprengjueyðing
Rekstur fjarskipta- og ratsjárstöðva. Umsjón með öryggissvæðum og eignum NATO á Íslandi. Hjá Landhelgisgæslu Íslands starfa um 200 manns.
16/06/2026
⚓️ Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfulla og kraftmikla einstaklinga í störf yfirvélstjóra og undirvélstjóra á varðskipum stofnunarinnar.
Hlekkur á auglýsingu hér að neðan 👇
14/06/2026
Fjölmenni lagði leið sína á opið hús í flugskýlið okkar á Reykjavíkurflugvelli í gær sem haldið var í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgsæslu Íslands.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar tók á móti gestum og kynnti fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar sem fram fer um allt land.
Gestum gafst m.a. kostur á að skoða þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar sem og margvíslegan annan búnað sem notaður er í starfseminni svo sem báta, köfunarbúnað, sprengjueyðingarbúnað, sjókort, ýmis mælitæki, og margt fleira áhugavert.
Takk fyrir okkur!
12/06/2026
Við minnum á opið hús í flugskýlinu okkar á morgun, laugardag, milli klukkan 12 og 16!
Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgsæslu Íslands bjóðum við landsmönnum til opins húss í flugskýli okkar við Nauthólsvík á Reykjavíkurflugvelli, næstkomandi laugardag þann 13. júní frá kl. 12:00 til kl. 16:00.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar tekur vel á móti gestum og kynnir fjölbreytta starfsemi Landhelgisgæslunnar sem fram fer um allt land. Gefst fólki kostur á að skoða þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar sem og margvíslegan annan búnað sem notaður er í starfseminni svo sem báta, köfunarbúnað, sprengjueyðingarbúnað, sjókort, ýmis mælitæki, myndir úr allri starfseminni og margt fleira áhugavert.
Bílastæði við flugskýli Landhelgisgæslunnar verða eingöngu fyrir gangandi umferð og hreyfihamlaða en gestum er góðfúslega bent á að leggja bílum á bílastæði við Háskólann í Reykjavík og í Nauthólsvík.
Landhelgisgæslan vonast til að sem flestir kíki í heimsókn til að kynna sér starfsemina, hitta starfsmenn, skoða tækjabúnaðinn og fagna þessum tímamótum með okkur.
07/06/2026
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Fjölmenni lagði leið sína í miðborg Reykjavíkur. Hátíðahöldin hófust með hefðbundnum hætti klukkan 10 í morgun þegar minningarstund var haldin við Minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði um þá sem hlotið hafa vota gröf hér við land. Að athöfn lokinni var haldin sjómannadagsmessa í Dómkirkjunni.
Venju samkvæmt sýndi þyrlusveitin hvernig björgun úr sjó er framkvæmd í víða um land.
Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, tóku þátt í hátíðahöldunum ásamt starfsfólki Landhelgisgæslunnar.
Jón Páll Ásgeirsson, fyrrverandi stýrimaður Landhelgisgæslunnar, og Ólafur Pálsson, fyrrverandi vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, voru meðal þeirra sem heiðraðir voru við hátíðlega athöfn í Hörpu.
Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá þátttakendur Landhelgisgæslunnar ásamt Höllu Tómasdóttur forseta og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra.
Til hamingju með daginn sjómenn!
07/06/2026
⚓Landhelgisgæsla Íslands óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn og þakkar fyrir samfylgdina í 100 ár.
05/06/2026
Bókaútgáfan Hólar vinnur að útgáfu 100 ára afmælisrits um sögu Landhelgisgæslunnar.
Þegar Landhelgisgæslan varð sjötíu ára 1996 kom út bókin Svipmyndir úr sögu Landhelgisgæslunnar sem Guðjón Arngrímsson skrifaði um ýmsa atburði og tímamót í sögu þessarar stofnunar sem er 100 ára á þessu ári.
Guðni Einarsson blaðamaður er nú að skrifa um það sem gerst hefur eftir sjötíu ára afmælið og verður síðan gefin út bók um öll hundrað árin næsta haust. Guðni ræddi við Fiskifréttir.
Erum öll hluthafar í Landhelgisgæslunni Guðni Einarsson, sem skrifar sögu Landhelgisgæslu Íslands síðustu þrjátíu árin, segir það stórkostlegt fyrir Íslendinga að eiga slíka stofnun sem standi fyllilega undir því mikla trausti sem þjóðin hafi endurtekið sýnt henni.
05/06/2026
Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag við Reykjanes. Varðskipið Þór fylgir kafbátnum um landhelgina, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. USS Oregon er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.
Þetta er í níunda sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að þáverandi utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023, að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa viðkomu á Íslandi.
Heimsóknin er á ábyrgð utanríkisráðuneytisins en Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd hennar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og sóttvarnarlækni í samræmi við settar verklagsreglur. Vel hefur tekist til með undirbúning og framkvæmd heimsóknanna þökk sé þéttu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.
Meðfylgjandi mynd er úr safni.
04/06/2026
Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, varð sjötugur um síðustu helgi. Við hjá Landhelgisgæslunni höfum verið svo lánsöm að hafa notið einstakra hæfileika Árna í nær hálfa öld og óhætt að segja að hann sé ,,hirðljósmyndari" Landhelgisgæslunnar.
Árni sigldi á árum áður með varðskipum Gæslunnar og fyrsta mynd Árna sem birtist á síðum Morgunblaðsins var mynd hans af þyrlunni TF-RAN lenda á varðskipinu Ægi í St. Johns í Nýfundnalandi árið 1980.
Myndasafn Landhelgisgæslunnar byggir að stórum hluta á glæsilegum myndum úr smiðju Árna Sæberg sem hefur skráð sögu Landhelgisgæslunnar í gegnum linsuna og fyrir það erum við ævinlega þakklát.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, færði Árna þakklætisvott í tilefni stórafmælisins um borð í varðskipinu Þór í vikunni að viðstöddu framkvæmdateymi Landhelgisgæslunnar.
Það er viðeigandi á 100 ára afmælisári Landhelgisgæslunnar að birta nokkrar glæsilegar myndir Árna með þessari færslu.
Takk Árni og til hamingju!
03/06/2026
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu á tólfta tímanum í dag um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði. Einn maður var um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin um að halda á vettvang. Skömmu eftir að tilkynningin barst, bárust upplýsingar til stjórnstöðvar Gæslunnar um að búið væri að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi.
Fyrsti nálægi báturinn kom fljótt á vettvang og stuttu síðar var björgunarskipið og þyrla Landhelgisgæslunnar komin á staðinn. Sigmaður og læknir þyrlusveitarinnar sigu um borð í bátinn til að meta aðstæður og huga að skipverjanum um borð en hann varð fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp. Að því búnu fór skipverjinn um borð í björgunarskipið og fiskibáturinn var tekinn í tog til hafnar á Rifi.