18/05/2026
🎉Við óskum Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland innilega til hamingju en safnið hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026 👌
✨Í dag 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild ICOM / ICOM Iceland og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi👌Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.
🌱🌾🌿
🏆Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:
"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. “👏 👏
Nánari umfjöllun hér👇
Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026
Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.
Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:
"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. Með því að sýna fölsuð og ófölsuð verk hlið við hlið, opna rannsóknargögn og gera flókið viðfangsefni aðgengilegt tókst með sýningunni að varpa ljósi á viðkvæmt en brýnt málefni á ábyrgan hátt.
[…]
Almenn þekking á íslenskri listasögu er mikilvæg viðspyrna gegn fölsunum og þar hefur Listasafn Íslands lagt sitt lóð á vogarskálarnar með metnaðarfullri og djarfri umfjöllun um viðkvæma þætti innan íslenskrar listasögu sem hafa hingað til ekki hlotið faglega og ítarlega framsetningu og umfjöllun sem þessa."
Þau söfn sem hlutu einnig tilnefningu til verðlaunanna voru Borgarsögusafn fyrir verkefni á sviði inngildingar og öflug tengsl við samfélagið, Minjasafn Austurlands fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi, Stofnun Árna Magnússonar fyrir sýninguna Heimur í orðum og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn.
Í valnefnd sátu Birta Guðjónsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson og Hörður Geirsson. Alma Sigurðardóttir var formaður nefndarinnar.
18/05/2026
👉Hvað ætlar þú að gera á safnadaginn?
Fjöldi safna heldur upp á 🌍Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland, sum bjóða ókeypis inn og einhver standa fyrir viðburðum í tilefni dagsins 👌Hægt verður að kynna sér dagskránna á samfélagsmiðlum safnadagsins og samfélagsmiðlum safna ☀️🥳👏
👉Eftirfarandi viðburðir verða haldnir í tilefni Alþjóðlega safnadagsins:
👌Mánudaginn 18. maí 🤓
10:00-17:00 Hlustunarpartý í Eddu: https://fb.me/e/8DbNHpw06
11:00 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
11:00-18:00 Veiðisafnið býður tvo fyrir einn af aðgangseyri
12:00 Jóga og slökun á Alþjóðlega safnadeginum á Þjóðminjasafninu: https://fb.me/e/6VaLhDY7z
12:00-17:00 Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir: https://fb.me/e/6YluRIGJX
12:15 Leiðsögn um sýninguna Landlæg hamingja á Gerðarsafni: https://fb.me/e/3KpvPDz1s
13:00 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
15:30-17:30 Opin safngeymsla á Náttúrusafni Kópavogs: https://fb.me/e/4rCBAxUOv
16:00 Afhending Íslensku safnaverðlaunin á Kjarvalsstöðum🏆: https://fb.me/e/eFyXQLjUH
16:00-17:30 Sólarþrykk á Gerðarsafni og Náttúrusafni Kópavogs: https://fb.me/e/hPsDkrjZ7
16:30 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
17:00 „Brúum bilið“ á Minjasafni Austurlands: https://fb.me/e/98mY4zE3W
20:00 Bragðarefur plönturíkis í Grasagarði Reykjavíkur: https://fb.me/e/4wsOFzMwa
Sjáumst á safni! 👏🥳🌱
13/05/2026
🧐Hér má sjá hvaða söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 🏆 en þau verða afhend á Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland þann 👉 18. maí næstkomandi 🎉
28/04/2026
💐 Menning Morgunblaðsins fjallar um úthlutun úr Safnasjóði
Tilkynnt hefur verið um aðalúthlutun ársins úr Safnasjóði.
22/04/2026
✨🎉Aðalúthlutun 2️⃣0️⃣2️⃣6️⃣úr Safnasjóði fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands við hátíðlega athöfn að viðstöddum góðum gestum fimmtudaginn 16. apríl ✨🥂
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu ávarpaði gesti og úthlutaði 131 styrk, alls 182.700.000 krónum úr safnasjóði til 51 styrkþega 🌱🎶
Öndvegisstyrkir 2026-2028 til viðurkenndra safna voru átta að heildarupphæð þeirra alls 73.000.000 kr. 💐
🦉Úthlutunarboð Safnaráðs fór fram í beinu framhaldi af vorfundi höfuðsafnanna; Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland, Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland og Náttúruminjasafn Íslands sem haldinn var í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins sama dag. Nánari upplýsingar á heimasíðu safnaráðs – tengill í athugasemd.
📸 Sunday & White Studio
21/04/2026
🎉Alþjóðlegi safnadagurinn er 18. maí, yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi 🌍
🤓Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins ⤵️
Alþjóðlegi safnadagurinn er 18. maí, yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi.
Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Yfirskriftin mun jafnframt setja sinn svip á hátíðarhöld í tilefni af 80 ára afmæli ICOM á árinu.
Söfn eru opin rými sem njóta trausts almennings, þar sem gestir eiga þess kost að kynnast sögum, gripum og hvert öðru. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu.
Yfirskriftin Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi undirstrikar möguleika safna til að brúa bilið milli ólíkra menningarheima, samfélagshópa og landssvæða. Markmið safna er ekki að setja alla undir sama hatt heldur skapa rými þar sem skilningur og virðing eru höfð í hávegum. Með því að varðveita menningararf og minni, efla fræðslu og ígrundun, auk þess að bjóða upp á opið og aðgengilegt rými þar sem ólíkar raddir fá að heyrast, stuðla söfn að fjölbreytileika og sjálfbærni.
Við hvetjum öll þau sem tilheyra hinu alþjóðlega safnasamfélagi til að taka þátt í Safnadeginum 2026 og vinna með yfirskriftina á þann hátt að hún höfði til nærsamfélagsins. Svo sem með verkefnum sem byggja á þátttöku, samstarfi ólíkra aðila og auknu aðgengi, í því skyni að stuðla að samkennd og trausti í samfélaginu.
Við hlökkum til að fagna Alþjóðlega safnadeginum með ykkur og ykkar söfnum.
24/03/2026
📣Hér fjallar Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóra Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum um þær umræður sem sprottið hafa vegna nauðsynlegra framkvæmda og byggingu menningarhúss í Skagafirði 🌱
Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? - Vísir
Þar sem heitar umræður hafa spunnist um byggingu menningarhúss í Skagafirði finn ég mig knúna til að greina frá því hvaða þýðingu þessi framkvæmd hefur fyrir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga.
04/03/2026
🔔Endurskoðun siðareglna ICOM: fyrirlestur og umræður💬 með Dr. Sally Yerkovich sem leitt hefur endurskoðun siðareglna ICOM 📝fyrir söfn undanfarin ár
👉Íslandsdeild ICOM / ICOM Iceland býður félögum, safnafólki, fræðamönnum og hagsmunaaðilum á fundinn sem fer fram í húsakynnum safnaráðs fimmtudaginn 5. mars kl. 10:00 til 11:30 📍 Austurstræti 5, 4. hæð.
Endurskoðun siðareglna ICOM: fyrirlestur og umræður með Dr. Sally Yerkovich – icom.is
Endurskoðun siðareglna ICOM: fyrirlestur og umræður með Dr. Sally Yerkovich 19. febrúar 2026 27. febrúar 2026 Íslandsdeild ICOM býður félögum, safnafólki, fræðamönnum og hagsmunaaðilum til sérstaks fundar með Dr. Sally Yerkovich, sem leitt hefur endurskoðun siðareglna ICOM fyrir...