09/05/2025
Við auglýsum eftir skemmtilegu samstarfsfólki🤓
Starfatorg - laus störf hjá ríkinu | Ísland.is Á Starfatorginu er að finna upplýsingar um laus störf hjá ríkinu.
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir - FSRE
Government Construction Contracting Agency - GCCA Hlutverk FSRE er sköpun aðstöðu fyrir þjónustu ríkisins við borgarana.
Haustið 2021 runnu Framkvæmdasýsla ríkisins og Ríkiseignir saman í eina stofnun, Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir, eða FSRE. Stofnanirnar höfðu þá starfað samhliða í góðu samstarfi um margra ára skeið. Ríkisieignir höfðu haft eignasafn ríkisins í sinni umsjón, en Framkæmdasýslan sinnt byggingu nýrrar aðstöðu, leigu og endurbótum á húsnæði ríkisstofnana og ráðuneyta.
Árið 2019 höfðu forstöðumenn be
09/05/2025
Við auglýsum eftir skemmtilegu samstarfsfólki🤓
Starfatorg - laus störf hjá ríkinu | Ísland.is Á Starfatorginu er að finna upplýsingar um laus störf hjá ríkinu.
13/03/2025
The International Symposium on Mitigation Measures against Snow Avalanches and other Rapid Gravity Mass Flows Í ár er þess minnst að 30 ár eru frá því að hin mannskæðu snjóflóð féllu í Súðavík og á Flateyri árið 1995.
17/02/2025
Við leitum að liðsauka hjá FSRE! Hefur þú áhuga á því að efla fagmennsku í opinberum innkaupum? Eða þekkir þú einhvern sem vill auka hagkvæmni í opinberum framkvæmdum?
Sérfræðingur í opinberum innkaupum | Ísland.is FSRE leitar að lausnamiðuðum, nákvæmum og framsæknum einstaklingi með þekkingu ...
20/12/2024
14/10/2024
FSRE hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024. Þetta er í fjórða sinn sem stofnunin hlýtur viðurkenninguna en verkefnið er hvatning til fyrirtækja og stofnana til að gera betur í jafnréttismálum og markmið þess er að ná og viðhalda 40/60 hlutfalli í framkvæmdastjórnum.
Að þessu sinni voru afhentar viðurkenningar til 93 fyrirtækja, 15 sveitarfélaga og 22 opinberra aðila úr hópi þeirra 247 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.
03/10/2024
Endurgerð yfirbyggingar á friðlýstum minjum við Stöng í Þjórsárdal er lokið eftir rúmt ár af umfangsmiklum framkvæmdum.
Þjóðveldisbærinn, staðsettur við Þjórsárdalsveg í Gjáskógum, er eftirlíking af bænum Stöng sem varð undir vikri í Heklugosinu árið 1104. Markmið verkefnisins er að varðveita þessar mikilvægu minjar með því að byggja nýja yfirbyggingu sem ver mannvirkið fyrir veðri og vindum.
Vígsla fór fram þann 1. október síðastliðinn, að viðstöddum Rúnari Leifssyn, forstöðumanni Minjastofnun Íslands, Magnúsi Guðmundssyni skrifstofustjóra í umhverfis- orku- og loftlagsráðuneyti, Karli Kvaran arkitekt og Ugga Ævarssyni minjaverði Suðurlands, ásamt fleiri góðum gestum.
26/09/2024
🏠 Til sölu! 🏠
FSRE auglýsir fyrir hönd ríkissjóðs:
4ra herbergja íbúð á Breiðvangi 9, Hafnarfirði
📍 Skoðaðu nánar hér: https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/1323429/
Breiðvangur 9, Hafnarfirði - mbl.is Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir til sölu 4ra herbergja íbúð, merkt 203, að Breiðvangi 9, Hafnarfirði. Birt flatarmál íbúðarinnar er …
28/08/2024
Fasteignasala á eignum í eigu ríkissjóðs færð til FSRE
FSRE hefur tekið við umsjón með sölu á fasteignum í eigu ríkisjóðs af Ríkiskaupum sem nú hefur sameinast Fjársýslunni. Undir eignasölu felst sala á fasteignum jörðum og aðrar eignir í eigu ríkissjóðs.
Breyting þessi tók gildi í ágúst í kjölfar nýrrar reglugerðar um ráðstöfun og öflun eigna ríkisins nr. 892/2024,
Fasteignasala á eignum í eigu ríkissjóðs færð til FSRE FSRE annast það hlutverk að bjóða fasteignir, jarðir og aðrar eignir í eigu ríkissjóðs til sölu
LAUST STARF - Verkefnastjóri framkvæmda
www.fsre.is/um-okkur/mannaudur/laus-storf
FSRE leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í öflugan hóp verkefnastjóra á sviði framkvæmda. Á sviðinu starfa þverfagleg teymi sérfræðinga og verkefnastjóra sem leiða fjölbreytt framkvæmdaverkefni um allt land. FSRE stuðlar að stöðugum framförum í byggingariðnaði á Íslandi og leitast við að vera leiðandi afl og í fararbroddi við öflun á góðu en hagkvæmu húsnæði í allra þágu.
FSRE hefur yfirumsjón með húsnæðisöflun fyrir stofnanir ríkisins. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með framkvæmdum við nýbyggingar felur starfsemin einnig í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á eldra húsnæði og aðstöðu.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf á framsæknum og nútímalegum vinnustað.
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024
LAUST STARF - Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum
FSRE leitar að talnaglöggum og framsæknum einstaklingi með þekkingu og áhuga á gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu til að hafa yfirumsjón með áætlanagerð framkvæmda- og viðhaldsverkefna. Viðkomandi aðili fær tækifæri til að þróa áfram aðferðarfræði við kostnaðar- og áhættugreiningar verkefna auk eftirfylgni áætlana.
Starfið tilheyrir teymi sérfræðinga á framkvæmdasviði sem veitir ráðgjöf og stuðning við starfsfólk FSRE þvert á svið, en einnig veita ráðgjöf til annarra ríkisstofnana og ráðuneyta eftir þörfum
https://www.fsre.is/um-okkur/frettir/laust-storf.
27/06/2024
Leiguhúsnæðis fyrir þrjár heilsugæslur og HTÍ leitað!
FSRE auglýsir nú eftir sérhæfðu húsnæði til langtímaleigu sem eru nútímalegt, verkefnamiðað og sveigjanlegt fyrir 15 þúsund manna heilsugæslur í miðborg Reykjavíkur, miðbæ Garðabæjar og miðbæ Hafnarfjarðar. Einnig er leitað húsnæðis fyrir Heyrnar-og talmeinastöð Íslands.
Gerð er krafa um staðsetningu í nálægð við helstu aðalgötur/tengibrautir og almenningssamgöngur.
https://www.fsre.is/um-okkur/frettir/leiguhusnaedis-fyrir-thrjar-heilsugaeslur-og-hti-leitad
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Sérfræðingur í fjármálum og reikningshaldi - Laust starf!
FSRE leitar að jákvæðum, drífandi og þjónustulunduðum einstaklingi til að leiða gagnastýringu, skjalamál og upplýsingastjórnun áfram inn í framtíðina. Um er að ræða spennandi starf í þróun og innleiðingu á stafrænum vinnubrögðum. Í því felst að tryggja skilvirka meðhöndlun gagna í samræmi við lög og reglur um skjalavistun opinberra aðila. Taka við stjórnartaumunum á innleiðingu á WorkPoint skjalavistunarkerfinu. Auk þess að hafa yfirumsjón með fræðslu og þjálfun starfsfólks.
Umsóknarfrestur er til og með 01.07.2024
www.fsre.is/um-okkur/frettir/laust-storf
| Monday | 09:00 - 15:00 |
| Tuesday | 09:00 - 15:00 |
| Wednesday | 09:00 - 15:00 |
| Thursday | 09:00 - 15:00 |
| Friday | 09:00 - 14:00 |