Svo sannarlega ekki það sem kemur fyrst upp í hugann til að starta samræðum á mannamótum; ,,Hey vissirðu að Ríkiskaup gerðu magnaðan samning í gær?”.
Af lítilli ríkisstofnun að vera með aðeins um 23 starfsmenn er hlutverkið risastórt. Fyrstu lög um stofnun Ríkiskaupa þar sem kveðið er á um miðlæga innkaupastofnun fyrir ríkið voru sett þann 5. júní 1947 en starfsemin hófst þann 15. janúar 1949 og heyrir stofnunin undir Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Í 99. gr. núgildanda laga um opinber innkaup nr. 120/2016 segir um hlutverk miðlægrar innkaupastofnunar: ,, Ríkiskaup er miðlæg innkaupastofnun á vegum ríkisins sem heyrir undir ráðherra. Forstjóri Ríkiskaupa veitir henni forstöðu og er skipaður af ráðherra í fimm ár í senn. Forstjóri gerir fjárhagsáætlun stofnunarinnar og mótar stefnu um helstu áherslur, verkefni og starfshætti stofnunarinnar.
Ríkiskaup gera rammasamninga fyrir hönd ríkisins, þar sem lagt er mat á hæfi, verð og eftir atvikum magn innkaupa, og annast útboð og önnur innkaupaferli sem fram fara á vegum ríkisstofnana vegna innkaupa, hvort heldur er yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum eða viðmiðunarfjárhæðum fyrir Evrópska efnahagssvæðið, skv. 23. gr. Ráðherra getur þó heimilað einstökum ríkisstofnunum að annast eigin innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum.
Öðrum opinberum aðilum sem falla undir lög þessi er jafnframt heimilt að nota þjónustu Ríkiskaupa.
Ráðherra er heimilt að fela Ríkiskaupum að annast önnur verkefni sem eru í nánum tengslum við starfsemi stofnunarinnar samkvæmt nánari ákvörðun.
Ríkiskaup bjóða upp á sérhæfðar innkaupalausnir sem eru sniðnar að þörfum stofnana og leitast þannig við að ná settum markmiðum varðandi sparnað og hagræðingu. Þó er ávallt reynt að kanna og meta sameiginlegar þarfir auk þess að beita sér fyrir samræmdum innkaupum sem nýtast fyrir sem flesta. Ríkiskaup annast þannig beina framkvæmd útboða, innkaupa, rammasamninga og eignasölu fyrir stofnanir og fyrirtæki í rekstri Ríkissjóðs.
Góðar stundir.