29/05/2026
Átta umsækjendur um starf forstjóra Hafrannsóknastofnunar
Alls bárust til atvinnuvegaráðuneytis átta umóknir um embætti forstjóra Hafannsóknastofnunar. Embættið var auglýst 5. maí sl. og rann umsóknarfrestur út 22. maí.
Sjá frétt í ummælum.
27/05/2026
Kolbeinn Árnason nýr ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytis.
Sjá frétt í ummælum.
12/05/2026
Sjónarhorn flakkarans sýnt í Vestmannaeyjum
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vígði í dag, 12. maí, fyrsta áfanga Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar.
Sjá frétt í ummælum.
08/05/2026
Hækkun lágmarksverðs mjólkur.
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
Sjá frétt í ummælum
06/05/2026
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar
Atvinnuvegaráðherra auglýsir embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, laust til umsóknar.
Sjá auglýsingu á Starfatorgi í ummælum.
05/05/2026
Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Hæsti styrkur úr sjóðnum í ár fer til Vestmannaeyjabæjar vegna gerð göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer‘s Perspective). Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja öryggi ferðamanna og vernda viðkvæma náttúru svæðisins en um leið minnast eldgossins á Heimaey 1973.
Markmið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.
30/04/2026
Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag, 30 apríl, til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026.
Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.
Sjá frétt í ummælum.
22/04/2026
Skýrsla um eflingu náms í ferðaþjónustu
Í nýrri skýrslu um uppbyggingu náms í ferðaþjónustu kemur fram að þörf er á heildarsýn og markvissum aðgerðum til að styrkja menntun í greininni. Skýrslan er unnin í tengslum við ferðamálastefnu til 2030, megininntak stefnunnar er áhersla á sjálfbærni á öllum sviðum, samkeppnishæfni og samfélagslegan ávinning á landsvísu.
Sjá frétt í ummælum.
22/04/2026
Úthlutun úr Fiskeldissjóði árið 2026
Stjórn Fiskeldissjóðs úthlutar styrkjum til 14 verkefna í s*x sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 554.000.000 kr. Í samráði við fulltrúa þeirra sveitarfélaga sem eiga rétt á að sækja um styrki úr sjóðnum var umsóknarferli sjóðsins einfaldað fyrir úthlutunarárið 2026, meðal annars með það að markmiði að stytta umsóknarferlið og gera kröfur til umsókna skýrari og markvissari og er úthlutun nú um tveimur mánuðum fyrr en árið 2025.
Sjá frétt í umælum.