Björgunarsveitin Ársæll

Björgunarsveitin Ársæll

Share

Sjálfboðaliðar í leit og björgun. Volunteer search and rescue. Banki: 0101-26-040020, kt. 540999-2449

Photos from Björgunarsveitin Ársæll's post 29/03/2026

Björgunarsveitin Ársæll tók á dögunum við alrafmögnuðum XPENG G6 frá bílaumboðinu Unu, umboðsaðila Xpeng á Íslandi (XPENG Ísland) . Að því er við vitum er þetta fyrsti 100% rafknúni bíllinn sem björgunarsveit tekur í notkun hér á landi.

Þótt flestir tengi björgunarsveitir við stóra jeppa og snjóbíla, þá nýtum við alla möguleika sem í boði eru til að koma félögum okkar á þá staði þar sem þeirra er þörf. Rafbíll er vel til þess fallinn í ákveðnum aðstæðum, ekki síst innan höfuðborgarsvæðisins, og við hlökkum til að kynnast afköstum XPENG í íslenskum aðstæðum.

Við höfum notið góðs samstarfs við Öskju, sem er systurfélag Unu, og fögnum því að geta tekið þetta skref í átt að grænni framtíð með þeim.

31/12/2025
Photos from Björgunarsveitin Ársæll's post 31/12/2025

Bjössi brunabangsi kíkti í heimsókn í Gróubúð og við fórum saman yfir öryggisatriði 🚒⛑️
Munum saman að vera með flugeldagleraugu😎

31/12/2025

Munum eftir öryggisgleraugunum með Bjössa brunabangsa!

Björnis brunabangsi hvetur ykkur öll til að fara varlega þegar kemur að flugeldum og nota alltaf öryggisgleraugu.

31/12/2025

INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld, þriðjudagskvöld, ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.

Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.

Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.

30/12/2025

BÚIÐ AÐ DRAGA - GLEÐILEGT NÝTT ÁR🎇🎆

Vinnur þú flugeldasýningu?
Fylgdu okkur á Instagram og/eða Facebook og merktu tvo vini í athugasemd og þú ert kominn í pottinn fyrir þennan glæsilega vinning að heildarverðmæti 78.300kr
Við drögum út og sendum vinningshafa skilaboð að morgni 31. des!
(Skilaboð utan þess tíma eða skilboð þar sem beðið er um upplýsingar frá vinningshafa koma ekki frá okkur)

Í pakkanum er:
Tralli
Fjallajeppar
Bílstjóri
Önundarbrenna
Bengalblyspakki
Hjartastjörnuljós
Skriðdrekar
Froskar
Partysprengjur
Flugeldagleraugu

07/11/2025
05/11/2025

NEYÐARKALL TIL ÞÍN 🚨

Í dag hefst sala á neyðarkallinum

Sjálfboðaliðar okkar verða staðsettir um alla borg og
taka á móti ykkur með bros á vör 😊

Einnig býðst að styrkja sveitina með veglegum hætti með því að kaupa stóran neyðarkall og hvetjum við að sjálfsögðu öll fyrirtæki sem hafa tök á, að skreyta húsakynni sín með neyðarköllum.
Hagt er að kaupa hann hér:
https://bjorgunarsveit.is/fjaraflanir/neydarkall/kaupa

Við vonum að þið takið vel á móti sölufólki okkar, við
erum klár fyrir þitt neyðarkall -þetta er okkar
neyðarkall til þín!🚨

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Grandagarði 1
Reykjavík
IS-101