01/10/2026
Í dag eru 10 ár liðin frá fráfalli Eddu Heiðrúnar Backman (27.11.1957-1.10.2016), leikkonu, leikstjóra og myndlistarkonu.
Edda Heiðrún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1983 og næstu 35 árin átti hún eftir að marka djúp spor í menningarlífi þjóðarinnar, ekki eingöngu á leiksviði heldur einnig í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum sem og á mörgum öðrum sviðum.
Eitt af fyrstu hlutverkum Eddu Heiðrúnar á atvinnuleiksviði var Árdís í Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur haustið 1983. Í Morgunblaðinu skrifaði Jóhann Hjálmarsson eftirfarandi um frammistöðu hennar:
„Hún lýsti á sterkan hátt stúlkunni Árdísi, en hlutverkið er mikilvægt vegna þess að höfundurinn teflir því fram til mótvægis við hina spilltu og lífsþreyttu og það er tákn vonar hjá honum. Það er ekki síst vandi að skila þessu hlutverki án ofleiks, gera það jafn hljóðlátt og Jökull vill að það sé. Þetta tókst Eddu Heiðrúnu Backman fyllilega.“
Hún lék fjölmörg eftirminnileg hlutverk á leiksviði fyrir sjálfstæða leikhópa, Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið. Þar má telja Guggu í Milli skinns og hörunds (Þjóðleikhúsið 1984), Auði í Litlu hryllingsbúðinni (Hitt-leikhúsið 1985), Dollí í Þar sem djöflaeyjan rís (Leikfélag Reykjavíkur 1987), Cosette í Vesalingunum (Þjóðleikhúsið 1987), Lafði Macbeth (Frú Emelía 1994), Varju í Kirsuberjagarðinum (Frú Emelía 1994), Sally Bowles (Leikfélag Reykjavíkur 1995), Helgu í Þrek og tár (Þjóðleikhúsið 1995), kerlinguna í Gullna hliðinu (Þjóðleikhúsið 1999), eldri leikkonuna í Hægan, Elektra (Þjóðleikhúsið 2000), Ljúbu í Kirsuberjagarðinum (Þjóðleikhúsið 2000) og Donnu í Kvetch (Á senunni 2002).
Eftir að Edda Heiðrún greindist með MND sjúkdóminn sneri hún sér að leikstjórn og myndlist. Á meðal leikstjóraverkefna hennar má telja Svik eftir Harold Pinter fyrir leikhópinn Á senunni (2004), Mýrarljós eftir Marinu Carr fyrir Þjóðleikhúsið (2005), Átta konur eftir Robert Thomas fyrir Þjóðleikhúsið (2006) og að lokum Hjónabandsglæpi eftir Eric-Emmanuel Schmitt fyrir Þjóðleikhúsið (2007).
Edda Heiðrún hlaut Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 2005 fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar. Hún hlaut tvenn Grímuverðlaun 2003, þegar verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir bæði Hægan, Elektra og Kvetch (Þjóðleikhúsið) og besta leikkona í aukahlutverki fyrir Kryddlegin Hjörtu (Borgarleikhúsið). Það merkilega er að Hægan, Elektra var frumsýnd í febrúar 2000 og liðu þannig þrjú ár frá leik hennar í sýningunni þar til hún hlaut verðlaun fyrir hlutverkið. Edda Heiðrún hlaut heiðursverðlaun Grímunnar 2015.
Leikminjasafnið minnist Eddu Heiðrúnar Backman.