08/05/2026
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, teymisstjóri á Landsbókasafni segir í viðtali við Morgunblaðið frá mikilvægi skylduskila og hvernig þau gera okkur kleift að halda utan um, varðveita og miðla mikilvægum arfi.
Mikilvæg skylduskil eru áskorun
Sú skylda er að að öllu útgefnu prentuðu ritmáli á Íslandi skuli skilað í minnst tveimur eintökum til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Þetta er ákvæði í lögum sem á sér langa sögu og þykir mikilvægt.
04/05/2026
Í tilefni þess að tilnefningar til Maístjörnunnar 2026 voru gerðar opinberar skrifaði Lestrarklefinn grein um tilnefndar bækur. Upplestur úr ljóðabókunum verður í Þjóðarbókhlöðu þann 6. maí kl. 11:30. Verið velkomin!
Lifi ljóðið - Tilnefningar til Maístjörnunnar - Lestrarklefinn
Maístjarnan eru mikilvæg verðlaun. Það þarf að huga að ljóðinu og það gleður mitt ljóðelska hjarta að því sé sérstaklega fagnað. Í ár fengu s*x frábærar ljóðabækur tilnefningu til verðlaunanna sem Landsbókasafn Íslands og Rithöfundasambandið standa fyrir. Sjötíu lj...
28/04/2026
Tónlistarsafn og hljóð- og myndsafn eru á 4. hæð Þjóðarbókhlöðu. Þar hefur verið komið fyrir lítilli sýningu í minningu Björgvins Halldórssonar.
27/04/2026
Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í tíunda sinn í maí.
Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabóka útgefinna 2025 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.
Tilnefndar bækur eru:
Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt
Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning
Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt
Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt
Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning
Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi: Mál og menning
Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025, alls 70, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafnsins og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Háskóla Íslands.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 20. maí.
Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.
Tilnefndar bækur eru nú á sýningu í Þjóðarbókhlöðu.
16/04/2026
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, minnir á lög um skylduskil í kjölfar umræðu um bækur í ruslagámum. Hún telur að þessi lög geti friðað samvisku fólks sem þarf að henda bókum, þar sem lögin tryggja að eintök af útgefnum verkum varðveitist.
Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum - Vísir
„Þótt þitt eintak af bók fari í ruslið þá glatast hún ekki að eilífu,“ segir Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, sem í kjölfar umræðu um fagurbókmenntir í Sorpugámum telur rétt að minna á lög um skylduskil sem mögu...
17/03/2026
Samningar Landsaðgangs um birtingar í blönduðum tímaritum
Birgir Björnsson, verkefnisstjóri Landsaðgangs
18. mars kl. 15:00–15:30
Tungumál: íslenska
Á vegum Landsaðgangs (hvar.is) hefur Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn gert samninga við fjóra útgefendur (Elsevier, Karger, Sage og Springer Nature) um birtingar í opnum aðgangi í blönduðum tímaritum (e. hybrid journals).
Stutt almenn kynning á möguleikum íslenskra rannsakenda og doktorsnema að birta greinar hjá þessum útgefendum.
Nánari upplýsingar um kynninguna má finna á https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11562
09/03/2026
EndNote kynning fyrir rannsakendur og doktorsnema HÍ
11. mars kl. 15:00-15:30
Tungumál: íslenska
EndNote er hugbúnaður sem notaður er til að halda utan um heimildir og heimildaskrár.
Sýnt verður hvernig nýta má EndNote til að halda utan um heimildir og tilvísanir í ritverkum. Einnig verður sýnt hvernig á að setja heimildir inn í forritið úr ýmsum gagnasöfnum.
Til að kynningin nýtist öllum sem best er æskilegt að hver og einn setji upp EndNote-hugbúnaðinn í sinni tölvu áður en kynningin hefst. Hægt er að fá hugbúnaðinn hér: https://thjonusta.hi.is/hc/is-is/articles/26744074011035-EndNote
Kennari: Erlendur Már Antonsson, upplýsingafræðingur hjá Lbs-Hbs
Nánari upplýsingar um kynninguna má finna á https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11541
05/03/2026
Viðurkenning Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025 var afhent í Þjóðarbókhlöðu miðvikudaginn 4. mars. Viðurkenninguna hlaut Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir fyrir bókina Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Í umsögn dómnefndar segir m.a. "Rímur af Mábil sterku hafa lengi legið óbættar hjá garði og hafa hvorki verið rannsakaðar né gefnar út fyrr en nú og þótt það sama megi segja um fleiri rímur er sérstaða þessara rímna sú að kona er aðalsöguhetjan og því má segja að þetta sé einnig umtalsvert innlegg í hina vanrannsökuðu sögu kvenna í íslenskum bókmenntum." Verðlaunaritið verður til sýnis í Þjóðarbókhlöðu næstu mánuði.
20/02/2026
Verkefnavaka Háskóla Íslands verður haldin fimmtudaginn 26. febrúar frá 17-21 í útibúi Lbs-Hbs í Sögu. Á verkefnavöku geta allir nemendur sem eru með verkefni í smíðum komið og sótt stuðning og aðstoð.
Vakan er samstarfsverkefni Lbs-Hbs, Nemendaþjónustu HÍ, Ritvers og Heilbrigðisvísindabókasafns LSH. Sjá nánar á https://leidarvisar.is/verkefnavaka