Góðan og blessaðan sólskins daginn elsku vinir.
Flokkur fólksins
Flokkur fólksins er málsvari þeirra sem búa við fátækt og óréttlæti á Íslandi.
15/06/2026
Samþykkt var í dag að lækka fyrirhugaða launahækkun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna úr 9,7% í 3,5%.
Flokkur fólksins studdi lækkunina að sjálfsögðu, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsókn greiddu ekki atkvæði.
Með frumvarpinu var komið í veg fyrir 9,7% hækkun og sett hóflegra viðmið um laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna.
15/06/2026
Fatlað fólk í samgönguáætlun
Í samgönguáætlun sem nú er til umræðu á Alþingi er í fyrsta skiptið fjallað sérstaklega um fatlað fólk í tengslum við samgöngur. Áætlunin samræmist vel áherslum Flokks fólksins í samgöngumálum, um öryggi, jöfnuð milli landshluta, aðgengi að þjónustu og raunhæfa fjármögnun.
Þetta er fyrsta samgönguáætlunin sem lögð er fram á Alþingi í s*x ár. Samgöngur snúast ekki eingöngu um vegi, hafnir og flugvelli heldur einnig fjarskipti. Áreiðanlegt farsíma- og netsamband er ekki síður mikilvægur hluti af grunninnviðum samfélagsins.
🔹 Viðhald og uppbygging
Áratugum saman hefur verið skortur á viðhaldi vega landsins og því hefur safnast upp mikil viðhaldsskuld á þessum mikilvægu innviðum. Tekið er á þessum veruleika í samgönguáætluninni þar sem uppbygging, viðhald, öryggi og þjónusta eru sett í forgang. Viðhald og uppbygging innviða er félagslegt réttlætismál.
Samkvæmt áætluninni verður farið í brýnar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Í henni er einnig skýrt markmið um að styrkja búsetu um land allt. Uppbygging um allt land miðar að því að auka öryggi vega og aðgang að þjónustu, meðal annars með styttingu vegalengda milli staða, fækkun malarvega og bættum tengingum milli byggðarlaga. Markmiðið er að allir landsmenn komist leiðar sinnar með öruggum hætti og geti sótt vinnu, skóla og þjónustu óháð búsetu.
🔹 Velferðar- og réttlætismál
Á bak við hvert alvarlegt slys á vegum landsins er fjölskylda sem verður fyrir áfalli. Lífið verður jafnvel aldrei samt. Þess vegna skiptir aðskilnaður akstursstefna á umferðarmestu vegum gríðarlegu máli, sem og fækkun einbreiðra brúa og úrbætur á hættulegum vegköflum. Framkvæmdir sem þessar draga úr hættu á alvarlegum slysum eins og tölfræðin hefur sýnt með Reykjanesbraut.
Samgöngur eru ekki bara vegir. Þær eru forsenda þátttöku í samfélaginu. Í samgönguáætlun er nú einnig talað um aðgengi fatlaðs fólks til jafns við aðra að samgöngum og stefnumótun í málaflokknum. Þetta á líka við um eldri borgara sem þurfa að geta sótt ýmsa þjónustu og tekið þátt í samfélaginu af öryggi og sjálfstæði.
🔹 Raunhæf áætlun
Í stjórnmálum getur verið auðvelt að lofa öllum öllu. Í núverandi samgönguáætlun eru settar fram raunhæfar áætlanir um fjármögnun allra verkefna. Þar er horft til fjölbreyttra leiða og verkefnum forgangsraðað þannig að hægt sé að standa við gefin fyrirheit.
Góðar og öruggar samgöngur eiga ekki að vera munaður sem sumir njóta en aðrir ekki. Þær eru forsenda fjölbreytts samfélags um allt land. Þess vegna er samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar fyrst og fremst áætlun um jöfn tækifæri, aukið öryggi og meiri lífsgæði fyrir fólk um allt land.
- Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
14/06/2026
Tómstundir barna eiga ekki að ráðast af efnahag foreldra.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir fer fyrir hópi sem vinnur að aðgerðum fyrir börn sem búa við fátækt. Þar er meðal annars horft til kostnaðar við íþróttir, frístundir, mót, skólabúðir og önnur gjöld sem geta orðið fjölskyldum þung byrði.
Kolbrún vill að skoðað verði að gera samfélagssáttmála um tómstundaiðkun barna, svo fleiri börn geti tekið þátt, óháð stöðu foreldra.
Sjá nánar ⬇️
14/06/2026
Barnaverndarlögin þurfa að komast áfram
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir fór yfir málefni barna á Sprengisandi, meðal annars skýrslu Ríkisendurskoðunar um farsældarlögin, barnaverndarfrumvarpið sem bíður afgreiðslu á Alþingi og stefnu um farsæld barna til ársins 2030.
Viðtalið er hér fyrir neðan. ⬇️
14/06/2026
Verið hjartanlega velkomin í vöfflukaffi í Fjörgyn 1 (Grafarvogskirkju) frá kl. 13.00-15.00 í dag.
13/06/2026
Verkalýðshreyfingin sýndi ábyrgð í kjarasamningum og samdi hóflega til að stuðla að lægri vöxtum og verðbólgu. Nú þurfa fyrirtækin að gera sitt.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, skorar á fyrirtæki að frysta verð eða lækka. Hann bendir á að fátt bendi til þess að atvinnulífið hafi farið þá leið sem það skuldbatt sig til þegar síðustu kjarasamningar voru gerðir.
Sjá nánar ⬇️
Risaskref fram á við fyrir samgöngur á Íslandi ✅
12/06/2026
Samgönguáætlun afgreidd
Alþingi hefur samþykkt nýja samgönguáætlun, þá fyrstu frá árinu 2020.
Á fyrsta tímabili fara 360 milljarðar í framkvæmdir. Með áætluninni verður ráðist í jarðgangagerð, viðhald vega stóraukið, vetrarþjónusta fullfjármögnuð, farnetssamband tryggt á stofnvegum og malarvegum fækkað um mörg hundruð kílómetra.
Þörfin er mikil og þetta er stórt skref fram á við fyrir samgöngur um allt land.
12/06/2026
Flestir en langt frá því allir eru einhuga um að þeim sem hefur verið synjað um dvalarleyfi á Íslandi verði gert að yfirgefa landið.
Algengast er að fólk sem fær synjun um dvalarleyfi virði þá niðurstöðu stjórnvalda og fari annað hvort sjálfviljugt af landi brott eða þiggi aðstoð yfirvalda til þess. Samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð er gert ráð fyrir að í þeim undantekningartilvikum þar sem fólk sýnir engan samstarfsvilja og vægari úrræði hafa ekki dugað, verði það fólk vistað í sérstakri brottfararstöð.
Sjá grein hér fyrir neðan ⬇️
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Fjörgyn 1
Reykjavík
112
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 16:00 |
| Tuesday | 09:00 - 16:00 |
| Wednesday | 09:00 - 16:00 |
| Thursday | 09:00 - 16:00 |
| Friday | 09:00 - 16:00 |
| Saturday | 09:00 - 16:00 |
| Sunday | 09:00 - 16:00 |
