13/11/2025
Við höfum birt drög að leiðbeiningum fyrir gjaldskyld bílastæði til umsagnar. Á heimasíðu Neytendastofu má finna drögin og upplýsingar um hvernig má senda stofnuninni umsögn.
Drög að leiðbeiningum fyrir gjaldskyld bílastæði
Neytendastofa birti ákvarðanir um merkingar á gjaldskyldum bílastæðum í sumar auk þess sem unnið er að fleiri málum um þessar mundir. Í tilefni þeirra athugasemda sem stofnunin hefur gert og sem hluti af aðgerðum atvinnuvegaráðuneytisins vegna bílastæða hefur stofnunin sett upp ...
01/09/2025
Það er engin tilviljun að veitingahús birta matseðil við inngöngudyr. Samkvæmt verðmerkingarreglum eiga neytendur að fá upplýsingar um verð áður en þjónusta er veitt. Þess vegna eiga veitingahús að birta matseðil með verðskrá við inngöngudyr svo neytendur geti skoðað hann áður en þeim er vísað til sætis.
25/08/2025
Neytendur eiga rétt á því að fá vöru á því verði sem er verðmerkt en ákvörðunin um kaup er alla jafna tekin á grundvelli þess verðs sem er til sýnis. Reglan endurspeglar einnig skyldu seljanda að gæta þess að verðmerkja vörur með réttu verði og ber seljandinn ábyrgð og hallan af því að merkja vöru rangt. Undantekning frá þessu er ef um augljós mistök er að ræða sem meðalneytandinn getur áttað sig á.
18/08/2025
Neytendastofa sinnir verðmerkingareftirliti og skoðar hvort söluvörur séu verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum, s.s. á vefsíðum, inni í verslunum og í útstillingum. Einnig er skoðað hvort að verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg. Í verðmerkingareftirliti í verslunum gerir stofnunin athugasemdir þar sem ástand verðmerkinga er ábótavant og hvatt til úrbóta. Er þeirri skoðun fylgt eftir með annarri heimsókn og hafi fyrirtæki ekki gert fullnægjandi úrbætur á verðmerkingum er gripið til sektarheimilda.
13/08/2025
Neytendastofa vekur athygli á fréttum Fjarskiptastofu og Vöruvaktarinnar um lokun 2G og 3G farsímaþjónustu. Lokunin fer fram í áföngum en á að ljúka í síðasta lagi í árslok 2025. Þetta leiðir m.a. til þess að tæki, s.s símtæki, snjallúr og ýmis vöktunartæki sem aðeins styðja 2G/3G hætta að virka. Hægt er að leita upplýsinga um það hvaða farsímaþjónustu tæki nota hjá framleiðanda.
11/08/2025
Seljendum ber að veita upplýsingar um lögbundin úrræði neytenda vegna galla á söluhlut eða þjónustu. Í lögum eru reglur sem veita neytendum úrræði ef vara sem þeir hafa keypt reynist gölluð auk þess sem kveðið er á um tilkynningarfrest en þar segir m.a. að frestur neytanda til að leggja fram kvörtun sé aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð galla var. Þá má þess geta að það er ekki seljanda að ákveða hvort 2 ára eða 5 ára ábyrgð gildi um tilkynningu galla heldur ræðst það af eðli vöru hverju sinni. Þá þarf seljandi að leiðbeina neytendum um að hægt er að leita til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is) ef upp kemur ágreiningur vegna mögulegs galla.
04/08/2025
Neytendastofu berast fjöldi ábendinga vegna skorts á upplýsingagjöf seljanda og þá sérstaklega á sölusíðum á netinu. Seljendum ber samkvæmt lögum að veita tilteknar upplýsingar um sig m.a. um:
• nafn seljanda og heimilisfang, símanúmer, bréfsímanúmeri og netfangi hans eftir því sem við á, til að neytandi hafi tækifæri til að ná fljótt sambandi við seljanda og eiga samskipti við hann á skilvirkan hátt.
• kennitölu,
• virðisaukaskattsnúmeri
• opinberu skrá sem hann er skráður hjá s.s. firmaskrá, hlutafélagsskrá,
• leyfi og eftirlitsaðila ef starfsemi er háð leyfum,
Upplýsingarnar þurfa að vera settar fram á skýran og greinargóðan hátt og vera aðgengilegar neytanda.
28/07/2025
Í leiðbeiningum neytendastofu er fjallað um upplýsingaskyldu seljenda þegar vara eða þjónusta er boðin til sölu t.d. á netinu. Seljendum í fjarsölu ber að veita ítarlegar upplýsingar og með skýrum og greinargóðum hætti innan hæfilegs frests áður en neytandi verður bundinn af samningi. Mikilvægt er að veita réttar upplýsingar á þessu stigi því þær verða hluti af samningi og skal ekki breytt eftir sölu. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar hér:
www.neytendastofa.is
01/07/2025
Neytendastofa 20 ára í dag þann 1. júlí
Neytendastofa 20 ára
Í dag 1. júlí fagnar Neytendastofa 20 ára afmæli sínu en hún var sett á fót til að auka veg neytendamála og efla þannig neytendavernd.
30/06/2025
Ársskýrsla Neytendastofu 2024 er komin út.
Í skýrslunni er að finna tölfræði afgreiddra stjórnsýslumála ársins auk umfjöllunar um helstu verkefni stofnunarinnar. Þannig er gerð grein fyrir stjórnsýslumálum sem voru fyrirferðamikil á árinu eins og málum tengdum íslenskri tungu, umhverfis- og heilsufullyrðingum og auglýsingabanni á nikótínvörum og rafrettum.
neytendastofa.is
14/02/2025
Landsréttur staðfesti í gær ákvörðun Neytendastofu gagnvart Íslandsbanka, varðandi upplýsingagjöf á neytendalánum og hvort veittar upplýsingar væru í samræmi við skilyrði laga fyrir lántöku og í lánasamningi. Í niðurstöðu ákvörðunarinnar fólust fyrirmæli til Íslandsbanka að bæta úr upplýsingagjöf m.a. um skilyrði fyrir breytingum á vöxtum, upplýsingum um árlega hlutfallstölu kostnaðar, öðrum lánskostnaði og kostnaði vegna greiðslu eftir gjalddaga.
Nánar má lesa um málið hér sem og dóm Landsréttar -
Landsréttur staðfestir úrskurð áfrýjunarnefndar
Landsréttur hefur staðfest úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála og þar með ákvörðun Neytendastofu vegna upplýsingagjafar Íslandsbanka í lánssamningi um neytendalán og stöðluðu eyðublaði.
21/11/2023
Íslenskuátak Neytendastofu
Endilega sendið inn ábendingar séu auglýsingjar ekki á íslensku.
Íslenskuátak Neytendastofu
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Neytendastofa undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um að ráðast í átaksverkefni sem miðar að því að auka vitund fyrirtækja og almennings um íslenskuákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.