01/06/2026
Hæhæ!
Síðasta vikan í almennastarfinu er gengin í garð! Hitum upp fyrir sumarið og gerum gott úr þessu.
Við minnum foreldra/forsjáraðila einnig á að skráning á sumarnámskeið/smiðjur er enn í fullum gangi inn á Abler.
Hlökkum til að taka á móti ykkur
09/04/2026
Fróðir foreldrar: Barnið þitt - kvíði og netöryggi - ATH skráning í hlekk að neðan!
Fróðir foreldrar bjóða upp á fræðslukvöld þriðjudaginn 14. apríl kl. 19:00 í Bíó Paradís.
Fræðsluerindi kvöldsins koma frá Litlu Kvíðameðferðastöðinni og Samfélagslögreglunni.
Fróðir foreldrar er samstarfsverkefni foreldrafélaga grunnskóla í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum, frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar, ungmennaráða Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, íþróttafélaga og þjónustumiðstöðva hverfanna.
Markmið verkefnisins eru:
- Að rödd foreldra og ungmenna innan skólasamfélags hverfanna heyrist.
- Að virkja samtakamátt foreldra sem mikilvægan þátt í forvörnum í uppeldi barna.
- Að nýta mannauð hverfanna og tengja við nærsamfélagið.
- Að standa fyrir fræðslukvöldum byggð á óskum og hugmyndum forelda í hverfunum.
https://forms.office.com/pages/responsepage.aspx?id=4wvtav-mbEyDtbtyvdEAiFlA3CZtOSZLkQ_AAUV18h9UNlkwU0xEMzgzNVdQRUpDQlFWNTJZR0VLNy4u&origin=lprLink&fbclid=IwY2xjawREfqVleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBGc0N4VExoMHB4aFMzclFjc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHp5m2F7bdsidyiC3_TqkV1fojnZ3nbeZNYpznDNMvFJc8zyycYF-Nqtr3ddC_aem_5hWOcUFFLga4G7TvekZT5w&route=shorturl
Please fill out this form
30/03/2026
Opnanir í Frosta yfir páskana fyrir 5-7. bekk! 💛
30/03/2026
Opnanir í Frosta yfir páskana fyrir 8-10. bekk! 💛
09/03/2026
🌸 Farsældarvika fer fram með fjölbreyttri dagskrá og fræðslu á öllu höfuðborgarsvæðinu í þessari viku, dagana 9.–13. mars 2026. Í Reykjavík miðast fræðslan þetta árið að mestu leyti að starfsfólki í skóla- og frístundastarfi.
🌺 Markmiðið er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna.
🌼 Farsældarlögin, sem tóku gildi árið 2022, fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.
🌷 Frétt um farsældarvikuna og aðrar upplýsingar um farsældarþjónustu má sjá í athugasemdum hér fyrir neðan.
04/03/2026
Dagskrá hjá miðstiginu í mars!
04/03/2026
Mars hjá unglingunum í Frosta!
13/02/2026
Á morgun, 14. febrúar, verður Félagsmiðstöðin Frosti 40 ára. Frosti þjónustar alla skóla í Vesturbænum og er með virkt, fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir 10–16 ára.
Félagsmiðstöðvastarf er afar mikilvægt fyrir börn og unglinga. Það er öruggt og jákvætt umhverfi þar sem þau geta styrkt félagsleg tengsl við jafnaldra, fundið hæfileika sína og prófað ný áhugamál. Í félagsmiðstöðvum læra þau að bera virðingu fyrir hvort öðru, vinna saman og taka ábyrgð, sem styrkir bæði félagsfærni og sjálfstraust.
Lýðræðisleg vinnubrögð eru stór þáttur í starfinu. Ungmennin áhrif á dagskrá og skipulag, koma með hugmyndir og taka þátt í ákvarðanatöku í starfinu. Þannig læra þau að láta rödd sína heyrast, bera ábyrgð á eigin hugmyndum og upplifa að þeirra framlag skipti máli.
Í félagsmiðstöðvum starfar fagfólk sem sérhæfir sig í að efla jákvæð félagsleg tengsl ungmenna og leggur áherslu á að vera góð fyrirmynd. Starfsfólk félagsmiðstöðva er til staðar fyrir ungmennin, veitir þeim stuðning í alls konar krefjandi aðstæðum og sýnir að þau skipta máli.
Því er mikilvægt að félagsmiðstöðvastarf sé til staðar fyrir öll börn. Við starfsfólk Frosta erum stolt af því að fá að vera hluti af þessu frábæra starfi sem hefur verið í gangi síðastliðin 40 ár.