Skipulagsstofnun

Skipulagsstofnun

Share

www.skipulag.is Velkomin á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar. Hverju er svarað hér á síðunni?

Hér miðlum við fréttum af starfsemi stofnunarinnar og upplýsingum um framkvæmdir í mati á umhverfisáhrifum og skipulagstillögur sem eru í kynningu. Vinsamlegast athugið að Skipulagsstofnun vaktar síðuna ekki öllum stundum og að spurningar eða ábendingar sem beint er til stofnunarinnar hér á síðunni geta kallað á nánari skoðun. Því er ekki unnt að tryggja að spurningum og ábendingum á síðunni verði

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun 09/03/2026

Skipulagsstofnun hefur nú verið sameinuð nýrri Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, sem tekið hefur til starfa og mun sinna hlutverki og skuldbindingum sem Skipulagsstofnun hafði áður.

Starfsfólk Skipulagsstofnunar þakkar samstarf síðustu ára og væntir góðrar samvinnu áfram undir nýjum hatti HMS.

Við hvetjum alla fylgjendur og áhugasöm um málefni skipulags og umhverfismats að gerast fylgjendur HMS. Sjáumst!

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Skipulagsgáttin, mál nr. 0257/2026 | Botnsvirkjun í Dýrafirði 05/03/2026

Kynning á matsáætlun - Botnsvirkjun í Dýrafirði.
Umsagnarfrestur er til og með 2. apríl 2026

Skipulagsgáttin, mál nr. 0257/2026 | Botnsvirkjun í Dýrafirði Botnsorka ehf, félag í eigu landeiganda jarðanna Botns og Dranga í Dýrafirði, áformar að reisa Botnsvirkjun í Dýrafjarðarbotni. Áætlað er að uppsett afl Botnsvirkjunar verði allt að 3 MW. Virkjunin verður rennslisvirkjun án miðlunarlóna og nýtir hluta vatns Botnsár og Drangaá...

Skipulagsgáttin, mál nr. 0084/2026 | Lagning strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar 04/03/2026

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Samkvæmt 30. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana má kæra ákvörðunina til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 4. apríl 2026.

Skipulagsgáttin, mál nr. 0084/2026 | Lagning strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar Orkubú Vestfjarða ohf. áformar lagningu 33 kV og 11 kV jarðstrengja milli Skutulsfjarðar og Súðavíkur í Álftafirði. Strengleiðin er rúmlega 18 km löng og mun fylgja að mestu vegi og öðrum strengjum. Lagður verður 33 kV jarðstrengur frá tengivirkinu á Skeiði, innan við Ísafja...

Leiðbeiningar um efni matsáætlunar | Skipulagsstofnun 19/02/2026

Skipulagsstofnun hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um forsamráð og efni matsáætlunar

Leiðbeiningar um efni matsáætlunar | Skipulagsstofnun Út er komin Landsskipulagsstefna 2024-2038 ásamt aðgerðaáætlun 2024-2028, útgáfa eftir landfræðilegri skiptingu

18/02/2026

Fyrirhuguð sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefur nú farið í gegnum 2. umræðu á Alþingi og má búast við að það styttist í sameiningu. Sameinuð stofnun mun notast við facebook síðu HMS. Við hvetjum ykkur því til þess að fylgja facebook síðu HMS.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgartún 21
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 13:00