Lyfjastofnun

Directions Website

Lyfjastofnun Við gefum út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi og höfum eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði. nálgast fylgiseðla lyfja á íslensku.

Helsta hlutverk okkar er að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði og tryggja faglega og hlutlausa upplýsingagjöf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Við rekum tvo vefi; www.lyfjastofnun.is og www.serlyfjaskra.is. Í mars 2017 bættist við vefurinn www.lyfjaskil.is sem inniheldur meðal annars gagnlegar upplýsingar um hvernig á að geyma lyf á öruggan hátt og hvernig á að bera sig að við lyfjatiltekt.


Á www.serlyfjaskra.is getur þú m.a. Allir geta tilkynnt aukaverkanir á netinu: http://www.lyfjastofnun.is/Lyfjagat/tilkynna/

Nokkrar gagnlegar greinar um lyf ætlaðar almenningi:

Sala lyfja á netinu er óheimil: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/4930

Hvernig á að geyma lyf og hvernig á að henda þeim?: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/lesum-fylgisedilinn/nr/4847

Gagnlegar upplýsingar um fylgiseðla lyfja: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/Greinar__Utgefid_efni/nr/761

Öryggi við notkun lyfja - Að tilkynna aukaverkanir: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/4912

Fentanýl lyfjaplástrar - öryggi við notkun og förgun þeirra: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5043

Hvað get ég gert til að minnka hættu á aukaverkun fentanýlplástra og alvarlegum afleiðingum þeirra?: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5044

Hvað get ég gert ef vart verður við einkenni alvarlegra aukaverkana eða ofskömmtunar fentanýls: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5048

Varnaðarorð vegna bótoxmeðferða--------------------------------------------------  Miðað við ásýnd á samfélagsmiðlum vir...
14/10/2026

Varnaðarorð vegna bótoxmeðferða
--------------------------------------------------
Miðað við ásýnd á samfélagsmiðlum virðist framboði á bótoxmeðferðum eftir óhefðbundnum leiðum fara fjölgandi. Lyfjastofnun varar eindregið við slíkum meðferðum.

Einungis tilteknir sérfræðilæknar mega ávísa bótoxi [aths. 1], og eingöngu tilteknir heilbrigðisstarfsmenn mega veita fegrunarmeðferðir sem fela í sér inndælingu efna.

Við þetta má bæta að í byrjun september sl. voru s*x manns lagðir inn á spítala í Danmörku með einkenni alvarlegrar eitrunar eftir bótoxmeðferð. Sjá nánar í frétt Lyfjastofnunar frá í september [aths. 2]

Sérfræðingur Lyfjastofnunar útskýrir peptíð----------------------------------------------------  Dr. Hjalti Kristinsson ...
12/10/2026

Sérfræðingur Lyfjastofnunar útskýrir peptíð
----------------------------------------------------
Dr. Hjalti Kristinsson sérfræðingur hjá Lyfjastofnun var til viðtals hjá Ara Brynjólfssyni í þættinum Átakalínum sem birt var hjá DV 10. október sl.

Umræðuefnið var þetta sem allir virðast vera að tala um - peptíð -sem seld eru víða á vefsíðum utan löglegra lyfsölukeðja, og eru sögð geta bætt heilsu og útlit.

Hjalti tekur m.a. fram að þörf sé á mun ítarlegri rannsóknum á peptíðum en til eru, og það að kaupa slík efni með þessum hætti sé ekki áhættunnar virði.

-Tengill í fyrstu athugasemd

Í hádeginu fengum við kynningu á Öráreitni (micro-aggression) frá Jóhönnu Stefáns Bjarkar sem er klínískur sálfræðingur ...
08/10/2026

Í hádeginu fengum við kynningu á Öráreitni (micro-aggression) frá Jóhönnu Stefáns Bjarkar sem er klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd hjá .

Áhugavert erindi og margt sem má hafa í huga fram á veginn til að skapa sem besta andrúmsloftið í kringum sig, ekki síst í vinnunni.

Nú er tæp vika til stefnu til að koma til liðs við okkur í spennandi starf sem verkefnastjóri skráninga í ferlastjórnuna...
07/10/2026

Nú er tæp vika til stefnu til að koma til liðs við okkur í spennandi starf sem verkefnastjóri skráninga í ferlastjórnunarteymi!

Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi til að sinna verkefnastjórnun og umsjón með lyfjaskráningum.

Um 100% starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 12. október.

Engin störf eru í boði hjá Lyfjastofnun sem stendur. Tekið er við umsóknum almenns eðlis á netfangið [email protected]

Þar sem bæði eftirspurn og framboð fegrunarmeðferða sem fela í sér inndælingu efna, svo sem bótox, fer vaxandi er mikilv...
28/09/2026

Þar sem bæði eftirspurn og framboð fegrunarmeðferða sem fela í sér inndælingu efna, svo sem bótox, fer vaxandi er mikilvægt að muna að aðeins sérfræðingar með tilskilin réttindi mega veita slíka meðferð.

Lyfjastofnun varar eindregið við því að leitað sé til aðila sem ekki hafa þessi réttindi þar sem engin trygging er fyrir að rétt sé staðið að meðferðinni, auk þess sem ekki er hægt að tryggja að efnanna hafi verið aflað með lögmætum hætti.

Framboð hvers konar fegrunarmeðferða sem fela í sér inndælingu efna, svo sem bótox, fer sívaxandi. Lyfjastofnun varar eindregið við að leitað sé til annarra en sérfræðinga sem hafa réttindi til að veita þess háttar meðferð

Það var sérstök ánægja að taka á móti Tinktúru, félagi lyfjafræðinema í heimsókn í gær á alþjóðlegum degi lyfjafræðinga....
26/09/2026

Það var sérstök ánægja að taka á móti Tinktúru, félagi lyfjafræðinema í heimsókn í gær á alþjóðlegum degi lyfjafræðinga.

Svo virðist sem þau hafi verið jafn spennt og við því þetta var víst sérlega góð mæting. Við vorum auðvitað mjög ánægð að heyra það!

Framtíð fagsins er björt, svo mikið er ljóst.

Við leitum að verkefnastjóra skráninga í ferlastjórnunarteymi. Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats o...
25/09/2026

Við leitum að verkefnastjóra skráninga í ferlastjórnunarteymi.

Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi til að sinna verkefnastjórnun og umsjón með lyfjaskráningum.

Um 100% starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar á vef okkar

https://www.lyfjastofnun.is/lyfjastofnun/starfsmannamal/storf-i-bodi/

Í dag, 25. september er alþjóðlegur dagur lyfjafræðinga sem Alþjóðasamband lyfjafræðinnar stendur fyrir. Þetta ár er sla...
25/09/2026

Í dag, 25. september er alþjóðlegur dagur lyfjafræðinga sem Alþjóðasamband lyfjafræðinnar stendur fyrir.

Þetta ár er slagorðið "Valdefling lyfjafræðinga fyrir heilbrigðari framtíð". Lyfjafræðingar eru ein aðgengilegasta heilbrigðisstéttin sem auðvelt er að nálgast og fá ráðleggingar hjá, t.d. í apótekum, og full ástæða til að styrkja í því hlutverki.

Hjá Lyfjastofnun starfar stór, frábær hópur lyfjafræðinga sem við erum stolt af.

Til hamingju með daginn öll!

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á lyfjalöggjöf í Evrópu sem mun að lokum taka gildi hérlendis líka. Undirbúningar e...
21/09/2026

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á lyfjalöggjöf í Evrópu sem mun að lokum taka gildi hérlendis líka.

Undirbúningar er hafinn hjá Lyfjastofnun og verður í því skyni haldinn upplýsingafundur fyrir hagsmunaaðila.

Hagsmunaaðilum, þar á meðal markaðsleyfishöfum, heildsölum, framleiðendum, apótekum, sjúkrahúsum og öðrum tengdum aðilum, er boðið að taka þátt í stuttri könnun þar sem óskað er eftir sjónarmiðum um dagskrá og fyrirkomulag fundarins.

🗳

Könnunin er opin til og með 29. september nk.

Address

Vínlandsleið 14
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lyfjastofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share