Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Share

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnir slökkvistarfi og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu.

Við sinnum björgun úr sjó og vötnum ásamt björgun utan vega á okkar starfssvæði. Einnig aðstoðum við önnur slökkvilið í landinu þegar eftir því er leitað, ásamt því að sinna eldum í skipum við land og á hafi úti þegar svo ber við. Slökkvistarfið er fjölbreytt og getur verið allt f rá litlum bruna í ruslatunnu, yfir í stórbruna sem krefst þátttöku allra stöðva SHS og jafnvel aukamannskaps sem kalla

10/06/2026

Nokkrir punktar sem er nauðsynlegt að hafa í huga - sérstaklega ef við erum að fara í sumarhús eða aðra gistingu sem við þekkjum ekki.

Eldvarnir er mikilvægar allsstaðar! 👇👇👇

Photos from Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.'s post 10/06/2026

Góðan dag.

Síðasti sólarhringur hefur verið erilsamur hjá okkur og sjúkrabílar hafa verið sendir í 128 útköll, þar af 32 forgangsverkefni. Dælubílarnir okkar hafa einnig verið á ferðinni og voru þeir sendir í 6 verkefni sem reyndust öll vera minniháttar.

Þrátt fyrir mörg útköll gafst þó tími til æfinga eins og sést á myndunum hér fyrir neðan. Hér eru nokkrir starfsmenn SHS sem voru á vaktinni að fara yfir vinnubrögð í endurlífgun.

Við erum alltaf á vaktinni

09/06/2026

Góðan dag.

Síðasta sólarhringinn voru sjúkrabílar sendir í 103 útköll, þar af 25 forgangsverkefni. Dælubílar voru sendir í 5 verkefni þar af var töluverður eldur í vinnuvél við Sorpu á Álfsnesi.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var mjög mikill og svartur reykur sem lagði frá vinnuvélinni en greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins.

Við erum alltaf á vaktinni

Photos from Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.'s post 08/06/2026

Björnis brunabangsi er í skýjunum eftir sjómannadaginn í gær 🇮🇸 Hann steig á svið bæði í Reykjavík og í Hafnarfirði og vakti mikla lukku🐻
Björnis og félagar fóru meðal annars yfir mikilvægi björgunarvesta og neyðarnúmerið 1-1-2.

08/06/2026

Það tilheyrir að grilla á sumrin ......... en förum alltaf varlega 👇👇

08/06/2026

Góðan mánudag.

Nóg hefur verið að gera síðasta sólahring. Dælubílar hafa sinnt 5 verkefnum og þarf af tveimur umferðarslysum. 4 sjúklingar voru fluttir úr þessu slysum en engin með alvarlega áverka.

Sjúkraflutningarnir voru 82 og voru þar af 32 forgangsverkefni.
Við á A og B vakt slökkviliðsins þökkum fyrir helgina sem hefur farið tiltölulega vel fram.

Farið varlega og eigið góða viku.

07/06/2026

Björnis brunabangsi óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
Hann er spenntur að stíga á svið í fyrsta sinn á Íslandi.
Sjáumst vonandi sem flest á litla sviðinu við Grandagarð kl.13 og á Sjómannasviðinu í Hafnarfirði kl.15.

07/06/2026

Síðasti sólahringur hefur bara gengið nokkuð vel, töluverður erill en engin stórverkefni.

Það kom upp eldur í tveimur grillum á vaktinni en það er nú ekki óalgengt að kvikni í grillum ef þau hafa ekki verið þrifin.
Fita sem safnast í skúffunni getur verið hættuleg

Sjúkraflutningar voru 113 og þar af voru 32 forgangsverkefni. Helgin hefur gengið ágætlega fyrir sig og það lítur út fyrir fallega sunnudag í dag.

Farið varlega og njótið dagsins.

05/06/2026

Góðan dag

Síðasti sólarhringur telur hjá okkur 105 boðanir á sjúkrabílana en engin boðun var á dælubílana sem er virkilega ánægjulegt.

Það er ýmislegt sem gert er á slökkvistöðunum á milli verkefna, mannskapurinn þarf að æfa ýmis viðbrögð eins og meðfylgjandi mynd sýnir þarsem verið er að æfa handbrögðin við að lyfta þungu fargi ofan af einstakling og þarna er notast við 2 lyftipúða sem eru á dælubílunum, tengdir við loftkút sem eru allajafna reykköfunarkútarnir okkar og fargið í þessu tilviki er 10 tonna vatnstankur sem við getum tekið með okkur á eldvettvang þarsem vatn er af skornum skammti.

Eigið góðan dag og farið varlega

03/06/2026

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.

Núna í morgunsárið líkur þessari vaktartörn hjá C vaktinni. Við höfum verið á vakt síðan á föstudag í síðustu viku og förum við nú í frí yfir helgina. En starfsemin heldur áfram hjá SHS og ný og fersk vakt kemur nú inn til starfa.

Má með sanni halda því fram að vel hvött öxi sé skemmtilegt amboð. En hún var eitt helsta verkfæri slökkviliðsmannsins um árabil. Í dag hefur fjöldinn allur af verkfærum leyst öxina af. Og ef ókunnugur skildi litast um í verkfæra geymslu nútíma slökkvibíls þá er líklegt að viðkomandi muni upplifa sig ráðþrota. Að hafa lag á verkfærum og brúk þeirra er stór partur af okkar starfi. Á myndinni má sjá eina slökkvibifreið okkar opna uppá gátt, og glöggir átta sig á því að hvert einasta verkfæri á sinn stað svo fljótlegt sé að taka það til handagagns.

Sjúkrabílar fóru í 136 verkefni og dælubílarnir voru kallaðir út 2 sinnum.

Hvað svo sem þú tekur þér fyrir hendur, þá vonum við hjá SHS að þú eigir ánægjulegan og áfallalausan dag.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Skógarhlíð 14
Reykjavík
105