Hagstofa Íslands

Hagstofa Íslands

Share

Hagstofa Íslands tók til starfa árið 1914 og er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi

Hagstofa Íslands safnar tölulegum upplýsingum um íslenskt samfélag, vinnur úr þeim og miðlar til notenda.

28/05/2026
22/05/2026

Launaleit Hagstofu Íslands hefur verið uppfærð með gögnum fyrir árið 2025. Þar má finna upplýsingar um laun eftir starfaflokki, samanburð á launum karla og kvenna eftir starfaflokki, dreifingu launa eftir starfaflokki og þróun launakapphlaupsins. Sjá hlekk á launaleitina í athugasemd.

13/05/2026

Regluleg mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur árið 2025 📊

Regluleg laun voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði árið 2025. Ef eingöngu er horft til launafólks í fullu starfi voru regluleg laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur.

Sjá nánar í athugasemd 👇

Photos from Hagstofa Íslands's post 10/05/2026

Í dag er mæðradagurinn. Til hamingju með daginn mæður 🤱

05/05/2026

Samið um gagnaskil vegna bókasafnstölfræði 📕

Í gær undirrituðu Sveinbjörg Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Landskerfis bókasafna, og Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri samkomulag um gagnaskil vegna opinberrar hagskýrslugerðar um bókasafnstölfræði.

Samkomulagið leggur traustan grunn að samstarfi stofnananna og opnar á möguleika á frekari framþróun á þessu sviði. Hagstofa Íslands þakkar Sveinbjörgu kærlega fyrir ánægjulega heimsókn og hlökkum við til nánara samstarfs á sviði bókasafnstölfræði í framtíðinni.

05/05/2026

Til hamingju með daginn ljósmæður 👶

Í dag, 5. maí, er alþjóðlegur dagur ljósmæðra og í morgun gaf Hagstofan út nýjar tölur um fæðingar á árinu 2025.
Fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2025 var 4.387 og voru ljósmæður viðstaddar flestar þessar fæðingar.

Sjá nánar í athugasemd 👇

01/05/2026

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins 🪧

Hefð er fyrir því hér á landi og víða erlendis að farið sé í kröfugöngur á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Rúm öld er síðan fyrsta kröfugangan var farin í Reykjavík en það var árið 1923. Síðan hefur sú verið raunin á hverju ári.

Þann 1. janúar árið 1923 voru landsmenn 96.386 talsins en í upphafi þessa árs 394.324. Með öðrum orðum hefur íbúafjöldi landsins tæplega fjórfaldast síðan.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgartún 21a
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:00