Vinstrið

Vinstrið

Share

xA fyrir þig - fyrir Reykjavík - fyrir okkur öll

02/06/2026

Vinstrið er mætt til starfa og til þjónustu reiðubúin!

Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir borgarfulltrúar ásamt Stefáni og Ástu varaborgarfulltrúum.

Sanna mun taka sæti í skóla- og frístundaráði, borgarráði og forsætisnefnd.

Líf í umhverfis- og skipulagsráð og menningarráð.

Stefán í mannréttindaráði og íþrótta- og útilífsráði.

Ásta í velferðarráði og innkaupa- og framkvæmdaráði.

Við hlökkum til að vinna þetta með ykkur kæru borgarbúar með félagshyggjuna að leiðarljósi.

18/05/2026

Kosningabaráttunni er lokið og við í Vinstrinu viljum fyrst og fremst segja takk.

Takk til allra félaga, sjálfboðaliða, velunnara og stuðningsfólks sem lagði sitt af mörkum í þessari baráttu. Takk fyrir tímann, orkuna, samtölin, traustið, stuðninginn og þann kraft sem þið færðuð okkur á hverjum degi. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt.

Vinstrið fékk 9,5% fylgi sem er frábær árangur á tímum þar sem félagslegar áherslur, umhverfisvernd og mannréttindi eiga víða undir högg að sækja. Úrslitin sýna jafnframt að samstaða vinstrafólks skilar árangri.

Við munum halda áfram að vinna að samfélagi þar sem fólk getur búið sér öruggt heimili, haft aðgang að góðri þjónustu og menningarlífi og fundið að það tilheyri samfélagi sem setur fólk í fyrsta sæti. Reykjavík á að vera fyrir okkur.

Baráttan endar ekki á kjördag, núna heldur hún áfram með ykkur. Byggjum upp borg þar sem efnahagslegt og félagslegt réttlæti, mannréttindi og umhverfisvernd eru raunveruleg forgangsmál 🩷

16/05/2026

To the people of Reykjavík!

Today is the big day. The day when we go to the polls and decide together what kind of society we want to build in our city.

We want a city where no one is left behind, where equality is a given, and where people come first.

As yesterdays numbers showed, it‘s a close race. The choice today is clear: We can build a socially just city or risk handling the reins over to the right-wing bloc.

To make real progress – ensuring true housing security, public transport that works, and a greener and more decent environment – we need your support.

Vinstrið, the Left alliance, is made up of incredible people. And we are ready to get to work.

Let's go vote, exercise our right, and vote with courage and heart.

Put an X next to A today and vote for the future!

- Sanna, Líf, Stefán, Ásta, Arna Magnea and Finnur

16/05/2026

Kæru Reykvíkingar

Í dag er stóri dagurinn. Dagurinn þar sem við mætum á kjörstað og ráðum því í sameiningu hvers konar samfélag við viljum byggja upp í borginni okkar.

Við viljum borg þar sem enginn er skilinn eftir, þar sem jöfnuður er sjálfsagður hlutur og þar sem við setjum fólk í fyrsta sæti.

Eins og tölurnar sýndu okkur í gær þá má bókstaflega ekki tæpara standa. Valið í dag er skýrt. Við getum byggt upp félagslega réttláta borg eða átt það á hættu að hægriblokkin taki við stjórnartaumunum.

Til þess að við getum gert góða hluti: tryggt raunverulegt húsnæðisöryggi, almenningssamgöngur sem virka og grænna og vænna umhverfi þurfum við þinn stuðning!

Framboð Vinstrisins er skipað mögnuðu fólki. Við erum tilbúin í verkin.

Mætum á kjörstað, nýtum rétt okkar og kjósum af hugrekki og hjarta.

Setjum X við A í dag og kjósum með framtíðinni!

- Sanna, Líf, Stefán, Ásta, Arna Magnea og Finnur

16/05/2026
16/05/2026

Kjósum með mannréttindum✊🏳️‍🌈

16/05/2026

Öflugar almenningssamgöngur - bjóðum upp á raunverulegt valfrelsi í samgöngum!✊🚴‍♀️

16/05/2026

Við erum öflugur og samheldinn valkostir til vinstri!💥💚

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Bolholt 6
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 16:00 - 20:00
Tuesday 16:00 - 20:00
Wednesday 16:00 - 20:00
Thursday 16:00 - 20:00
Friday 16:00 - 20:00
Saturday 14:00 - 20:00
Sunday 14:00 - 20:00