Byggðastofnun

Byggðastofnun

Share

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni.

Gísli Einarsson er handhafi Landstólpans 2026 | Byggðastofnun 29/05/2026

✨ Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður er handhafi Landstólpans 2026 ✨

Það er Byggðastofnun mikill heiður að veita Gísla Einarssyni samfélagsviðurkenninguna í ár og óskum við honum innilega til hamingju með Landstólpann.

Gísli Einarsson er handhafi Landstólpans 2026 | Byggðastofnun Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður, uppistandari, samfélagsrýnir, blaðamaður, fararstjóri, rithöfundur og lífskúnstner er handhafi Landstólpans 2026.

Ársfundur Byggðastofnunar 2026 28/05/2026

Streymi frá ársfundi Byggðastofnunar má finna hér að neðan 👇

Ársfundur Byggðastofnunar 2026 Dagskrá:13:00 Setning og ávarp stjórnarformanns ByggðastofnunarHa...

Ársskýrsla Byggðastofnunar 2025 | Byggðastofnun 22/05/2026

📙 Ársskýrsla Byggðastofnunar fyrir árið 2025 hefur verið gefin út.

Í skýrslunni er farið yfir helstu áhersluþætti í starfi stofnunarinnar yfir starfsárið og skýrsla stjórnar og ársreikningar lagðir fram.

Blek - Skapandi norðlensk auglýsingastofa sá um uppsetningu skýrslunnar

Ársskýrsla Byggðastofnunar 2025 | Byggðastofnun Ársskýrsla Byggðastofnunar fyrir árið 2025 hefur verið gefin út. Í skýrslunni er farið yfir helstu áhersluþætti í starfi stofnunarinnar yfir starfsárið

Ungmennakall NPA – endurgjöf á verkefnahugmyndir | Byggðastofnun 15/05/2026

📣 Skrifstofa Norðurslóðaáætlunarinnar býður þeim sem eru með verkefnahugmyndir í ungmennakallinu að skila hugmyndum sínum og fá á þær endurgjöf áður en lengra er haldið.

📆 Frestur til að skila inn hugmyndum er til 20. maí og endurgjöf verður veitt 10. júní.

Ungmennakall NPA – endurgjöf á verkefnahugmyndir | Byggðastofnun Skrifstofa Norðurslóðaáætlunarinnar býður þeim sem eru með verkefnahugmyndir í ungmennakallinu að skila hugmyndum sínum og fá á þær endurgjöf áður en

Photos from Austurbrú's post 07/05/2026

💡 Á hinni árlegu Iceland Innovation Week, sem fram fór í Reykjavík í síðustu viku, stóðu landshlutasamtökin í samstarfi við Byggðastofnun fyrir viðburði í Grósku þar sem sjónum var beint að þeirri kraftmiklu nýsköpun sem á sér stað á landsbyggðinni. Þar fengu frumkvöðlar víðs vegar að af landinu tækifæri til að kynna verkefni sín, fyrirtæki og afurðir og sýna þá fjölbreytni og kraft sem einkennir nýsköpunarsenuna í öllum landshlutum.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt viðtal Austurbrúar við Margréti Pollý Hansen, einni af verkefnastýrum nýsköpunarhraðalsins Startup Landið og ráðgjafa hjá Samtök sunnlenskra sveitarfélaga - SASS, um viðburðinn á Nýsköpunarvikunni og hraðalinn. Opnað hefur verið fyrir skráningar í hraðalinn, sem haldinn verður af landshlutasamtökunum í annað sinn í ár.

Frétt í athugasemd um innlit á nýsköpunarvikuna.

Tálknafjörður, nýtt þátttökubyggðarlag í Brothættum byggðum | Byggðastofnun 06/05/2026

📣 Tálknafjörður hefur hafið þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir.

🤝 Byggðarlagið er það sautjánda í röðinni sem hefur þátttöku í Brothættum byggðum frá því að verkefnið hóf fyrst göngu sína á Raufarhöfn árið 2012. Gert er ráð fyrir að verkefnistíminn muni að óbreyttu vara í fimm ár þ.e. til loka maí árið 2031.

Tálknafjörður, nýtt þátttökubyggðarlag í Brothættum byggðum | Byggðastofnun Tálknafjörður hefur hafið þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar sl. að

Framlög vegna óstaðbundinna starfa ná til fleiri ríkisstofnana | Byggðastofnun 29/04/2026

📣 Frá og með 1. maí geta ríkisstofnanir sem eru með starfsemi utan og innan höfuðborgarsvæðisins sótt um framlög vegna starfa sem flutt verða af höfuðborgarsvæðinu.

Framlögin ná til ferðakostnaðar vegna viðveru í höfuðstöðvum viðkomandi stofnunar og vegna kostnaðar við leigu á starfsaðstöðu í vinnustaðaklösum.

Frekari upplýsingar má finna hér 👇

Framlög vegna óstaðbundinna starfa ná til fleiri ríkisstofnana | Byggðastofnun Frá og með 1. maí geta ríkisstofnanir sem eru með starfsemi utan og innan höfuðborgarsvæðisins sótt um framlög vegna starfa sem flutt verða af

Verkefnisstjóri á Tálknafirði | Byggðastofnun 17/04/2026

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Tálknafirði. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða á Tálknafirði og vinnur að eflingu byggðar og mannlífs á Tálknafirði.

Verkefnisstjóri á Tálknafirði | Byggðastofnun Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Tálknafirði. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins

Úthlutun styrkja í tilraunaverkefnunum Raufarhöfn og framtíðinni II og Öxarfirði í sókn II | Byggðastofnun 08/04/2026

📣 Úthlutun styrkja í tilraunaverkefnunum Raufarhöfn og framtíðin II og Öxarfjörður í sókn II

Úthlutað var í annað sinn úr frumkvæðissjóðum í tilraunaverkefnunum tveimur þann 31. mars síðastliðinn
Verkefnin sem hlutu brautargengi að þessu sinni eru fjölbreytt og spennandi verður að fylgjast með framgangi þeirra.

Sjá nánar hér 👇

Úthlutun styrkja í tilraunaverkefnunum Raufarhöfn og framtíðinni II og Öxarfirði í sókn II | Byggðastofnun Úthlutað var í annað sinn úr frumkvæðissjóðum í tilraunaverkefnunum tveimur þann 31. mars sl. Í þetta sinn var úthlutunarhátíðin haldin í félagsheimilinu

Want your business to be the top-listed Government Service in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sauðármýri 2
Sauðárkrókur
550

Opening Hours

Monday 08:30 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 08:30 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 08:30 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 08:30 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 08:30 - 12:00
13:00 - 16:00