02/06/2026
🚔 Húsflutningur gekk vel í nótt
Í nótt stóð lögregla að umfangsmiklu verkefni við að fylgja gríðarstórum húsum um þjóðveg 1 frá Víðidal í V- Húnavatnssýslu og austur að Engimýri í Öxnadal.
Verkefnið hófst um kl. 01:00 og lauk rúmlega 07:00. Flutningurinn gekk vel og án teljandi vandræða. Lögregla vill þakka öllum vegfarendum, flutningsaðilum og öðrum sem komu að verkefninu fyrir góða samvinnu, þolinmæði og tillitssemi á meðan á flutningnum stóð.
Meðfylgjandi myndir eru frá verkefni næturinnar og sýna vel umfang þessara flutninga, þar sem húsin voru það stór að loka þurfti vegum tímabundið á meðan þau voru á ferðinni.
Verkefni lögreglu eru fjölbreytt og þetta var sannarlega eitt af þeim óvenjulegri.
Lögreglan þakkar fyrir skilning og góða samvinnu. 👮♂️
02/06/2026
🔒 Lent í netsvikum eða netglæp? Tilkynntu það!
Þegar brotamenn blekkja fólk til að afhenda peninga, stela upplýsingum, kúga eða áreita á netinu er um netglæpi að ræða. Slík brot eru sífellt algengari og geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þolendur.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netglæp eða tilraun til netglæps er mikilvægt að bregðast hratt við, tryggja þau gögn sem fyrir liggja og tilkynna málið til lögreglu.
Saman getum við aukið öryggi á netinu og dregið úr netglæpum. 💻🛡️
Tekið er á móti tilkynningum á þessari slóð:
Tilkynna netglæp | Ísland.is
Þegar þrjótar blekkja og svíkja pening af fólki, kúga það eða áreita á netinu kallast það netglæpur. Netsvik og stafræn brot eru sífellt að færast í aukana og ...
31/05/2026
Athugið !!! Flutningurinn á þessum húsum verður framkvæmdur í kvöld þ.e.a.s. kl.02:00 eftir miðnætti og aðfaranótt þriðjudagsins 2.júní. Lagt verður af stað úr Víðidal í Húnaþing vestra. !!
🚔 Tilkynning frá lögreglu
Lögreglan vekur athygli á því að næstu nótt verða gríðarlega stór hús flutt landleiðina eftir þjóðvegi 1.
Áætlað er að leggja af stað frá Víðidal í V- Húnavatnssýslu kl. 02:00 í fylgd lögreglu og verður ekið sem leið liggur í Öxnadal.
Húsin eru það stór að engin farartæki munu geta mæst þeim á leiðinni. Af þeim sökum verða vegir lokaðir þar sem nauðsyn krefur á meðan flutningurinn stendur yfir.
Sérstaklega er óskað eftir því að flutningafyrirtæki, atvinnubílstjórar og aðrir vegfarendur sem kunna að vera á ferðinni á þessum tíma taki tillit til flutningsins við skipulag ferða sinna.
Við biðjum vegfarendur um að sýna þolinmæði og virða fyrirmæli lögreglu og fylgdarmanna á leiðinni.
Lögreglan þakkar fyrir skilning og samvinnu.
Ps. Myndin er fyrir athygli og sýnir ekki raunverulegar aðstæður
29/05/2026
📢 Vegna starfsdags er skrifstofa Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra lokuð í dag.
Þurfi fólk á aðstoð lögreglu að halda er bent á að hafa samband við 112
26/05/2026
🌦️ Veðurhorfur fyrir Norðurland vestra næstu daga 🌦️
Það er útlit fyrir fremur svalt og blautt veður víða um land næstu daga. Fólk á ferðinni er hvatt til að fylgjast vel með aðstæðum, sérstaklega á fjallvegum þar sem búast má við slyddu eða snjókomu á köflum. 🚗❄️
Bændur eru sérstaklega hvattir til að huga vel að lambfé næstu daga þar sem spár gera ráð fyrir snjókomu n.k. fimmtudag á Norðurlandi vestra niður í allt að 100 m.y.s., auk kulda og úrkomu sem geta haft áhrif á útigang 🐑
22/05/2026
Í dag fengum við skemmtilega heimsókn frá 2. bekk Húnaskóla 🚔
Við elskum heimsóknir sem þessar og það var gaman að fá að sýna krökkunum starfsemi lögreglunnar á lögreglustöðinni á Blönduósi. Þau fengu meðal annars að skoða fangaklefana, löggubílinn og ýmsan búnað sem lögreglumenn nota í starfi sínu. 👮♀️👮♂️
Að sjálfsögðu fóru allir heim með litabók frá Lúlla Löggubangsa, límmiða og tattoo 📚🐻
Takk kærlega fyrir komuna — við hlökkum til að fá fleiri heimsóknir! 💙
22/05/2026
Þetta rauðblesótta tryppi gengur laust við þjóðveg 1, skammt sunnan við Blönduós. Illa gengur að ná því og ekki hefst upp á eiganda. Því er eigandinn beðinn um að gefa sig fram og sækja þetta gullfallega og eflaust bráðefnilega tryppi.
20/05/2026
🚦Áttu eða notar þú létt bifhjól? Veistu hvaða reglur gilda? 🛵
Létt bifhjól skiptast í Flokk I og Flokk II – og reglurnar eru ekki þær sömu.
Flokkur I (hámarkshraði 25 km/klst.)
✔️ Ökumaður þarf að vera orðinn 13 ára
✔️ Hjálmur er skylda
✔️ Ekki þarf ökuréttindi
✔️ Má aka á hjólastígum þar sem það er heimilt
Flokkur II (hámarkshraði 45 km/klst.)
✔️ Ökumaður þarf að vera orðinn 15 ára
✔️ Krefst AM-réttinda eða B-ökuskírteinis
✔️ Hjálmur er skylda
✔️ Ekki má aka á gangstéttum eða hjólastígum
✔️ Ökutækið þarf að vera skráð og tryggt
Mikilvægt er að þekkja muninn – bæði fyrir eigið öryggi og annarra í umferðinni. Rétt notkun, réttur búnaður og þekking á reglunum skiptir máli 💙
Nánari upplýsingar: https://island.is/lett-bifhjol
Létt bifhjól í flokki I - fræðslumynd (maí 2021)
Hér má finna öryggisleiðbeiningar um notkun léttra bifhjóla í flokki I sem eru stundum einfaldlega kölluð ,,vespur". Um er að ræða vélknúin ökutæki á tveimur...