15/04/2021
Að undanförnu hefur verið mikil ásókn í innritun yngri barna en 18 mánaða, sem er talsvert undir innritunarreglum, og hingað til hafa verið innrituð yngri börn en reglur segja til um, ef aðstæður hafa leyft það. Vegna þessarar miklu aðsóknar er verið að skoða slíkar óskir, meta fjölda umsókna um innritun yngri barna, aldur þeirra og möguleg úrræði.
Úthlutun á leikskólaplássum í Árborg
Sveitarfélagið Árborg hefur nýlokið við að úthluta leikskólaplássum fyrir komandi skólaár. Samkvæmt innritunarreglum sveitarfélagsins er miðað við að börn sem verða tveggja ára á árinu fái leikskólapláss en nú er leitast við að öll börn 18 mánaða og eldri fái pláss...
15/04/2021
Útboð | Klórframleiðslukerfi - Sundhöll Selfoss
Útboð
Sveitafélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið Sundhöll Selfoss - Klórframleiðslukerfi í samræmi við útboðsgögn.
15/04/2021
Hérðasskjalasafn Árnesinga - Húsnæði
Hérðasskjalasafn Árnesinga - Húsnæði
Héraðsnefnd Árnesinga bs. óskar eftir tilboðum í verkið: Héraðsskjalasafn Árnesinga - húsnæði
15/04/2021
Eyrarbakkaljósmyndir Sigurðar kaupmanns
Eyrarbakkaljósmyndir Sigurðar kaupmanns
Sigurður Kristjánsson (1896 - 1977) kaupmaður á Eyrarbakka var áhugaljósmyndari sem tók myndir af sínu nánasta umhverfi hvort sem það var fjölskyldan, heimilið, þorpið eða hátíðarhöld.
15/04/2021
Tilboð í Frístundamiðstöð | Hönnun og ráðgjöf
Auglýsing um útboð
Sveitafélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið Frístundamiðstöð - Hönnun og ráðgjöf í samræmi við útboðsgögn.
15/04/2021
Vekjum athygli á tilkynningu um tímabundnar breytingar á þjónustu sveitarfélagsins
Áhrif hertra sóttvarnaaðgerða á starfsemi sveitarfélagsins
Hertar reglur um sóttvarnarráðstafanir á landsvísu hafa tekið gildi. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin.
15/04/2021
Í dag kl.14:00 verður upplýsingafundur almannavarna vegna eldgossins í Geldingadal og verður honum sjónvarpað á RÚV.
Varðandi upplýsingagjöf þá eru eftirtaldir linkar mikilvægir, hægt er að fylgjast með loftgæðum hér: https://xn--loftgi-tua4f.is/?zoomLevel=7&lat=64.894972....
Mælt er með að nýta ofangreinda síðu til upplýsingar um loftgæði, eins og staðan er núna, þar sem enn er verið að mæla magn SO2 og eru spár sem finna má á vefsíðum Veðurstofunnar og Belgings því enn ekki að gefa rétta mynd af magninu.
Einnig eru góðar upplýsingar inn á síðu Umhverfisstofnunnar https://ust.is/loft/loftgaedi/loftmengun-i-eldgosum/
Umhverfisstofnun | Loftmengun í eldgosum
Margs konar loftmengunarefni geta losnað út í andrúmsloftið í eldgosum og valdið mengun í andrúmsloft, úrkomu, drykkjarvatni og gróðri. Í sumum eldgosum er öskufall helsta vandamálið eins og t.d. í gosinu í Eyjafjallajökli árið 2010. Í gosinu í Holuhrauni 2014-2015 var gasmeng...
16/03/2020
Sveitarfélagið Árborg óskar þess að þeir foreldrar sem eiga nokkurn kost á því haldi börnum sínum heima og koma ekki með þau í leikskóla Árborgar á meðan hertar samkomutakmarkanir gilda, sem er til fyrsta apríl. Foreldrum verða endurgreidd leikskólagjöld vegna þessa hafi þau látið leikskólann vita fyrirfram.
Frístundastarf sveitarfélagsins fyrir börn á skólaaldri fellur niður á meðan á samkomutakmörkunum stendur og endurgreiðslur viðhafðar með sama hætti og fyrir ári síðan.
Athugið að afgreiðslustaðir sveitarfélagsins verða í flestum tilfellum lokaðir almenningi en hægt verður að hafa samband með síma og um internet. Afgreiðslur sveitarfélagsins í Ráðhúsi, Landsbanka og Austurvegi 67 verða lokaðar almenningi á morgun, fimmtudaginn 25. mars, og frekari upplýsingar gefnar út síðar.