05/06/2026
English below...
Á Þingvöllum laugardaginn 6. júní klukkan 17:00 hefst götuhjólakeppni Tinds sem er hluti af fjölædægrakeppni félagsins
Ræsing og endamark verður við veg 361, rétt hjá Syðri-Leirum, og hjólað þaðan inn á veg 36.
Fyrsta ræsing er klukkan 17:00.
Búast má við einhverjum töfum á umferð af þessum sökum en tímasetning var ákveðin út frá því að valda sem minnstri truflun.
Keppt verður í Þingvallahring sem fer eftir vegi 36 austur að Gjábakka svo vestur meðfram norðurströnd Þingvallavatns (vegur 361). Misjafnt er hvað marga hringi hópar taka. Hér má búast við að umferð austur eftir vegi 361 verið stýrt til að auka öryggi keppenda.
Ítarlegar upplýsingar má nálgast á skráningarsíðunni sem má sjá í hlekk í ummælum.
---
A bicycle contest is to be held within Þingvellir National Park Saturday June 6th by Tindar. The competition starts at 17:00. Some interruption in traffic is to be expected.
- The competition will follow the roads within Þingvellir national park. Competitors will start from the park´s camp´s site at Syðri-Leirar and go east after road 36 towards intersection with road number 361. Then they head west on 361 along the northern shore of lake Þingvallvatn to intersection of Valhallarvegur (363) where they go north towards the intersction of 36/361/550.
Those competing in the longest distance will repeat the circle couple of times.
Road 363 towards the parking P5 will be open as usual
Traffic heading east after road 361 after intersection with road 363 will be controlled to guarantee safety for those competing.
01/06/2026
Íslenska ríkinu og þjóðgarðinum barst gjöf!
Í dag var ritað undir gjafaafsal milli erfingja Valdimars Jónssonar og ríkissjóðs um að gefa ríkissjóði eignarhluti fjölskyldunnar í landi Miðfells í Þingvallasveit.
Þetta eru þrír eignarhlutar upp á samtals tæp 15% af landareigninni og stærsti staki eignarhlutur í Miðfelli. Lóðinni fylgja vatns- og veiðiréttindi. Markmið gjafaafsalsins er að tryggja útivistar- og náttúruverndargildi jarðarinnar. Í heild sinni er jörðin talin vera um 2.450 hektarar að stærð og liggur að hluta upp að austasta hluta þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Undir Miðfellsjörðinni er talið að renni um einn þriðji af grunnvatni til Þingvallavatns og jörðin því mjög mikilvægur hluti af vatnasviði og vatnsforðabúri Þingvallarvatns. Af hálfu ríkisins verður umsjón og umsýsla eignarhlutarins í jörðinni færð til Þjóðgarðsins á
Þingvöllum.
Erfingjarnir sem standa að gjöfinni komu saman á Þingvallabænum í dag ásamt fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og Þingvallanefndar þar sem ritað var undir afsal og vitjuðu á eftir um leiði afa og ömmu sinnar hvíla í Þingvallakirkjugarði. Það var einlægur vilji þeirra að ríkið eignaðist þetta land og í dag varð það að veruleika.
14/05/2026
Stýringar og lokanir vegna tónleikahalds 20. júní
Vegna fyrirhugaðra tónleika þann 20. júní næstkomandi í þjóðgarðinum á Þingvöllum vill þjóðgarðurinn koma á framfæri:
Fyrirséð er að verulegur fjöldi gesta muni sækja svæðið heim þennan dag til að upplifa tónlistarviðburðinn Bergmál. Gera má ráð fyrir allt að 20.000 manns yfir daginn og búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Til að tryggja öryggia vegfarenda mun lögregla annast umferðarstjórnun og eftirfarandi veglokanir gilda frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Lokanir verða í gildi: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxahryggjarvegi á tímabilinu frá 15:00 til miðnættis.
Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Bílastæðið á Haki verður opið fyrir almennri umferð til 15:00. Gönguleiðir um Almannagjá verða opnar frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi/Drekkingarhyl. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá/Flosagjá.
Ferðaþjónustuaðilar með farþega geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða ef vilji er til sótt við Flosagjá / Peningagjá (P4). Frá bílastæðinu þar verður einstefna austur úr þjóðgarðinum á vegi 361 meðfram vatni. Athugið að einungis rútuumferð er heimil á vegi 361, en rútur geta sótt gesti sína þar. Umferð um veg 361 lokar eftir klukkan 15:00 fyrir alla umferð aðra en skutlþjónustu tónleikahaldara.
Eftirfarandi bílastæði og aðgengi verða lokuð nema fyrir tónleikagesti.
- Kastalar P2
- Valhöll P5
Eftirfarandi gönguleiðir verða lokaðar fyrir aðra en tónleikagesti.
- Almannagjá norður frá Lögbergi að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.
Tónleikagestum verður vísað á þrjú bílastæði sem eru fyrirframpöntuð, við Brúsastaði, Tæpastíg og á Leirar tjaldstæða flatir við þjónustumiðstöð.
Tónlistarhátíðin hefst klukkan 11:00 við Valhöll en færist svo að Efri Völlum fyrir neðan Öxarárfoss eftir 14:00. Búast má við að umferð í og við þinghelgina muni þyngjast þegar líður á daginn með mögulega tilheyrandi töfum.
Hægt er að nálgast kortið í pdf útgáfu á heimasíðu þjóðgarðsins.
https://www.thingvellir.is/fraedsla/frettir/almennar-frettir/styringvegnakaleo/
27/04/2026
Slysavarnafélagið Landsbjörg og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum rituðu undir samstarfsyfirlýsingu á dögunum.
Viljayfirlýsingin snýr að Björgunarskóla Landsbjargar og hefur það að markmiði að tryggja gagnkvæman aðgang að þekkingu og eflingu verklegrar þjálfunar. Hún felur meðal annars í sér aukið námskeiðahald í þjóðgarðinum, nýtingu umhverfis Þingvalla til verklegrar þjálfunar og samstarf um fræðslu- og öryggismál.
📷🤝 Á myndunum má sjá Örnu Björg Arnarsdóttur, skólastjóra Björgunarskólans, og Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörð, við undirritun samstarfs yfirlýsingarinnar í fallegu vorveðri.
Á sama tíma stóð yfir námskeiðið Vettvangshjálp í óbyggðum þar sem meðal annars landverðir þjóðgarðsins og björgunarsveitarfólk tóku þátt. Slíkt nám nýtist sérstaklega vel þeim sem starfa fjarri hefðbundinni bráðaþjónustu.
08/04/2026
English below...
Þingvellir voru ekki aðeins alþingisstaður Íslendinga, heldur miðstöð fornrar mannabyggðar sem náði frá bökkum Þingvallavatns inn að jöðrum hálendisins. Víða má finna aldagamlar rústir í þjóðgarðinum, þar sem fólk átti sér samastað í hrjóstugu, vatnslausu hrauni, innan um kjarrskóga og hyldjúpar gjár.
Gunnar Grímsson, starfsmaður þjóðgarðsins á Þingvöllum, hefur undanfarinn áratug unnið að markvissri kortlagningu allra minjastaða innan hins friðhelga lands. Fyrir tveimur árum birtist grein eftir Gunnar í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, þar sem fjallað er um leit að fjórum meintum eyðibýlum með flygildum. Greinin ber titilinn Týndu eyðibýlin í Þingvallahrauni og er nú aðgengileg á tímarit.is. (hlekkur í ummælum)
Eyðibýlin höfðu að mestu gleymst í tímans rás og voru jafnvel álitin týnd. Þau kallast Grímsstaðir (eða Grímastaðir): æskuheimili Harðar og Geirs í Harðar sögu og Hólmverja; Litla-Hrauntún í afskekktum útjaðri Bláskóga; Hrafnabjörg við forna leið undir samnefndu fjalli og hinir þjóðsagnakenndu Rótólfsstaðir í örfoka landi norðan Miðfells.
Ljóst er að rústirnar hafa feiknamikið rannsóknargildi og geta eflaust varpað nýju ljósi á daglegt líf á Þingvöllum langt aftur í aldir. Staðirnir geyma þá ekki aðeins sögu þeirra sem þar dvöldu, heldur einnig sögu sjálfrar náttúrunnar og flókins samspils fólks við hana.
---
Þingvellir were not only the location of Iceland's old parliament, but also the centre of a vast pastoral settlement, reaching from the shores of Þingvallavatn to the margins of Iceland's highlands. Old ruins can be found in various locations within the national park, where people dwelled in harsh, arid lava fields within dense birch woodland and bottomless fissures.
Gunnar Grímsson, Þingvellir national park staff member, has for the past decade worked on mapping every archaeological site within the protected area. In 2024, he published an article in Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, where he details a successful effort to locate four supposed farm ruins. The article is titled "Týndu eyðibýlin í Þingvallahrauni" and is now accessible on timarit.is (link in comment).
These sites had gradually faded into obscurity and were even considered lost. Grímsstaðir (or Grímastaðir) is mentioned in Harðar saga og Hólmverja; Litla-Hrauntún hides in the park's remote hinterland; Hrafnabjörg is next to an ancient trail beneath a mountain with the same name; and the fabled Rótólfsstaðir is in a desolate area north of Miðfell.
These sites have significant research value, and can surely help us understand life in Þingvellir through the centuries. The ruins do not only contain the stories of those who once dwelled there, but also the story of nature herself and the intricate relationship between humans and nature.
05/04/2026
Gul veðurviðvörun / Yellow Weather Warning
Veðurstofa Íslands hefur gefið út veðurviðvörun fyrir allt Ísland. Austan stórhríð mun ganga yfir landið. Mikill vindur og snjókoma mun hafa áhrif á færð á vegum um allt land. Veðrið byrjar um morguninn og varir yfir allan daginn. Búast má við að vegir til og frá Þingvöllum geti lokað.
Verum örugg og fylgjumst með síðum eins og
www.vedur.is
www.umferdin.is
www.safetravel.is
---
A yellow weather warning has been issued for all Iceland the Icelandic Met Office. The bad weather will start in the morning and last throughout the day. Strong easterly winds and a lot of snow will have effect on road condition.
Roads to and from Þingvellir might close.
Stay safe and follow sites like
www.safetravel.is
https://en.vedur.is/weather/forecasts/areas/
https://umferdin.is/en