09/02/2025
Undanfarnar vikur hefur Matvælastofnun ráðlagt gæludýraeigendum að reyna að koma í veg fyrir að dýrin þeirra séu í snertingu við villta fugla. Þetta eru þó aðeins ráðleggingar með heilsu gæludýranna í fyrirrúmmi og gæludýraeigendum í sjálfsvald sett hvort þeir leyfi köttum og hundum að vera frjálsum þar sem þeir gætu komist í snertingu við veika fugla. Nú virðist hinsvegar smitálag undanfarnar tvær vikur hafa minnkað og geta gæludýraeigendur endurmetið ákvörðun sína í ljósi þess. Sjá frétt Matvælastofnunar
Fækkun fuglainflúensugreininga
Tilkynningum um dauða fugla og spendýr hefur fækkað mikið undanfarna daga og öll sýni sem rannsökuð hafa verið síðustu tvær vikur hafa verið neikvæð. Í ljó
10/01/2025
Í dag greindist skæð fuglainflúensa, afbrigði H5N5 í öðrum ketti. Sá köttur var með svipuð einkenni og fyrri kötturinn, hita, slappleika og einkenni frá miðtaugakerfinu. Aukning virðist vera nú á að fuglar veikist og drepist og fleiri hafa greinst með fuglainflúensu. Mælt er með að kattareigendur reyni eftir fremsta megni að halda köttum sínum frá fuglum. Sjá nánar á heimasíðu MAST
Annar köttur með fuglainflúensu
Annar köttur hefur greinst með skæða fuglainflúensu H5N5. Líklegast er að kettirnir hafi smitast af fuglshræjum. Töluvert er um tilkynningar um dauða villt
19/12/2024
Þegar jólin eru að ganga í garð þá er gott að rifja upp mögulegar hættur sem geta leynst fyrir gæludýrin og vista í símanum sínum neyðarnúmer vakthafandi dýralæknis https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/oskum-gaeludyrum-gledilegra-jola
01/12/2024
Nú hefur vetur konungur tekið völdin víðast um landið, jólin að ganga í garð og fólk á kannski meira annríkt næstu daga og vikur en oft annars. Dýravakt Matvælastofnunar langar að hvetja hundaeigendur til að forðast að skilja hunda eftir í kyrrstæðum bílum í lengri tíma því tíminn á það til að líða hratt í jólaamstrinu. Ef geyma þarf hund í bíl getur þurft að hlúa sérstaklega vel að þeim með t.d. ullarteppi yfir búr eða kápu ef það á við. Á vef Matvælastofnunar má finna leiðbeiningar fyrir hundaeigendur um flutning og aðbúnað hunda í flutningstæki. https://www.mast.is/is/dyraeigendur/hundahald/hundahald -og-adbunadur-hunda-i-flutningstaeki
20/11/2024
Skæð fuglaflensa greindist í veikum máfi við tjörnina í Reykjavík. Fyrsta greining fuglaflensu á höfuðborgarsvæðinu þetta árið. Vinsamlegast tilkynnið tafarlaust um fund á veikum eða dauðum villtum fuglum til Matvælastofnunar. Varast ber að snerta hræ og handfjatla veika villta fugla. Sjá frétt
Fuglainflúensa í máfi við Reykjavíkurtjörn
Máfur sem fannst í byrjun nóvember við Reykjavíkurtjörn greindist með skæða fuglainflúensu H5N5. Almenningur er beðinn um að tilkynna tafarlaust um fund á
14/11/2024
Einangrunarstöðvarnar og skimun gæludýra sem koma erlendis frá sanna reglulega mikilvægi sitt þegar kemur að því að halda Íslandi að mjög miklu leyti lausu við ýmiskonar smitsjúkdóma og sníkjudýr.
Lungnaormur greinist í innfluttum ketti í einangrun
Við reglubundna sýnatöku á einangrunarstöð fyrir skömmu, greindist lungnaormurinn Aelurostrongylus abstrusus í innfluttum ketti. Þetta er í fyrsta skipti s
04/10/2024
Í dag er alþjóðlegur dagur dýranna, til að minna á og hafa í heiðri réttindi þeirra og velferð. Fyrir 100 árum varð 4. október fyrir valinu fyrir þetta tilefni en dagurinn var dagur heilags Francis of Assisi, verndardýrðlings dýra og vistkerfa.
Auðvitað ber að hafa réttindi dýra og velferð í fyrirrúmmi alla daga ársins, en í dag ætlum við að minnast þess sérstaklega, staldra við til að gleðjast yfir þeim framfaraskrefum sem hafa náðst og setja okkur markmið að gera betur þar sem þess er þörf. Fólk, dýr og umhverfi eru allt órjúfanleg heild, Ein heilsa - Ein velferð
08/08/2024
Afar sjaldgæft er að bjarga stórhvelum eins og sandreyð lifandi af strandstað, en það tókst gleðilega í gær þegar björgunarsveitamönnum tókst að koma á flot tæplega 11 metra skíðishval. Miklar þakkir til Viðbragðsteymis hvalir í neyð, sveitarfélagsins Ölfus og ekki síst björgunarsveitafólksins sem stóð sig afar vel í aðgerðum. Hvalurinn virtist frelsinu feginn og synti á haf út þegar hann losnaði
Hvalurinn laus af strandstað - RÚV.is
Skíðishvalur, sem festist í smábátahöfninni í Þorlákshöfn í morgun, er laus. Björgunarsveitin Björg á Eyrarbakka dró hann á flot á sjötta tímanum.
02/08/2024
Nú telja sérfræðingar líkur séu á kvikuhlaupi eða jafnvel eldgosi við Grindavík á næstu dögum. Út frá þeim mögulegu sviðsmyndum sem Veðurstofa Íslands hefur sett fram gætu aðstæður orðið lífshættulegar. Matvælastofnun beinir því eindregnum tilmælum til allra eigenda eða umráðamanna dýra á svæðinu að koma dýrum sínum þegar í stað á örugga staði þar sem tími til að bregðast við eftir að atburður hefst getur orðið mjög skammur
Uppfært hættustig vegna eldsumbrota á Reykjanesi - tilmæli til umráðamanna dýra
Almannavarnir hafa uppfært almannavarnarstig af óvissustigi upp á hættustig vegna kvikusöfnunar undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands metur sem svo að líkur
13/03/2024
Matvælastofnun vekur athygli á ráðleggingum um fóðrun bakgarðshænsna með matarafgöngum. Bakgarðshænsni eru gjarnan fóðruð með afgöngum úr eldhúsum til að sporna við matarsóun. Það ber hins vegar að gæta fyllstu varúðar til að koma í veg fyrir að sjúkdómsvaldar geta borist í fuglahópinn með fóðrun afganga.
Sárafáir smitsjúkdómar hafa greinst hérlendis í alifuglum og það er skylda okkar allra að varðveita þessa góða sjúkdómastöðu.
Hænsnfuglar eru alætur. Þrátt fyrir það átt þú ekki að gefa þeim hvað sem er. Aðalfæða þeirra á að vera þar til gert fóður ætlað hænsnum. Fræ, afgangar af grænmeti og ber skaltu einungs að gefa hænunum þínum í litlu magni. Matarafgangar eins og pasta, kartöflur og brauð eru ekki hentugt fóður fyrir þær.
Vegna hættu á dýrasjúkdómum er alfarið bannað að fóðra alifugla með kjötleifum alifugla, þó svo afgangarnir hafa verið eldaðir. Þú skalt forðast að matreiða hrátt alifuglakjöt ef þú ert að safna afgöngum fyrir hænsni nema gæta fyllsta varúðar svo afgangar verða ekki fyrir krossmengun frá hráu kjöti. Ekki er ráðlagt að gefa hænum kjöt frá öðrum dýrum, það er ekki heilnæmt fyrir þær. En sé það gert skal þá kjötið ávallt vera hitameðhöndlað.
Þú skalt ávallt gæta fyllsta hreinlætis við söfnum afganga úr eldhúsi fyrir hænsnin þín til að tryggja að þeir komist aldrei í snertingu við hrátt kjöt og hrá egg nema eggin séu úr þínum hænsnahópi.
Hænsnakofinn
Hænsnfuglar eru alætur. Þrátt fyrir það átt þú ekki að gefa þeim hvað sem er. Aðalfæða þeirra á að vera þar til gert fóður ætlað hænsnum. Fræ, afgangar af grænmeti og ber skaltu einungs að gefa hænunum þínum í litlu magni. Matarafgangar eins og pasta, kartöflur og bra...
18/01/2024
Samvinnuverkefni dagsins var mjög gefandi, MAST og Aðgerðarhópur dýraverndunarfélaga fengu heimild almannavarna/lögreglustjóra í dag fyrir að björgunarsveitir færu með eigendum þeirra katta sem urðu eftir við rýmingu vegna eldgossins í Grindavík, til að freista þess að ná kisunum og koma þeim í öruggt skjól hjá eigendum sínum. Af þeim 5 köttum sem vitað var af í bænum náðust þrír og var gagnkvæm gleði katta og eigenda að hittast. Hinar tvær kisurnar sem ekki létu sjá sig og villikisurnar, fengu góða áfyllingu af mat og vatni sem dugar þeim alla vega einhverja daga
31/12/2023
Góð ráð fyrir dýraeigendur fyrir áramótin
Áramótin og dýrin
Nú eru áramótin framundan og áframhaldandi veisluhöld hjá okkur mannfólkinu. Margir fagna áramótunum með skoteldum, með tilheyrandi hvellum og blossum. Fæs