06/04/2026
Gul veðurviðvörun á Austurlandi frá klukkan 19:00 Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland sem tekur gildi mánudaginn 6. apríl klukkan 19:00
Volunteer rescue organisation based in Seyðisfjörður east iceland. Hafir þú áhuga á að styrkja björgunarsveitina Ísólf þá fylgja þær upplýsingar hér að neðan.
Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði er hluti af öflugu neti björgunarsveita og slysavarnardeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Starf björgunarsveitarinnar byggist upp á sjálfboðastarfi og er fjármagnað með fjáröflunum og styrkjum. Reikn 0176-26-5157
Kt: 580484-0349
06/04/2026
Gul veðurviðvörun á Austurlandi frá klukkan 19:00 Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland sem tekur gildi mánudaginn 6. apríl klukkan 19:00
05/04/2026
Útsýnið í Fjarðarheiðarútkalli dagsins, við gerum engan mun á dögunum þegar bregðast þarf við og veita aðstoð, gleðilega páska kæru vinir og velunnarar.
Útkall á Fjarðarheiði í dag vegna fastra bíla og í gær líka en í gær fylgdum við nokkrum bílum til byggða báðum megin Fjarðarheiðar í mjög slæmu skyggni og veðri.
Unimog líður bara nokkuð vel að skella sér á Heiðina í ófærð og óveðri. En það fylgdi sögunni frá ökumönnum trukksins að það væri mjög slæmt veður á heiðinni og slóðin þeirra í gegnum skaflana hefði horfið á 15-20 mínútum.
Fjarðarheiðin er búin að vera ófær eða leiðinleg ansi marga daga í röð núna, nú má veðrið gjarnan fara að róa sig aðeins.
Kæru vinir farið varlega um páskahátíðina, athugið færð og veður vel áður en haldið er í ferðalög.
Gleðilega páska.
23/03/2026
Kort af Íslandi | Map of Iceland www.map.is er í eigu og rekið af Loftmyndum ehf.
Þá er það næsta gula viðvörun, ekki ólíklegt að Fjarðarheiðin verði eitthvað leiðinleg. Förum varlega fylgjumst með veðurspám og tilkynningum.
www.vedur.is
www.umferdin.is
Uppfært:
Athugið að vindmælir á Fjarðarheiði er ekki virkur og hefur ekki verið síðustu 2 daga, þegar svo er getur verið gott að kíkja inn á Færð á Fjarðarheiði. Upplýsingar frá vegfarendum. Þar er stundum einhverjar upplysingar að hafa frá þeim sem hafa farið þar um.
06/01/2026
Gleðilegt ár kæru vinir. Flugeldsalan okkar er opin í dag frá kl 13:00-16:00 í Sæbóli, það er eitthvað til fyrstur kemur fyrstur fær, allt á að seljast verslunin hættir, allavega fram að næstu áramótum...🙃💥💥💥
31/12/2025
Vekjum athygli á að ákveðið hefur verið að fresta áramótabrennu og flugeldasýningu vegna veðurs, nýjar dag og tímasetningar verða auglýstar síðar.
Förum varlega þegar við skjótum upp skoteldunum um miðnættið og fylgjumst vel með glóð og látum terturnar ekki brenna eftirlitslausar þar sem gróður er þurr undir fölinni og gróðureldar fljótir að breiðast út í vindinum ef þeir mögulega kvikna.
Gleðilegt ár þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða
Kveðja
Björgunarsveitin Ísólfur
Áramótabrennum frestað á Borgarfirði, Djúpavogi og Seyðisfirði Vegna slæms veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta áramótabrennum og flugeldasýningum á Borgarfirði, Djúpavogi og á Seyðisfirði.
Gleðilega hátíð kæru vinir.
Það hefur færst í vöxt undanfarin ár að einstaklingar (og fyrirtæki) hafi viljað styrkja sveitina okkar með öðrum leiðum en að þurfa að versla flugelda.
Hægt er að styrkja Björgunarsveitina Ísólf um frjálst framlag með millifærslu í banka.
Bankareikningur okkar er:
0176-26-5157
kt. 580484-0349
Skýring með færslu: Styrkur
Björgunarsveitin er skráð á almannaheillaskrá Ríkisskattstjóra. Styrkir til sveitarinnar eru frádráttarbærir frá skatti og á það bæði við um einstaklinga og fyrirtæki.
Við þökkum kærlega fyrir veittan stuðning til sveitarinnar í gegnum tíðina og eigið góð og örugg áramót.
28/12/2025
Flugeldasalan opnar á morgun 29. des og verður opin sem hér segir.
28/11/2025
Jæja þá er búið að afhenda síðasta stóra neyðarkallinn þetta árið en það voru snillingarnir í verktakafyrirtækinu Þrándur í götu á Seyðisfirði sem styrktu okkur með kaupum á honum og þökkum við þeim kærlega fyrir.
27/11/2025
Þetta eru ekki alltaf bara útköll og fjáraflanir, stundum þarf líka að hafa gaman við kíktum í svona líka ljómandi grillveislu og spjall hjá félögum okkar Björgunarsveitin Jökull í gærkvöldi í húsi þeirra á Hrólfsstöðum á Jökuldal, takk fyrir gott boð kæru félagar.
Stundum þarf bara að slá á létta strengi yfir góðu grilli. 17 manns í húsi í kvöld. Takk fyrir heimsóknina Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði 😀