Slökkvilið Fjallabyggðar

Slökkvilið Fjallabyggðar

Share

Slökkvilið Fjallabyggðar er með tvær starfstöðvar, Ólafsfirði og Siglufirði. 1. Slökkviliðsstjóri í dag er Jóhann K.

júlí 2015 voru hundrað ár liðin frá því Slökkvilið Siglufjarðar hóf að standa varðstöðu. Var þess minnst meðal annars með grein á vef Síldarminjasafnis en þar segir;

"Síðan þá hefur ótalinn fjöldi vöskustu manna samfélagsins ætíð verið viðbúinn því að bruna fyrirvaralaust af stað á næsta brunastað hvar eða hvenær sem hann varð eða verður. Menn með þrautþjálfaða viðbragðs- og aðgerðaáætlun um að

Photos from Slökkvilið Fjallabyggðar's post 13/06/2026

Um helgina hefur unglingadeildin SmáDjarfi haldið Landshlutamót unglingadeilda á Ólafsfirði. Í dag aðstoðaði slökkviliðið deildirnar við að efna til froðubolta og vatnsrennibraut við grunnskólann. Það var mikið fjör og bleyta 🚒

07/06/2026

Sjómenn og fjölskyldur - Til hamingju með daginn ⚓️❤️⚓️

Photos from Slökkvilið Fjallabyggðar's post 01/06/2026

Okkar fólk í þreki 👩‍🚒🚒

Photos from Slökkvilið Fjallabyggðar's post 27/05/2026

Skemmtilegasti tími ársins er runninn upp en það er þegar við útskrifum elsta árgang leikskólans sem aðstoðarmenn slökkviliðsins. Í allan vetur hafa þau fylgst með brunavörnum í leikskólanum á Ólafsfirði og Siglufirði og séð til þess að þær séu í lagi. Til dæmis að slökkvitæki séu á sínum stað, að eldvarnarteppið sé í eldhúsinu og að brunaviðvörunarkerfið sé í lagi.

26/05/2026

Birtum hér áminningu frá kollegum okkar í Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. - Það er mikilvægt að þetta sé gert rétt 🔋🔥🧯

21/05/2026

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í dag tilkynningu um mikinn eld utan við hús á Siglufirði. Hafði eldurinn náð að læsa sér í klæðningu, verönd og svalir. Þá höfðu rúður í húsinu gefið undan vegna hita. Mikið viðbragð var sent á staðinn og tóku slökkviliðsmenn frá Siglufirði og Ólafsfirði þátt í aðgerðum. Örugglega tókst að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu elds en töluverðan tíma tók að tryggja að eldur myndi ekki berast áfram með þaki hússins. Enginn var heima í húsinu þegar eldurinn kom upp. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

04/05/2026

Í dag, 4. maí, er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og -kvenna. Við óskum okkar fólki og öllum slökkviliðsmönnum til hamingju með daginn. 🧑‍🚒🚒🧯💦

Want your business to be the top-listed Government Service in Siglufjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Snorragata 8
Siglufjörður
580