Skógræktarfélag Stykkishólms

Skógræktarfélag Stykkishólms

Share

Skógræktarfélag Stykkishólms var stofnað árið 1947 og eru félagsmenn um 70. Félagið ræktar Tvo reiti; Grensás, Stykkishólmi og Sauraskóg, Helgafellssveit
.

12/12/2025

Á morgun Sauraskógi, 12-15 bílastæði númer 2 🎄🌲

Photos from Snæfellsjökulsþjóðgarður - National Park's post 05/12/2025

Jólatré sem nú prýðir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðar, kemur að þessu sinni úr Sauraskógi, nánar tiltekið úr furureit sem gróðursettur var árið 1977. En úr þeim reit hefur félagið sótt fjölmörg jólatré.

Photos from Skógræktarfélag Stykkishólms's post 15/10/2025

Nú á dögunum settum við niður nokkra staura á göngustígum. Það er gert til að auðvelda fólkinu okkar sem notast við blindrahunda 🦮, að rata um göngustíga félagsins um Grensás. Það gera þau þannig að þau láta hundinn finna staurinn og þá segja þau honum svo að fara til hægri eða vinstri, eftir þvi hvora leiðina þau ætla að fara.

27/09/2025

Minnum á göngu im grensás í tilefni heilsudaga 🏃🌱🌿🏃‍♂️ gangan hefst við skúrana.

Umhverfisganga bæjarstjóra 15/09/2025

Hvetjum fólk til að nýta þessa göngu til að benda á hvar innanbæjar við viljum tré 🌳 🌲🌿🌱. Og óska eftir því að það verði gróðursett meira.

Umhverfisganga bæjarstjóra Umhverfisganga verður í Stykkishólmi dagana 15. til 18. september. Ástæða þess að gangan er í seinna falli þetta árið er að ákveðið var að bíða eftir að ný

Photos from Skógræktarfélag Stykkishólms's post 01/05/2025

Í blíðunni höfum við unnið að því að bæta og laga göngustíga félagsins.

Hér fylgja myndir af vinnu við vesturenda gönguleiðar sem tengir skógrækt við sumarbústaðhverfið Arnarborg.

Í þetta verk höfum við fengið lánuð tæki frá verktakafyrirtækinu BB & synir ehf, og hefur það létt okkur vinnuna mjög.

06/12/2024

Jólaskógurinn verður að þessu sinni í Sauraskógi 🎄🎄🎄

19/11/2024

Við erum með 10 stk. jólatré í pottum til sölu, þau eru ræktuð áaf Ræktunarstöðin Miðvogi Akranesi, tilvalið er að skreyta það yfir jólahátíðina og planta því svo næsta vor í garðinum. 14 þús. krónur stk. vinsamlega pantið hjá formanni, Birni Ásgeiri Sumarliðsyni, eða hér að neðan

Enn eitt sumar að baki með European Solidarity Corps (ESC) sjálfboðaliðunum okkar 14/11/2024

Hér er umfjöllun um sjálfboðaliða Skógræktarfélag Íslands, þau komu og störfuðu á Íslandi í allt sumar og fram á haust. Þar af voru þau í tvær vikur hjá okkur í Skógræktarfélagi Stykkishólms. Öflugur hópur sem skilaði góðum dagsverkum og skildi eftir þekkingu hjá okkur, sem við getum nýtt áfram. Takk fyrir 🌿🙏

Enn eitt sumar að baki með European Solidarity Corps (ESC) sjálfboðaliðunum okkar Í sumar mættu níu sjálfboðaliðar í Úlfljótsvatnsbæinn í stað fimm eins og verið hefur undanfarin ár og því óhætt að segja að sumarið hafi verið mjög annasamt! Verkefnið var, eins og fyrr, unnið í samstarfi við Rannís (landsskrifstofu ESC á Íslandi) og félagasamtök í ...

29/09/2024

Minnum á hlaupið, núna klukkan 11:00, í tilefni af heilsuvikunni. Björg Gunnarsdóttir hefur umsjón með hlaupinu, hlaupið er frá bílaplaninu við nýrækt, Grensás, klukkan 11:00 í dag sunnudag, frábært fyrir alla fjölskylduna 🏆

Photos from Skógræktarfélag Stykkishólms's post 18/09/2024

Sumarið sem leið var gjöfullt fyrir skógarsvæðin okkar. Lagður var nýr 450 metra langur stígur, aðstaða í útikennslustofu fékk upplyftingu, bekkir settir við gönguleiðir, rúmir 100 m3 grisjaðir úr Grensás og ríflega 12 þúsund plöntur gróðursettar víðsvegar um sveitarfélagið, svo eitthvað sé nefnt.

Mikill kraftur fór í gerð stígsins og margir komu þar að. Við viljum þakka sérstaklega Gunna Jóns sem sótti kurl fyrir okkur í Borgarfjörð, Vilhjálmi Diðrikssyni, bónda á Helgavatni sem mokaði kurlinu á bílinn. BB & synir ehf gáfu allt undirlagið í stíginn, ásamt því að grafa og slétta upphaf og enda stígisins.

Takk 🙏 umhverfishópur Sveitarfélagið Stykkishólmur og sjálfboðaliðar Skógræktarfélag Íslands. Stígurinn er fallegur og mikið notaður og ber verkið í alla staði ykkur góða sögu.

Eins og oft áður þá spyrjum við í lokin "Ert þú félagi❓"

Ef já, þá þökkum við þér fyrir að taka þátt í að byggja upp, bæta og viðhalda útivistarsvæðum skógræktarfélags Stykkishólms.

Ef svarið er nei, má bjóða þér að gerast félagi? og taka þátt í starfinu 🌱🌿🌲https://www.skog.is/skraning-i-felog/

Áfram er unnið að stígagerð í Grensás, meira um það síðar 🕜

Want your business to be the top-listed Government Service in Stykkishólmur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Stykkishólmur
340