Íbúalistinn Stykkishólmi og Helgafellssveit

Íbúalistinn  Stykkishólmi og Helgafellssveit

Share

Íbúalistinn býður fram lista í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026 í Stykkishólmi 🌱

Photos from Íbúalistinn  Stykkishólmi og Helgafellssveit's post 23/05/2026

Eftir stutta, snarpa og viðburðaríka kosningabaráttu hefur síðasta vika að mestu farið í að ná andanum aftur, sofa aðeins, drekka kaffi, fara yfir upplifunina og byrja svo rólega að undirbúa næstu skref.

Við hjá Íbúalistanum erum fyrst og fremst ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn, traustið og öll hlýju skilaboðin og símtölin síðustu daga ❤️

Núna tekur við nýr og áhugaverður kafli 😄

Verkefnið núna er að manna nefndir og ráð fyrir komandi kjörtímabil. Við ákváðum snemma að leggja áherslu á að þau sem yrðu kjörnir fulltrúar sem og varafólk yrðu fyrst sett í þau verk, ásamt fólki af listanum okkar, áður en leitað er lengra út í samfélagið.

Okkur finnst mikilvægt að þau sem taka sæti í nefndum og ráðum hafi tíma og svigrúm til að kynna sér málin vel, fylgja þeim eftir og byggja upp góða yfirsýn yfir málefni samfélagsins, frekar en að vera of dreifð. Við viljum leggja áherslu á skýra ábyrgð, fagleg vinnubrögð og vandaða stjórnsýslu, því það skiptir máli fyrir gæði ákvarðana og traust á sveitarstjórninni.

En við vitum líka að þörf er á að leita út í samfélagið eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt með okkur og leggja sitt af mörkum í nefndar- og ráðsstörfum. Fjölbreytt reynsla og ólíkar raddir skipta máli.
Þau sem hafa áhuga eru hvött til að hafa samband við nýkjörna bæjarfulltrúa okkar eða senda okkur skilaboð 😊

Við erum spennt að halda áfram að vinna að þeim málefnum sem við töluðum fyrir í kosningabaráttunni:
gagnsærri stjórnsýslu, ábyrgari fjármálastjórn, faglegri vinnubrögðum, betri nýtingu innviða og samfélagi þar sem tengsl, þátttaka og lífsgæði fá meira vægi.

Nú þegar búið er að róast hjá okkur fannst okkur líka kominn tími til að deila nokkrum óbirtum myndum frá síðustu vikum — frá spilakvöldi, kosningakaffi, kosningavöku og allri þessari ótrúlegu vegferð sem við fórum saman 💙

Takk kærlega fyrir okkur ❤️

16/05/2026

Íbúalistinn býður kjósendum far á kjörstað 💚💙 S.7766206
We offer a lift to the polling station!

16/05/2026

Gleðilegan kjördag 💙💚 Nú hefur kosningakaffi Íbúalistans opnað! Öll hjartanlega velkomin! Opið milli kl 12-18!

15/05/2026

Hér er farið yfir helstu áskoranir í atvinnumálum sveitarfélagsins.
Ólöf Inga og Skarphéðinn settust niður og ræddu stöðuna og tækifærin fram undan og mikilvægi þess að styrkja atvinnulífið 🌱

14/05/2026

Takk fyrir gott kvöld og góðar umræður í pallborðinu 🙌

Mætingin var… já, myndin segir eiginlega meira en mörg orð 💙

Hólmarar og Helgfellingar hafa eðlilega mikinn áhuga á samfélaginu sínu, framtíðinni og umræðunni um hvert við viljum stefna næstu árin — sem er auðvitað frábært og hvetjandi.

Það er alltaf margt sem gleymist eða kemst ekki að á einum fundi og við vitum að sum vilja ræða málin dýpra eða spyrja fleiri spurninga.

Við verðum því áfram til staðar á kosningaskrifstofu Íbúalistans:
Föstudaginn 15. maí kl. 16–20
Laugardaginn 16. maí kl. 12–18

Heitt á könnunni og "meððí"
Verið velkomin að koma við í spjall — hvort sem þið eruð ákveðin, óákveðin eða bara forvitin 💙

14/05/2026

Hvernig er raunveruleg fjárhagsstaða sveitarfélagsins?
Hvað segja tölurnar okkur og af hverju skiptir það máli - núna - fyrir framtíð samfélagsins okkar?

Rannveig Tenchi og Skarphéðinn settust niður og fóru yfir ársreikninginn á mannamáli.
Engar upphrópanir eða hræðsluáróður - en hreinskilin og róleg umræða um stöðuna og mikilvægi þess að við séum meðvituð það hve viðkvæmt staðan er en á sama tíma hægt að snúa okkur við.

Þetta er lengra spjall en venjulega á samfélagsmiðlum — en okkur fannst mikilvægt að gefa þessu málefni tíma 💙

14/05/2026

Í dag kl. 17 eru pallborðsumræður milli framboðanna uppi í tónó - því verða kosningaskrifstofurnar lokaðar í dag.

Verðum með lengri opnun á morgun, föstudaginn 15. maí, í staðin og höfum opið til kl. 20 🙂

Sjáumst í tónó kl. 17 🙌

13/05/2026

Nafn – Guðmundur Valur Valtýsson (Valsi)
Aldur – 76 ára
Starf - Sjómaður

Áhugaverð staðreynd: Ég lenti eitt sinni í lífsháska þegar að báturinn fór á hliðina í Halamiðum.

Vandræðaleg saga: Ég var eitt sinn að kokka úti á sjó þegar ég lenti í því óhappi að það var ekki nægur matur fyrir alla og það var einn sem fékk ekki að borða.

Hverju ertu stolt/ur af: Fjölskyldunni minni.

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór: Slökkviliðsmaður.

Hver er þinn helsti málaflokkur? Málefni eldra fólks.

13/05/2026

Nafn - Rannveig Tenchi Ernudóttir
Aldur - 46
Starf - Kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur

Áhugaverð staðreynd: Ég hef gefið egg, er víst alger gullhæna… já og ég er líka guðfræðingur og yogakennari.

Ég var ættleidd þegar ég var 28 ára og varð þá Óskarsdóttir, var þar áður Ásgeirsdóttir Bergmann…

Vandræðaleg saga: Hver dagur hjá mér eru vandræðalegaheit, ég er t.d. hræðilega léleg að læra nöfn á fólki og rugla fólki líka grimmt saman, sem er oft einstaklega vandræðalegt.

Hverju ertu stolt/ur af: Ég gefst ekki upp og bý yfir mikilli seiglu, hef reglulega snúið erfiðleikum eða vonbrigðum í sigur. Gott dæmi um seiglu (og smá þrjósku) í mér: Ég skráði mig einu sinni í hjólaáfanga í FB til að sleppa við venjulegar íþróttir. Við áttum að hjóla Nesjavallaleiðina að Úlfljótsvatni og um Þingvelli – án mikils undirbúnings. Ég var í engu formi, átti ekki einu sinni hjól svo ég þurfti að fá lánað. Ferðin var í apríl og enn mikill snjór á fjallinu. Flestir í hópnum gáfust upp áður en komið var að fjallinu en ég hélt áfram. Á endanum þurftum við sem eftir vorum að bera hjólin í djúpum snjó (upp að mjöðmum hjá mér). Ég gafst samt ekki upp, ekki fyrr en rétt fyrir skálann, þegar við fengum far síðasta spölinn á pallbílnum.Miðað við aðstæður og mitt form þá er þetta líklega eitt mesta líkamlega afrek sem ég hef gert. Fyrir utan fæðingar barnanna minna!

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór: Mig langaði alltaf að verða manneskja sem lætur hlutina gerast og bætir þá, frekar en bara tala um þá 😄

Hver er þinn helsti málaflokkur: Traust, gagnsæ og skilvirk stjórnsýsla svo samfélagið sé heilbrigt og virki rétt og almennilega.

13/03/2023

Vegna aðstæðna í sveitarfélaginu og samfélaginu öllu telja fulltrúar Íbúalistans ótímabært að hefja framkvæmdir á Víkurhverfi
Á fundi bæjarstjórnar þann 26. janúar 2023 var afgreiðsla bæjarráðs vegna hönnunar fráveitukerfis fyrir nýtt Víkurhverfi lögð fram til staðfestingar. Fulltrúar Íbúalistans sátu hjá og bentu á mikilvægi þess að kostnaðarmat fyrir gatnagerð lægi fyrir. Þau bentu einnig á að ekki væri tímabært að hefja framkvæmdir á þessu ári með tilliti til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, vaxtastigs, verðbólgu og aðstæðna í þjóðfélaginu.
Bókun Íbúalistans frá 9. fundi bæjarstjórnar þann 26. janúar 2023:
“Undirrituð fagna því að unnið sé að kostnaðarmati á Víkurhverfi. Til að fá sem besta mynd þarf einnig að fá kostnaðarmat fyrir gatnagerð. Þegar allur kostnaður við fullnaðarfrágang á hverfinu liggur fyrir er hægt að meta kostnað við fyrsta áfanga þess og hvernig framkvæmdum verði háttað og á hve löngum tíma. Það er enn skoðun okkar að ekki sé tímabært að hefja framkvæmdir á þessu ári með tilliti til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, vaxtastigs, verðbólgu og aðstæðna í þjóðfélaginu.

Íbúalistinn
Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir
Kristján Hildibrandsson
Erla Friðriksdóttir”

Mynd: stykkisholmur.is

Want your business to be the top-listed Government Service in Stykkishólmur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Stykkishólmur