Amtsbókasafnið í Stykkishólmi

Amtsbókasafnið í Stykkishólmi

Share

Amtsbókasafnið í Stykkishólmi er almenningsbókasafn sem bíður upp á fjölbreyttan safnkost, góða þjónustu og notalegt andrúmsloft.

Photos from Amtsbókasafnið í Stykkishólmi's post 08/06/2026

Sumarlesturinn okkar er byrjaður. Krakkar í 1.-4. bekk eru búin að fá lestrarvegabréf en eldri krakkar geta komið á bókasafnið og fengið vegabréf og verið með. Fyrir byrjendur í lestri erum við með fyrstu þrjá lestrarflokkana úr grunnskólanum hjá okkur svo allir geti fundið lesefni við hæfi.

Sjáumst í sumar!

03/06/2026

Það verða tekin nokkur spor í Eyrbyggjurefilinn klukkan 17 í dag. Það eru allir velkomnir að vera með!

11/05/2026

Síðasta handavinnukvöld vetrarins verður hjá okkur kl. 20 í kvöld. Heitt á könnunni og smá með því til að fagna sumrinu.

Verið öll velkomin🧶

10/05/2026

Við fengum oddvita beggja lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu til að mæla með bókum. Það gerðu þeir með bros á vör.

Björn Ásgeir mælir með bókinni Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og Sigurður Grétar með bókinni 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason.

08/05/2026

David Attenborough er 100 ára í dag. Framlag hans til þekkingar á náttúruvísindum er ómetanlegt. Í tilefni dagsins stilltum við upp broti af verkum hans 🌍

Photos from Amtsbókasafnið í Stykkishólmi's post 06/05/2026

Það er búið að vera gestkvæmt hjá okkur í vikunni. Frá mánudegi til þriðjudags funduðu 30 forstöðumenn almenningsbókasafna á hótelinu. Þau skoðuðu líka bókasafnið, fóru í gönguleiðsögn og létu Hólminn heilla sig.

Á miðvikudegi komu svo 35 skólabókaverðir sem voru í vorferð á Snæfellsnesi og gæddu sér á súpu frá Nesbrauði og fræddust um starfsemi safnsins.

30/04/2026

Það veður lokað hjá okkur á morgun en opið á loppumarkaði frá 11 til 14.

24/04/2026

Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Til að gera hann skemmtilegri er kjörið að koma við hjá okkur og ná sér í bingóspjald. Útfylltu bingóspjaldi má svo skila til okkar á þriðjudaginn 28. apríl. Einn heppinn bingóþátttakandi fær verðlaun!

23/04/2026

Gleðilegt sumar kæru vinir. Það er lokað hjá okkur í dag 🌞

Want your business to be the top-listed Government Service in Stykkishólmur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Borgarbraut 6a
Stykkishólmur
340

Opening Hours

Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00
Friday 14:00 - 17:00