Sveitarfélagið Stykkishólmur

Sveitarfélagið Stykkishólmur

Share

Stykkishólmur - bærinn við eyjarnar Stykkishólmur stendur við Breiðafjörð á norðanverðu Snæfellsnesi. janúar 2020 voru þeir rúmlega 1.200 talsins.

Bærinn er í tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Bærinn stendur á Þórsnesi og er bæjarstæðið einstaklega fallegt. Húsin í bænum gefa Stykkishólmi sérstakt yfirbragð, þar sem tekist hefur að varðveita gömlu bæjarmyndina. Bæjarbúar í Stykkishólmi eru í daglegu tali nefndir Hólmarar. 1. Umhverfismál eru mál málanna í Stykkishólmi. Árið 2003 fékk Höfnin í Stykkishólmi Bláfána

Aflraunakeppnin Fjallkonan 12/06/2026

🏋️‍♀️ Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram 13. og 14. júní þar sem margar af sterkustu konum landsins taka á honum stóra sínum. Um er að ræða kraftakeppni kvenna sem fram fer í Stykkishólmi og Snæfellsbæ. Keppnin hefur vakið mikla lukku en hún er nú haldin í þriðja sinn.

🏋️‍♀️ Keppt verður í Stykkishólmi laugardaginn 13. júní og hefjast leikar kl. 12:00 við Stykkishólmskirkju. Íbúar og aðrir gestir hvattir til að mæta og fylgjast með þessari mögnuðu keppni.

Aflraunakeppnin Fjallkonan Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram 13. og 14. júní þar sem margar af sterkustu konum landsins taka á honum stóra sínum. Um er að ræða kraftakeppni kvenna

Notaleg kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms 11/06/2026

💦 Svæðisgarðurinn Snæfellsnes stóð, í samstarfi við sveitarfélagið, fyrir notalegri kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní síðastliðið. Boðið var uppá ljúffengan rabbabaradrykk með ölkelduvatni og lifandi tónlist.

😎 Það voru frændurnir Bæring Nói Dagsson og Bæring Breiðfjörð Magnússon sem sáu um að skemmta sundlaugargestum með ljúfum tónum. Rúmlega 80 manns gerðu sér ferð í sundlaugina og hlustuðu á þessa ungu og efnilegu tónlistarmenn.

☝ Viðburðurinn var hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Notaleg kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms Svæðisgarðurinn Snæfellsnes stóð, í samstarfi við sveitarfélagið, fyrir notalegri kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní síðastliðið.

Sveitarfélagið gefur börnum sólmyrkvagleraugu 11/06/2026

🌑 Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.

😎 Sveitarfélagið Stykkishólmur afhenti á dögunum leik- og grunnskóla sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum.

☀️ Með gleraugunum vill sveitarfélagið tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruatburði á öruggan hátt. Skólarnir hafa nú þegar komið gleraugunum til nemenda sinna.

ℹ️ Á vefnum solmyrkvi.is má finna allar helstu upplýsingar um almyrkvann, þar á meðal sérstakar upplýsingar um öryggi augna.

Sveitarfélagið gefur börnum sólmyrkvagleraugu Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, h

Gjaldtaka á hafnarsvæði hefst á ný 15. júní 10/06/2026

🚗 Gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi hefst á ný mánudaginn 15. júní nk. Tilgangur gjaldtökunnar er sem fyrr að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu.

ℹ️ Í kjölfar samráðs við ferðaþjónustuaðila á svæðinu hefur sú breyting orðið á fyrirkomulagi gjaldtöku að gjaldskylda er aðeins á stóra bílaplaninu við minnismerkið á heimleið, bílastæðum undir Súgandisey og á Stykkisbryggju, þar sem rútustæði eru. Ekki verður gjaldskylda á skammtímastæðum fyrir framan hafnarvogina. Þá hefur sveitarfélagið leigt ferðaþjónustuaðilum á hafnarsvæðinu bílaplanið þar sem söluvagnarnir standa en þar munu þeir ferðaþjónustuaðilar bjóða viðskiptavinum sínum frí bílastæði.

🅿️ Greinargóðar merkingar vegna gjaldtökunnar verða settar upp á hafnarsvæðinu að morgni dags 15. júní.

👇 Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

Gjaldtaka á hafnarsvæði hefst á ný 15. júní Gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi hefst á ný mánudaginn 15. júní nk. Tilgangur gjaldtökunnar er sem fyrr að bæta nýtingu bílastæða, stýra u

Ný bæjarstjórn tekin til starfa 10/06/2026

✅ 49. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fór fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. Þetta var fyrsti fundur eftir sveitarstjórnarkosningar og því fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar. Á dagskrá fundar voru að mestu hefðbundin mál í kjölfar kosninga.

ℹ️ Skipaðir voru nefndarmenn í skipulagsnefnd, skóla- og fræðslunefnd, kjörstjórn og fulltrúa sveitarfélagsins á vettvangi Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þá var Björn Ásgeir Sumarliðason kjörinn forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs var kjörinn Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir

🤝 Á fundinum var Jakob Björgvin S. Jakobsson endurráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðningin var samþykkt samhljóða.

🎬 Fundir bæjarstjórnar eru sendir út í beinni útsendingu á youtuberás sveitarfélagsins og eru einnig aðgengilegir þar eftir á.

Ný bæjarstjórn tekin til starfa 49. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fór fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðin. Þetta var fyrsti fundur eftir sveitarstjórnarkosningar og því fyrsti fundu

Kvöldsundstund í Sundlaug Stykkishólms 08/06/2026

💦 Notaleg kvöldsundstund verður í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní milli kl. 20:00 og 22:00. Notaleg samvera, lifandi tónlist og hressandi drykkur í boði fyrir viðstadda. Um er að ræða notalega samverustund sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna. Athugið að frítt er í sund á þessum tíma.

☝ Viðburðurinn er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Kvöldsundstund í Sundlaug Stykkishólms Notaleg kvöldsundstund verður í Sundlaug Stykkishólms þann 9. júní milli kl. 20:00 og 22:00. Notaleg samvera, ljúf tónlist og hressandi drykkur í boði fyri

07/06/2026

⚓️ Sjómannadagskveðja frá Sveitarfélaginu Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur sendir öllum sjómönnum, fjölskyldum þeirra og þeim fjölmörgu sem starfa við sjávarútveg og hafsækna starfsemi sínar bestu kveðjur og þakkir.

Saga Stykkishólms og samfélaganna við Breiðafjörð er samofin sjónum. Kynslóðir sjómanna hafa lagt grunn að atvinnulífi, velferð og uppbyggingu samfélagsins með dugnaði, þrautseigju og hugrekki. Á þessum degi minnumst við einnig þeirra sem hafa farist á sjó og sendum aðstandendum þeirra hlýjar hugsanir og kærleikskveðjur. 🫶

Við þökkum öllum þeim sem sækja sjóinn og vinna störf tengd hafinu fyrir þeirra mikilvæga framlag til samfélagsins og þjóðarinnar allrar.

Við óskum ykkur öllum gleðilegs Sjómannadags. ⚓️🌊

Sjá dagskrá sjómannadags í Stykkishólmi hér fyrir neðan
👇

Dagskrá fyrir Sjómannadag Stykkishólmi 2026 sunnudaginn 7. Júní. 🇮🇸

Blóm verða lögð að minnisvarða látinna sjómanna í Stykkishólmskirkjugarði klukkan 10:15 og þaðan haldið að minnisvarðanum við bryggjuna þar sem einnig verða lögð blóm kl. 10:30.

Sjómannadagsmessa klukkan 11 í Stykkishólmskirkju. Sr. Ursula Árnadóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Björgunarsveitin Berserkir tók að sér að panta og leggja blómsveiga við minnisvarðana, þau sem vilja leggja því lið er bent á söfnunarreikning fyrir sjómannadag, reikningurinn er í vörslu Berserkja.

0357-22-008536
610180-0789

Það sem safnast umfram kostnað við blómsveigana fer í viðhald á minnisvarðanum niðrá höfn, m.a. kaup á ljóskösturum sem eru ónýtir.

Björgunarsveitin Berserkir óskar öllum gleðilegs sjómannadags og sérstaklega til fólks sem starfar á og við sjó 🇮🇸

Sveitarfélög við Breiðafjörð mótmæla ákvörðun innviðaráðherra 05/06/2026

🚢 Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna ákvörðunar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk.

☝️ Í ályktuninni harma sveitarfélögin og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun og því fordæmi sem hún kann að skapa. Sveitarfélögin leggja áherslu á að þau hafi ávallt sýnt því fullan skilning að Baldur gegni hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp, líkt og samningar gera ráð fyrir. Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki þar sem Baldur er færður úr siglingum á Breiðafirði til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja.

☝️ Sveitarfélögin telja að ákvörðunin hafi veruleg áhrif á samgöngur, vöruflutninga, atvinnulíf og þjónustu við samfélögin við Breiðafjörð, ekki síst Flatey, og að hún beri vott um alvarlegt skeytingarleysi gagnvart þeim samfélögum sem reitt hafa sig á þjónustu ferjunnar og um árabil unnið að eflingu samgangna og byggðafestu á svæðinu.

☝️ Í ályktuninni er jafnframt ítrekað að mikilvægt sé að ekki verði vikið frá þeim samningsforsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf og að þær forsendur og þau mörk sem mótast hafa í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna við Breiðafjörð um hlutverk ferjunnar verði virt framvegis.

👇 Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan.

Sveitarfélög við Breiðafjörð mótmæla ákvörðun innviðaráðherra Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna ákvörðunar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarð

Photos from Sveitarfélagið Stykkishólmur's post 04/06/2026

👏 Drengirnir í Sót opnuðu Sátuna, rokkhátíð í Stykkishólmi, kl. 16:00 í dag við mikil fagnaðarlæti viðstaddra.

😎 Meðlimir Sót koma frá Stykkishólmi og Akureyri. Hljómsveitina skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari ásamt norðlendingunum Arnari Smára Sigurðssyni trommuleikara, Aroni Frey Ívarssyni söngvara og Daníel Hrafni Ingvarsyni gítarleikara.

🤟 Hljómsveitin Sót stóð uppi sem sigurvegari Wacken metal battle Iceland 25. apríl síðastliðinn og tryggði sér þannig opnunaratriði Sátunnar og farseðil á Wacken Open Air í Þýskalandi, sem er eins stærsta og virtasta þungarokkshátíð í heimi. Hátíðin fer fram 29. júlí - 1. ágúst og er búist við u.þ.b. 85.000 gestum frá yfir 80 löndum.

✌️ Sátan fer fram í íþróttamiðstöð Stykkishólms dagana 4. - 6. júní. Tónleikar hefjast kl. 16:00 dagana þrjá og standa fram yfir miðnætt. Meðal hljómsveita sem koma fram á hátíðinni í ár eru Power Paladin, Stripshow, Sign og Sólstafir.

Bekkjaganga í Stykkishólmi 04/06/2026

🟣 Þriðja árið í röð standa Alzheimer samtökin fyrir svokallaðri bekkjagöngu og að þessu sinni verður gengið á nokkrum stöðum á landinu, m.a. í Stykkishólmi.

🟣 Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.

🟣 Í Stykkishólmi verður gengið frá fjólubláa bekknum við Ráðhúsið, að bekknum við Samkomuhúsið og áfram að bekknum við Sýsluskrifstofuna. Gangan fer fram laugardaginn 6. júní kl. 13:00.

Sjá nánar hér 👇

Bekkjaganga í Stykkishólmi Þriðja árið í röð standa Alzheimer samtökin fyrir svokallaðri bekkjagöngu og að þessu sinni verður gengið á nokkrum stöðum á landinu, m.a. í Stykkishólmi.

Want your business to be the top-listed Government Service in Stykkishólmur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hafnargötu 3
Stykkishólmur
340

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00