Pysjueftirlitið

Directions Website

Pysjueftirlitið Hér birtast allar upplýsingar tengdar pysjueftirlitinu
(1)

Við nálgumst 4000, náum við því um helgina?
04/09/2026

Við nálgumst 4000, náum við því um helgina?

3373 pysjur hafa verið skráðar í Pysjueftirlitið í ár. Höldum áfram að vera dugleg að skrá pysjurnar á lundi.is við setj...
01/09/2026

3373 pysjur hafa verið skráðar í Pysjueftirlitið í ár. Höldum áfram að vera dugleg að skrá pysjurnar á lundi.is við setjum svo fleiri myndir inn fljótlega.

25/08/2026
Nú hafa 258 pysjur verið skráðar í pysjueftirlitið þar af hafa 69 verið vigtaðar. Við hvetjum alla til að skrá pysjurnar...
17/08/2026

Nú hafa 258 pysjur verið skráðar í pysjueftirlitið þar af hafa 69 verið vigtaðar. Við hvetjum alla til að skrá pysjurnar inn á vefsíðuna

lundapysjur

Meðan við bíðum eftir fleiri pysjum er ekki úr vegi að rifja upp síðasta pysjutímabil, en það var það lengsta frá upphaf...
11/08/2026

Meðan við bíðum eftir fleiri pysjum er ekki úr vegi að rifja upp síðasta pysjutímabil, en það var það lengsta frá upphafi Pysjueftirlitsins. Fyrsta pysjan í fyrra fannst þann 29. júlí en sú síðasta fannst þann 2. október og náði því tímabilið yfir rúmar 9 vikur. Hámarkinu var náð þann 27. ágúst þegar 283 pysjur voru skráðar. Meðallengd pysjutímans er 38 dagar yfir þessi 23 ár sem Pysjueftirlitið hefur verið starfrækt.
Heilarfjöldi pysja skráðar inn á www.lundi.is árið 2025 var 3283 pysjur. Starfsmenn Náttúrustofu Suðurlands höfðu spáð um 3000 pysjum og voru þau því nokkuð sannspá. Alls voru 1045 pysjur vigtaðar og var meðalþyngd þeirra í lægri kantinum eða 243 grömm. Meðalþyngdin árið 2024 var mun betri, eða 308 grömm. Meðalþyngd allra pysja frá upphafi hefur verið 264,5 grömm.
Eins og sjá má á gröfunum sem Rodrigo Martinez Catalan vann fyrir okkur, þá voru pysjurnar í fyrra nokkuð færri en árin á undan og auk þess léttar. Langur pysjutími, lág meðalþyngd og fáar pysjur bendir allt í þá átt að skortur hafi verið á góðu æti fyrir pysjurnar.
Litlar og dúnaðar pysjur fengu umönnun hjá Sea Life Trust og sömuleiðis slasaðar og olíublautar pysjur. Alls voru það 30 pysjur sem voru olíublautar og þurfti að hreinsa.
Bestu þakkir til þeirra sem skráðu pysjurnar sínar og tóku þátt í þessu verkefni, sem gefur okkur ótrúlega mikilvægar upplýsingar um pysjurnar.

Fyrsta pysjan fundin! Það voru systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur sem fundu þessa flottur pysju sem sem vó 280 grömm....
08/08/2026

Fyrsta pysjan fundin!

Það voru systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur sem fundu þessa flottur pysju sem sem vó 280 grömm. Pysjan fannst á pallinum hjá ömmu þeirra og afa á Illugagötuni.

Pysjutíminn er því formlega hafin, við hvetjum alla til að skrá pysjurnar á lundi.is svo hægt sé að fylgjast með fjöldanum. Það er enginn skylda að vigta en þeir sem hafa tök á endilega að gera það.

Address

Vestmannaeyjar

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pysjueftirlitið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share