Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum

Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum

Share

Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja var stofnað 6.desember árið 1932. Markmið síðunnar er að upplýsa félagsfólk og áhugasama um stefnu og verkefni félagsins.

Félag Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum's post 12/06/2026

Miðvikudaginn 3. júní síðastliðinn fór fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir boðaði til fundar þar sem hún er sá fulltrúi sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn en hún hefur setið í bæjarstjórn Vestmannaeyja frá byrjun árs 2015 og hefur því sitt fjórða kjörtímabil sem bæjarfulltrúi. Hildur Sólveig var á fundinum kjörin forseti bæjarstjórnar og Eyþór Harðarson varaforseti.

Á fundinum var ýmislegt á dagskrá en þar bar hæst skipan í ráð og nefndir og ráðning bæjarstjóra.

Eyþór Harðarson var kjörinn formaður bæjarráðs og með honum sitja í bæjarráði Trausti Hjaltason varaformaður og Jón Þór Guðjónsson frá Miðflokki. Arndís María Kjartansdóttir frá Eyjalista situr fundi bæjarráðs sem áheyrnarfulltrúi.

Aníta Jóhannsdóttir var kjörin formaður fræðsluráðs, Kjartan Vídó Ólafsson formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs, Hannes Kristinn Sigurðsson formaður framkvæmda- og hafnarráðs og Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs.

Nýkjörinn formaður bæjarráðs skrifaði svo í lok fundar undir ráðningarsamning við Íris Róbertsdóttir í starf bæjarstjóra sem samþykktur var á fundinum.

Á næstu dögum munum við greina betur frá skipan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráð og nefndir bæjarins.

(Myndir: Óskar Pétur Friðriksson)

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum's post 17/05/2026

Við í Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum þökkum fyrir frábæran stuðning og fyrir það mikla traust sem okkur var sýnt. Við náðum okkar markmiðum og erum ótrúlega þakklát 🥰

Að hljóta 5 af 9 bæjarfulltrúum er skýr staðfesting á stuðningi bæjarbúa og þeirri ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.
Við hlökkum til að starfa af heilindum, krafti og ábyrgð í þágu Vestmannaeyinga næstu fjögur árin því við erum sterkari saman💙

Jafnframt viljum við þakka öðrum framboðum fyrir góða kosningabaráttu og hlökkum til góðs samstarfs á komandi kjörtímabili.

16/05/2026

Sjáumst í kaffi í dag í höllinni milli 14:00-17:00 og svo party í Akoges í kvöld kl 21:00

16/05/2026

Gleðilegan kjördag!

Kosningakaffi Sjálfstæðisflokksins er í Höllinni í dag frá 14:00 - 17:00 og kosningavakan verður í Akóges og húsið opnar kl. 21:00.

Njótum dagsins og setjum X við D.

16/05/2026

"Ég er innilega þakklát fyrir það traust sem mér var sýnt sem bæjarstjóraefni listans og er sannfærð um að reynsla mín og þekking muni nýtast vel í þágu íbúa í þeim verkefnum sem fram undan eru, stórum sem smáum."

í athugasemd er hlekkur á grein eftir Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.

16/05/2026

"Við munum beita okkur af öllu afli í hagsmunamálum okkar gagnvart ríkinu og við munum vinna vel fyrir Vestmannaeyjar og alla Vestmannaeyinga, því við vitum að við erum Sterkari saman."

Í athugasemd er hlekkur á grein eftir Eyþór Harðarsson, Oddvita Sjálfstæðisflokksins.

16/05/2026

"Á þessum tíma hef ég lært að mestur árangur næst fyrir samfélagið ef við náum að virkja orku allra bæjarfulltrúa til að vinna saman að sameiginlegum og uppbyggilegum markmiðum fyrir sveitarfélagið"

í athugasemd er hlekkur á grein eftir Hildi Sólveigu Sigurðardóttur sem skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum's post 15/05/2026

Rikki kokkur sá um hina margrómuðu kosningasúpu í hádegnu í dag. Það er áralöng hefð að vera með súpu daginn fyrir kjördag. Kjósendur létu sig ekki vanta frekar en fyrri daginn og mættu á annað hundrað gestir. Vinsældir súpunar voru svo miklar að Rikki þurfti að reiða fram annan umgang. Við þökkum öllum sem mættu og minnum á kosningakaffið í Höllinni frá kl. 14:00 til 17:00 á morgun kjördag (laugardaginn 16.maí).

15/05/2026

Vote for X-D. For the future of Vestmannaeyjar.

Want your business to be the top-listed Government Service in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Ásgarði
Vestmannaeyjar
900