Náttúrustofa Suðurlands

Náttúrustofa Suðurlands

Share

Facebooksíða Náttúrustofu Suðurlands - South Iceland Nature Research Centre

Photos from BirdLife International's post 01/03/2026
Vulnerability of marine megafauna to global at‐sea anthropogenic threats 30/01/2026

Það er magnað að sjá stærra samhengið sem skapast þegar margir taka höndum saman og sameina mikið af gögnum sbr þessi grein sem var að koma út á prenti.
- It is impressive to see the larger picture created when many authors combine large datasets like in this paper which came out today in paper print, already popular on Research Gate.

Vulnerability of marine megafauna to global at‐sea anthropogenic threats Marine megafauna species are affected by a wide range of anthropogenic threats. To evaluate the risk of such threats, species’ vulnerability to each threat must first be determined. We build on the e...

20/01/2026

https://www.facebook.com/share/p/17osqnPcJz/

NIÐURSKURÐUR FJÁRFRAMLAGA TIL NÁTTÚRUSTOFA

Náttúrustofur landsins eru átta talsins í öllum landshlutum og þar starfa samtals í kringum 45 manns, sem stunda rannsóknir og veita ráðgjöf og fræðslu um náttúrutengd málefni. Stofurnar eru sjálfstæðar einingar, sem reknar eru með grunnframlagi frá ríki, mótframlagi sveitarfélaga og sjálfsaflafé frá ríkisstofnunum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og styrkveitendum.

Náttúrustofurnar fengu kaldar kveðjur frá stjórnvöldum á fjárlögum ársins 2026. Á meðfylgjandi grafi má sjá að verðgildi grunnframlags ríkisins til hverrar náttúrustofu hefur aldrei verið lægra. Náttúrustofurnar vöktu ítrekað athygli þingmanna og fjárlaganefndar á þessu við gerð fjárlaga en ákvörðunin var tekin þrátt fyrir það. Mótframlag sveitarfélaga er hlutfall af framlagi ríkis og lækkar því um sama hlutfall. Þessi niðurskurður til náttúrurannsókna á landsbyggðinni kemur á sama tíma og hliðstæðar stofnanir ríkisins hafa almennt náð svipuðum eða hærri fjárveitingum og þær fengu fyrir efnahagshrunið.

Við á náttúrustofunum teljum þennan niðurskurð óskiljanlegan, því það hefur sýnt sig að fjárfesting ríkisins í þessari starfsemi hefur heppnast mjög vel, bæði faglega og m.t.t. byggðaþróunar. Árið 2024 vann nefnd á vegum umhverfis- orku og loftlagsráðuneytis greiningu á störfum náttúrustofa þar sem helstu niðurstöður voru: „Það er mat viðmælenda að náttúrustofur hafi skilað faglegum, efnahagslegum og samfélagslegum ávinningi inn í þau byggðalög sem þau starfa í og auðgað þar samfélagið. Sérfræðiþekking hefur byggst upp og skapað störf á landsbyggðinni og þannig styrkt atvinnulíf á staðnum. Náttúrustofur njóta virðingar fyrir rannsóknir sínar og fjármagn hefur verið vel nýtt í sérhæfð verkefni sem eru mikilvæg fyrir hvert svæði.“

Ekki hefur fengist nein skýring á þessum niðurskurði eða hverjar forsendur hans eru. Afleiðingar hans eru fækkun stöðugilda og veiking náttúrustofa og þar með veiking viðkomandi samfélags.

Mikilvægt er að leiðrétta ríkisframlag til náttúrustofa, svo þær geti staðið við sín lagalegu hlutverk og haldið áfram með sína vel heppnuðu starfsemi.

Lundavöktun 2025 11/01/2026

Kynning á vöktun lunda fyrir samráðsnefnd um sjálfbærar veiðar, upptaka frá Desember 2025 gerð af Náttúruverndarstofnun og er að finna heimasíðu þeirra

Lundavöktun 2025 Kynning Náttúrufræðistofnunar á Lundavöktun. Erpur Snær Hansen

13/12/2025

Hafrannsóknastofnun tekur þátt í stóru alþjóðlegu verkefni um þörungaeitur í fæðukeðju sjávar á norðurslóðum á tímum loftslagsbreytinga. Um er að ræða viðamikið verkefni um sjálfbæra þróun og fæðuöryggi á norðurslóðum. Loftlagsbreytingar leiða til röskunar á vistkerfum, svo sem útbreiðslu og samsetningu tegunda, tímasetningu lykilatburða eins og vorblóma svifþörunga og röskun á sambandi rándýra og bráðar. Þær hafa í för með sér aukinn vöxt og tíðni blóma svifþörunga. Sumar tegundir svifþörunga eru skaðlegar í fæðukeðju hafsins og eiturþörungar eru hættulegir mönnum. Útbreiðsla eitraðra svifþörungategunda og tíðni skaðlegra blóma virðist hafa aukist undanfarna áratugi og hafa loftslagsbreytingar haft neikvæð áhrif þar á.
Sjá nánar um verkefnið í tengli í athugasemd.

Want your business to be the top-listed Government Service in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Ægisgata 2
Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00