12/06/2026
Eigandi fundinn!
Hundur í óskilum!
Þessi fannst á vappi í bænum og er nú á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum. Engin ól og ekkert örmerki er virðist vera. Ef þú átt hann eða ert með upplýsingar um eiganda endilega komdu því áleiðis til 112.
10/06/2026
Veski í óskilamunum á lögreglustöðinni. Í veskinu eru meðal annars þrúgusykur og tveir lyklar á kippu. Eigandi getur sótt veskið á stöðina.
10/06/2026
UPPFÆRT:
Eigandinn er fundinn. Við þökkum aðstöðina.
Þessi flotti labrador rakki er hér á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum og óskum við eftir eigandanum. Hundurinn er ekki örmerktur og ekki með neina ól. Eigendurnir eru vinsamlegast beðnir um að koma á lögreglustöðina við Faxastíg 42.
09/06/2026
⚽️ TM-mótið hefst á morgun í Vestmannaeyjum! ⚽️
Á morgun hefst TM-mótið, stórt knattspyrnumót fyrir 5. flokk kvenna, en búist er við yfir 1.000 þátttakendum auk fjölmargra aðstandenda og gesta. Því verður mikið líf og fjör í bænum næstu daga.
🚫Athugið sérstaklega Hamarsveginn við knattspyrnuvellina🚫
Eins og sjá má á myndunum er Hamarsvegur aðal aðkomuleið að vallarsvæðinu. Bannað er að stöðva eða leggja ökutækjum á Hamarsvegi, enda getur það skapað hættu fyrir gangandi vegfarendur, tafið umferð og skert aðgengi neyðar- og þjónustuaðila.
Við biðjum ökumenn að:
• Aka varlega og sýna sérstaka aðgát nærri vallarsvæðinu.
• Virða umferðarmerki og lagningarbann.
• Gefa gangandi vegfarendum gott rými, sérstaklega börnum og ungmennum á leið til og frá leikjum.
👮♂️ Lögreglan mun vera með aukið umferðareftirlit á meðan mótinu stendur og fylgjast meðal annars með hraða, lagningum, bílbeltanotkun, farsímanotkun við akstur og öðrum þáttum sem varða umferðaröryggi.
Við óskum öllum mótsgestum góðrar skemmtunar og vonum að þið eigið ánægjulega dvöl í Eyjum. 💚⚽️
04/06/2026
Ísland sendi karla- og kvennalið til þátttöku á Norðurlandamóti lögreglunnar í handbolta sem fór fram í Stavanger í Noregi. 🇳🇴🤾🏼
Í karlaflokki tóku fjórar þjóðir þátt: Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Ísland og í kvennaflokki tóku þrjár þjóðir þátt: Noregur, Danmörk og Ísland.
Lögreglan í Vestmannaeyjum átti fjóra fulltrúa í íslenska hópnum. 👮🏼🇮🇸
Við þökkum fyrir skemmtilegt og vel heppnað mót❕
04/06/2026
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina. Um er að ræða skilaboð sem sögð eru vera frá umferðarlögreglunni og fólki bent á að ýta á hlekk til að greiða sekt. Aldrei hafa borist jafn margar tilkynningar til lögreglu vegna netbrotatilrauna á jafn skömmum tíma og má því ætla að um mjög umfangsmiklar tilraunir sé að ræða.
Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is
Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.
09/05/2026
Fyrr í kvöld naut lögreglan í Vestmannaeyjum aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við að handtaka vopnaðan aðila. Ekki er hægt að veita frekar upplýsingar að svo stöddu.
08/05/2026
Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetur ökumenn til að skipta út nagladekkjum ef þau eru enn undir.☀️
Ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum geta átt von á sekt, sektin er 20.000 krónur fyrir hvert dekk❕❕
05/05/2026
☀️ Frá 1. maí til 1. september:
– Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22
– Börn á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 24
Foreldrar og forráðamenn bera ábyrgð á því að börn fari eftir reglunum. Markmið þeirra er að stuðla að öryggi og velferð barna.
🚓 Nánari upplýsingar um útivistarreglur
Foreldrum og forráðamönnum er heimilt að stytta útivistartíma barna, en ekki lengja hann umfram það sem reglurnar segja til um.
Undantekningar frá reglunum geta átt við:
– þegar börn eru í fylgd með fullorðnum
– þegar ungmenni (13–16 ára) eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu
Aldur barna miðast við fæðingarár, ekki nákvæman afmælisdag.
05/05/2026
Lögreglan í Vestmannaeyjum á instagram🚨
Hingað munum við setja inn myndir, fróðleik og efni frá starfinu🚔🩵