Leikhöllin

Directions Website

Leikhöllin Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Leikhöllin, Playground, Vestmannaeyjar.

14/05/2026

Takk kærlega allir sem komu og gerðu daginn svona skemmtilegan ❤️
Það var ótrúlega gaman að sjá salinn fullan af lífi, hreyfingu, og gleði.

Við viljum senda sérstakar þakkir til Vestmannaeyjabæjar fyrir að leyfa okkur að halda viðburðinn og styðja við verkefnið.

Einnig viljum við þakka Victor Gudmundsson og Hákoni sérstaklega fyrir alla hjálpina. Þetta hefði aldrei orðið að veruleika án þeirra 🙌

Að lokum viljum við þakka Eydís Ísbúð fyrir að koma og vera með hollar og góðar veitingar😋

Þetta sýnir hvað samfélagið í Eyjum getur skapað saman❤️

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu! ⚽️🏰🎶Eftir frábæran fjölskyldudag um daginn ætlum við að bjóða upp á annan skemmtile...
11/05/2026

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu! ⚽️🏰🎶

Eftir frábæran fjölskyldudag um daginn ætlum við að bjóða upp á annan skemmtilegan viðburð þar sem fjölskyldur geta komið saman, hreyft sig, nært sig vel og átt góða stund saman.
Viðburðurinn fer fram á fimmtudaginn (frídagur) kl. 10:00–14:00 í íþróttahúsinu (Salur 1). Allir velkomnir - á öllum aldri! 🥳

Í boði verða:
⚽️ Boltaleikir, þrautabraut og hoppukastali
🎧 Doctor Victor spilar ljúfa tóna
🧋 Eydís Ísbúð verður með léttar veitingar til sölu og smakk í boði
🎪 Og fleira skemmtilegt!

Það var virkilega gaman að sjá hversu margir mættu síðast og tóku þátt, og við vonum að stemningin verði jafn góð núna svo við getum haldið áfram að halda fjölskyldudaga hér í Eyjum. Hlökkum til að sjá ykkur! ❤️

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu á morgun!Ég brenn fyrir því að bæta aðgengi barna og barnafjölskyldna að hreyfingu o...
25/04/2026

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu á morgun!

Ég brenn fyrir því að bæta aðgengi barna og barnafjölskyldna að hreyfingu og skemmtilegri afþreyingu. Söfnunin fyrir verkefnið er komin, en það er enn smá tími í að húsnæðið verði tilbúið – þess vegna er sérstaklega gaman að geta boðið upp á þetta á meðan.

Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að koma þessu af stað í samráði við Vestmannaeyjabæ og Sundlaug Vestmannaeyja.

📅 Sunnudagur 26. apríl
⏰ 09:00 – 12:00
📍 Íþróttahúsið (Salur 2)

Komdu með fjölskylduna og njóttu skemmtilegrar samveru.
Í boði verður m.a.:
• Boltaleikir
• Brautir og hreyfing
• Og fleira skemmtilegt

Börn eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna og umsjónarmaður er á staðnum.

Frítt inn – allir velkomnir.

Hlakka til að sjá ykkur!

Sundlaug Vestmannaeyja

Góðan dag kæra eyjafólk 💛Fyrir þau sem misstu af söfnuninni er aftersale nú í gangi á Karolina Fund. Það er enn hægt að ...
31/03/2026

Góðan dag kæra eyjafólk 💛

Fyrir þau sem misstu af söfnuninni er aftersale nú í gangi á Karolina Fund. Það er enn hægt að tryggja sér kort og taka þátt áður en við opnum.😃

👉

Opnun á Innileikvelli í Vestmannaeyjum

25/03/2026

VIÐ NÁÐUM MARKMIÐINU! 🥳

Saman náðum við þessu, þetta hefði aldrei gerst án ykkar.

Allir sem styrktu, deildu, hvöttu, sendu skilaboð eða töluðu um verkefnið — þið eruð ástæðan fyrir því að þetta er núna orðið raunverulegt.

Við munum halda áfram að deila með ykkur næstu skrefum og hvernig allt gengur.

Takk kærlega!🤍

25/03/2026

9.358 komið af 10.000 evrum!!

10 klukkutímar eftir-það er góður möguleiki á að þetta náist😃

Þeir sem hafa verið að spá í að heita þá er þetta að verða síðasta tækifæri👏

14 klst eftir. Minni á að þetta er allt eða ekkert.Við erum komin í 7.850€ af 10.000€. Ef markmiðinu er ekki náð, þá fæs...
25/03/2026

14 klst eftir. Minni á að þetta er allt eða ekkert.

Við erum komin í 7.850€ af 10.000€. Ef markmiðinu er ekki náð, þá fæst ekkert og verkefnið fer ekki af stað. Leikhöllin verður einfaldlega ekki að veruleika hér – að minnsta kosti ekki núna.

Ef þú hefur hugsað “ég geri þetta seinna” – þá er núna momentið.
Hvort sem það er lítið eða stórt framlag, þá skiptir það máli akkúrat núna.

👉

Opnun á Innileikvelli í Vestmannaeyjum

19/03/2026

Það er EIN vika eftir…myndir þú koma með barnið þitt í leikhöllina?🤩

26/02/2026

Það eru aðeins 9 dagar eftir.

Við erum komin í 6.600 € af 20.000 € markinu – heil 33%! Það er ótrúlegt að sjá hversu langt við erum komin.

Nú tekur lokaspretturinn við.

Ef þú hefur fylgst með verkefninu og trúir á hugmyndina eins og við, sérstaklega fyrir fjölskyldur og börn í Eyjum, þá væri núna frábær tími til að leggja okkur lið.

Það þarf ekki stór framlag – það sem skiptir mestu máli er að sem flest taki þátt.

Við ætlum að klára þetta saman 🤍

Address

Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00
Saturday 09:00 - 17:00
Sunday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikhöllin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category