15/10/2026
Kynningarfundur Kiwanis - í kvöld kl. 19:30.
💙 Vilt þú hafa jákvæð áhrif í þínu samfélagi?
📅 Kynningarfundur Kiwanis
📍 Álfagerði í Vogum
🕢 Fimmtudaginn 15. október kl. 19:30
🌍 Kiwanis eru alþjóðleg þjónustusamtök sjálfboðaliða sem hafa það að markmiði að bæta samfélagið, með sérstaka áherslu á velferð barna og ungmenna.
🤝 Með þátttöku í Kiwanis gefst einstaklingum tækifæri til að láta gott af sér leiða, efla tengslanet sitt, kynnast nýju fólki og taka þátt í fjölbreyttum og gefandi samfélagsverkefnum.
💙 Fundurinn er opinn öllum! Það kostar ekkert að mæta og kynna sér starfsemina.
✨ Við hvetjum áhugasama til að mæta og kynna sér þetta spennandi samfélagsstarf!