Framsóknarfélag Vopnafjarðar - B listi og óháðra

Framsóknarfélag Vopnafjarðar - B listi og óháðra

Share

Framsóknarfélag Vopnafjarðar
B- listi Framsóknarfélags Vopnafjarðar og óháðra.

16/03/2026

Meirihluti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps vill árétta að við berum fullt traust til Írisar Eddu Jónsdóttur, staðgengils sveitarstjóra.

Frá því hún tók við starfi sem staðgengill sveitarstjóra hefur Íris Edda sinnt verkefnum sínum af fagmennsku og ábyrgð, einnig hefur samstarf við sveitarstjórn verið gott.
Við höfum unnið náið með henni bæði í núverandi starfi og áður í stjórnsýslu sveitarfélagsins og teljum hana vel til þess fallna að gegna því hlutverki sem henni hefur verið falið.

Rétt er að undirstrika að samkvæmt lögum hefur hver og einn sem uppfyllir skilyrði til kjörgengis rétt til að bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga.
Framboð Írisar Eddu í komandi kosningum breytir því ekki að hún nýtur trausts meirihluta sveitarstjórnar til að sinna starfi sínu á meðan hún gegnir því.

Meirihlutinn leggur áherslu á að stjórnsýsla sveitarfélagsins haldi áfram að starfa af fagmennsku og stöðugleika á komandi vikum og að þjónusta við íbúa verði ávallt í forgangi.

Fyrir hönd meirihlutans,
Aðalbjörg Ósk, oddviti.

06/03/2026

Minnum á fundinn í fyrramálið kl. 10:30 í Sambúð
Sjáumst

02/03/2026

Kæru félagar. Félagsfundur á laugardaginn 7.mars kl: 10:30 í Sambúð.
Stjórnin

17/01/2026

Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 21. janúar kl 17 í Sambúð.
Mætum sem flest og ræðum allt það sem framundan er.
Stjórnin

17/01/2026

"Flokksþing Framsóknar – 14.–15. febrúar
38, Flokksþing Framsóknar verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica helgina 14.–15. febrúar. Stefnt er að glæsilegu þingi og góðri þátttöku víðs vegar að af landinu.
Alls eiga 1.123 félagar seturétt á þinginu. Þar af eru 195 fulltrúar úr Norðausturkjördæmi.
Nánari sundurliðun á seturétti fylgir samkvæmt reglum flokksins.
Félagsmenn Framsóknar á Vopnafirði sem hafa áhuga á að sækja flokksþingið eru beðnir um að láta stjórn félagsins vita sem fyrst, svo hægt sé að skipuleggja þátttöku og úthlutun sæta.
Athygli er vakin á því að allir félagar í flokknum eiga rétt á að sækja flokksþingið með málfrelsi og tillögurétt.
Nánari upplýsingar verða veittar þeim sem lýsa yfir áhuga.

Stjórnin

08/01/2026

Gleðilegt ár kæru félagar.
Ritari Framsóknarflokksins, Lilja Rannveig, kemur á fund til okkar ásamt einhverjum þingmönnum flokksins. Fundurinn verður í Sambúð laugardagin 10.janúar klukkan 17:00.
Mætum og heilsum upp á þingmennina.
Kveðja
Stjórnin.
😀

07/11/2025

Ágætu félagar! Minnum á aðalfundinn á morgun kl. 13:30 í Sambúð.
Stjórnin

04/11/2025

Minnum á aðalfundinn á laugardaginn 8.nóv kl. 13:30 í Sambúð

30/10/2025

Aðalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn 8.nóvember í Sambúð kl. 13:30
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin

24/04/2025

Á fundi hreppsnefndar 23. apríl lagði minnihluti sveitarstjórnar fram tillögu um að óska eftir viðræðum við Vegagerðina og Hagtak ehf. um mögulega endurskoðun á samningi um hafnarframkvæmdir. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum Framsóknar og óháðra gegn þremur atkvæðum Vopnafjarðarlistans.

Bókun – Framsókn og óháðir

“Fulltrúar Framsóknar og óháðra leggja áherslu á mikilvægi þess að haldið verði áfram með áætlaðar hafnarframkvæmdir á Vopnafirði. Um er að ræða verkefni sem hefur þegar verið undirbúið og samþykkt í fjárhagsáætlun, þar sem sveitarfélagið tekur þátt með 40% kostnaðarhlut á móti ríkinu í gegnum samgönguáætlun – hlutur sveitarfélagsins nemur rúmum 300 milljónum króna miðað við núverandi áætlun. Ekki er sjálfgefið að slíkur stuðningur ríkisins standi til boða aftur verði hætt við framkvæmdina.

Framkvæmdum við höfnina hefur verið frestað til 2026 vegna loðnubrests, en þær eru í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um eflingu innviða og atvinnulífs á svæðinu. Jafnframt liggur fyrir að fjármögnun sveitarfélagsins vegna framkvæmdarinnar hafi ekki veruleg áhrif á annarri uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu.

Framsókn og óháðir telja það ekki réttlætanlegt að hætta alfarið við framkvæmdina, líkt og gefið hefur verið í skyn af hálfu minnihluta sveitarstjórnar. Slík ákvörðun myndi hafa neikvæð áhrif á framtíðarsýn og þróun hafnarsvæðisins og möguleika á fjölbreyttari atvinnusköpun í sveitarfélaginu. Við leggjum því ríka áherslu á að áfram verði staðið við fyrri ákvarðanir um verkefnið og tryggt að hafnarframkvæmdir á Vopnafirði fari fram þegar aðstæður leyfa.”

14/02/2025

Minnum á fundinn í fyrramálið kl. 10:30 í Sambúð. Allir velkomnir

Want your business to be the top-listed Government Service in Vopnafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Vopnafjörður
690