VG Hafnarfirði

Website

VG Hafnarfirði Stjórnmálahreyfing sem aðhyllist friðarstefnu, kvenfrelsi, félagslegt réttlæti og græna framtíð.

08/11/2026

Krefjast aðgerða gegn hatursorðræðu og fordæma þjóðarmorð á Gaza

Allir félagar geta mætt á Flokksráðsfund. Þeir eru skemmtilegir.
01/11/2026

Allir félagar geta mætt á Flokksráðsfund. Þeir eru skemmtilegir.

Skiptir máli fyrir bæjarbúa að þeim sem veita þjónustu við bæjarbúa fækkar?
01/11/2026

Skiptir máli fyrir bæjarbúa að þeim sem veita þjónustu við bæjarbúa fækkar?

Rósa Björk með grein í Heimildinni. "Það er hárrétt að það kostar mikla fjármuni að ráðast í orkuskipti. Það kostar miki...
27/09/2026

Rósa Björk með grein í Heimildinni.
"Það er hárrétt að það kostar mikla fjármuni að ráðast í orkuskipti. Það kostar mikið að byggja upp almenningssamgöngur. Að styðja við heimili og fyrirtæki í grænni umbreytingu kostar. Það kostar að endurheimta náttúru og styrkja innviði gegn afleiðingum loftslagsbreytinga.

En það kostar okkur miklu meira að gera of lítið of seint. Opinber fjárútlát til að kaupa losunarheimildir er einfaldlega sokkinn kostnaður af því við náðum ekki nægum árangri"

Það er auðvelt að gleyma sér í dramatíkinni á stjórnarheimilinu sem var ein af stóru fréttum vikunnar og er alls ekki búin.

Stærri og mun mikilvægari frétt í vikunni var þegar Umhverfis - og orkustofnun birti nýjar tölur um stöðu losunar okkar Íslendinga og þar með um stöðu okkar í loftslagsmálum. Þar kom fram að við erum 20% frá því að ná settum markmiðum okkar við að draga úr losun fyrir árið 2030 ! Tuttugu prósent ! Ef við spýtum ekki í lófana og ráðumst ekki í alvöru aðgerðir til að sporna gegn loftslagsbreytingum, þá mun kostnaðurinn hljóða upp á gríðarlegar upphæðir en mun líka lenda á framtíðarkynslóðum. Aðgerðaleysi í loftslagsmálum kostar - bæði í fjármunum og lífsgæðum.

Ég skrifaði um þetta grein. Hvet ykkur til að lesa ! 👇

09/07/2026

Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd umhverfissamtök hafa skrifað Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra bréf og óskað eftir því að réttur náttúrunnar verði tryggður í íslenskum lögum, eins og vera ber og Árósasamningurinn kveður á um.

09/07/2026

Nýlega kom til samráðs aðgerðaáætlun stjórnvalda til verndar líffræðilegrar fjölbreytni. Aðgerðaáætlunin er stutt og hnitmiðuð að sögn höfunda og því fær grasrótin þrjár vikur til þess að skrifa athugasemdir.

Varaformaður Landverndar í frétt á RUV:" „Eftir sem áður þá er borað eftir að reglugerðarbreytingin er gengin í gegn og ...
12/06/2026

Varaformaður Landverndar í frétt á RUV:
" „Eftir sem áður þá er borað eftir að reglugerðarbreytingin er gengin í gegn og í samræmi við breytingarnar. Þannig að afleiðingar breytingarinnar koma í ljós strax þarna,“ segir Davíð í samtali við fréttastofu."

Finnst hart að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu - RÚV.is https://share.google/Xjkt52z2h8FIU17tn

Varaformaður Landverndar segir hart af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu. Þó leyfi fyrir borframkvæmdum í Skammadal hafi verið gefin út fyrir lagabreytingar hafi borun hafist eftir þær.

12/06/2026
11/06/2026

Ályktun UVG vegna nýsamþykkts frumvarps dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð fyrir fólk á flótta.

11/06/2026

“Allra gagnrýniverðast er að með lögunum er heimilað að frelsissvipta börn vegna stöðu foreldra þeirra. Við erum því að setja fólk og börn á bak við læstar dyr, ekki vegna þess hvað það hefur gert, heldur hver staða þess er í íslensku stjórnkerfi.”
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Hlekkur í greinina 👇👇

Address

Hafnarfjörður

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VG Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share