21/10/2026
Þröng fjárhagsstaða, erfiður rekstur og skuldaaukning!
Fjárhagsáætlun næsta árs var tekin til umræðu á bæjarstjórnarfundi í dag. Það var gert til þess að varpa ljósi á erfiða og þrönga fjárhagsstöðu bæjarins. Fjármál Hafnafjarðar fengu takmarkaða athygli í kosningabaráttunni síðasta vor þrátt fyrir að viðvörunarljós hafi sannarlega verið farin að blikka þegar ársreikningur 2025 var afgreiddur. Þegar svo árshlutareikningur fyrir 2026 var lagður fram um miðjan september kom í ljós að staðan hafði enn versnað og óveðursskýin hrannast upp.
Meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks stendur þvi frammi fyrir gríðarlega stóru og flóknu verkefni. Við erum hins vegar ákveðin í því að snúa vörn í sókn og koma skikki á rekstur bæjarins og laga skuldastöðuna. Ekki er eftir neinu að bíða í þeim efnum og rétti tíminn til þess er núna áður en í óefni stefnir.
Nokkur mikilvæg atriði úr umræðunni í dag:
- A hluti rekinn með 1.165 m.kr. halla árið 2025 en áætlun gerði ráð fyrir 107 m.kr. afgangi.
- Á fyrri helmingi 2026 var hallinn á A hluta 2,360 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 435 m.kr. afgangi.
- Veltufé frá rekstri var 58 m.kr. í lok júní á þessu sem er 344 m.kr. undir áætlun.
- Veltufé frá rekstri hefur verið undir 4% síðastliðin fimm ár og verið 1,6% að meðaltali en á sama tíma hefur fjárfesting farið úr 6-7% af tekjum í 17%, sem hefur að mestu verið fjármögnuð með lántöku og lóðasölu.
- Skuldaviðmið hefur einnig farið úr 84% í 104% á tveimur árum.
Í lok umræðunnar lagði Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddiviti Samfylkingarinnar fram eftrfarandi bókun fyrir hönd meirihlutans:
Skoðun á ársreikningi 2025 og árshlutareikningi fyrir fyrri helming þessa árs sýnir fram á verulegar áskoranir í rekstri Hafnarfjarðarbæjar. Verkefnið er að gera rekstur bæjarins sjálfbæran og það er meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar staðráðinn í að gera.
Árið 2025 var A hluti Hafnarfjarðarbæjar rekinn með 1.165 m.kr. halla en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 107 m.kr. afgangi. Á fyrri helmingi þessa árs var rekstrarniðurstaðan A hluta neikvæð um 2,360 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 435 m.kr. afgangi. Frávikið er um 2,8 milljarðar króna á fyrstu s*x mánuðum ársins. Stærsta frávikið er í tekjum af byggingarréttargjöldum, sem voru rúmum 1,5 milljarði króna undir áætlun. Háir vextir, viðvarandi verðbólga og hægari uppbygging hafa breytt forsendum fjárhagsáætlunarinnar verulega.
Kostnaður hefur jafnframt farið fram úr áætlun. Sem dæmi má nefna að vistgjöld voru 480 milljónum króna yfir áætlun og aðkeypt kennslu- og sérkennsluþjónusta var einnig 233 milljónum yfir áætlun og launakostnaður fór einnig fram úr áætlun.
Veltufé frá rekstri í A-hluta nam 58 m.kr. í lok júní sem er 344 m.kr. undir áætlun en það er mikilvægur mælikvarði um getu bæjarins til að standa undir afborgunum lána og fjárfestingu. Veltufé frá rekstri hefur verið undir 4% síðastliðin fimm ár og verið 1,6% að meðaltali. Á sama tíma hefur fjárfesting farið úr 6-7% af tekjum í 17%, sem hefur að mestu verið fjármögnuð með lántöku og lóðasölu. Skuldaviðmið hefur einnig farið úr 84% í 104% á tveimur árum. Árið 2025 námu afborganir langtímalána um 1,9 ma.kr. eða um 4% af tekjum á sama tíma og veltufé frá rekstri var 1,4% af tekjum. Það þýðir að ekki aðeins fjárfesting heldur einnig um tveir þriðju hlutar afborgana voru því fjármagnaðir með nýjum lánum, lóðatekjum og lækkun handbærs fjár. Þetta er skýrt dæmi um þau verkefni sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar þarf að takast á við.
Samfara þessu hefur rekstrarumhverfi sveitarfélaga þyngst undanfarin ár með yfirtöku útgjaldafrekra málaflokka og rekstur þeirra hefur verið þyngri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fjármagnsliðir eru einnig þungir eins og hjá öðrum sveitarfélögum þegar verðbólga er þrálát og vaxtastig hátt. Mikilvægt er fyrir rekstur sveitarfélaga og þjóðfélagið allt að árangur náist í þeirri baráttu sem allra fyrst. Í því augnamiði er mikilvægt að kjarasamningar héldu, að ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum og að sveitarfélögin hafa samþykkt að almennar gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5% til þess að styðja við verðstöðugleika í landinu.
Þessi staða og þróun mála kallar á ábyrgð, aðhald og skýra forgangsröðun. Fjárhagsáætlun ársins 2027 þarf að byggja á raunhæfum forsendum, ekki óvissum framtíðartekjum eða von um hraðar vaxtalækkanir. Greina þarf kostnað, einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur, um leið og grunnþjónusta bæjarins er tryggð.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar hefur þegar hafið markvisst starf til þess að bregðast við þessari stöðu og við væntum góðs árangurs af þeim aðgerðum. Strax var brugðist við breyttum og versnandi horfum snemmsumars með því að ráðast í stjórnsýslu- og fjármálaúttektir á rekstri bæjarins ásamt greiningarvinnu stjórnenda og starfsfólks bæjarins. Niðurstöður þeirrar vinnu munu liggja fyrir á næstunni og verða mikilvægt innlegg í ákvarðanir um nauðsynlegt aðhald, bætta nýtingu fjármuna og traustan rekstur til framtíðar. Aðgerðir þurfa að vera markvissar og stuðla að traustari og sjálfbærari rekstri til framtíðar.
Það er sameiginleg ábyrgð bæjarstjórnar allrar að bæta og efla rekstur bæjarins. Það verður ekki létt verk og krefst þess að við séum tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir þar sem markmiðið er skýrt: Að ná tökum á rekstrinum, standa vörð um grunnþjónustuna og tryggja fjárhagslegt jafnvægi Hafnarfjarðar til framtíðar.
🌹🌹🌹
Á myndinni eru bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar Hildur Rós Guðbjargardóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson í sýningarsal Hafnarborgar að loknum bæjarstjórnarfundi í dag. 📸