Rangárþing ytra

Call Directions Website Contact the organization

Rangárþing ytra Rangárþing ytra er sveitarfélag í Rangárvallasýslu sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landsveitar og Djúpárhrepps.

Rangárþing ytra er víðfeðmt sveitarfélag með 1682 íbúa(1.1.2020 skv.Hagstofu Íslands). Mörk þess afmarkast að mestu af Þjórsá að vestan, vatnaskilum að norðan að Vatnajökli og Tungnaá. Að sunnan fylgja mörkin Mýrdalsjökli að Eystri-Rangá. Rangárþing ytra er mikið landbúnaðarhérað og hestamennska stunduð í miklu mæli. Í sveitarfélaginu eru margar þekktar náttúruperlur eins og Hekla og Landmannalaugar auk margra annarra áhugaverðra staða. Hella er helsti þéttbýlis- og atvinnukjarni sveitarfélagsins með 886 íbúa(árið 2020). Á Hellu byggist atvinnulífið að mestu á þjónustu við landbúnaðinn auk þjónustu við íbúa svæðisins og ferðamenn. Á Hellu er banki, pósthús, hótel, gistiheimili, sundlaug, tjaldsvæði, veitingahús, vínbúð, kjötbúð, fiskbúð, apótek, heilsugæslustöð, sláturhús, bifvélaverkstæði, hjólbarðaverkstæði, bensínstöð auk margs konar atvinnureksturs og opinberrar þjónustu.

Stórsveit Íslands með tónleika í Hvolnum, Hvolsvelli miðvikudaginn 11. nóvember kl. 20. Söngvarar: Ari Jónsson og Vigga ...
30/10/2026

Stórsveit Íslands með tónleika í Hvolnum, Hvolsvelli miðvikudaginn 11. nóvember kl. 20. Söngvarar: Ari Jónsson og Vigga Ásgeirsdóttir. Aðgangseyrir: 2000kr.

Hringur heldur upp á 20 ára afmæli sitt í Hátíðarsal Grunnskólans Hellu næstkomandi sunnudag.
29/10/2026

Hringur heldur upp á 20 ára afmæli sitt í Hátíðarsal Grunnskólans Hellu næstkomandi sunnudag.

Félagsmiðstöðin Hellirinn verður opin í dag, 28. október. Krakkar í 5.–7. bekk geta komið í félagsmiðstöðina á milli klu...
28/10/2026

Félagsmiðstöðin Hellirinn verður opin í dag, 28. október. Krakkar í 5.–7. bekk geta komið í félagsmiðstöðina á milli klukkan 17–19 og tekið þátt í borðtennismóti.

Nemendum í 8.–10. bekk er svo boðið á hrekkjavökuball á milli 19.30–21.30. Ballið verður haldið í Grunnskólanum á Hellu.

Nemendur í 10. bekk Grunnskólans á Hellu og Skógræktarfélag Rangæinga bjóða til draugagöngu við hátíðarsvæðið í Bolholts...
27/10/2026

Nemendur í 10. bekk Grunnskólans á Hellu og Skógræktarfélag Rangæinga bjóða til draugagöngu við hátíðarsvæðið í Bolholtsskógi sunnudaginn 1. nóvember kl. 18:00.

Þar verður hægt að ganga draugastíginn fyrir þau sem þora og að göngu lokinni verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki.

Öllum er velkomið að mæta og taka þátt í skemmtilegri og örlítið óhugnanlegri kvöldstund í skóginum.

Komið og gangið draugastíginn – ef þið þorið!

Auglýst er eftir stuðningskennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.Áherslur stuðningskennara og starfsfólks e...
26/10/2026

Auglýst er eftir stuðningskennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.

Áherslur stuðningskennara og starfsfólks eru að:

-Sinna sérstaklega umönnun og kennslu barna í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra inni á deild.
-Taka þátt í að móta, meta og skrá framfarir.
-Starfa samkvæmt dagskipulagi leikskóla sem felur í sér matar- og hvíldartíma, útiveru, ýmsa leiki og skapandi verkefni fyrir börnin undir leiðsögn leikskólakennara eða annarra starfsmanna.

Um er að ræða 60-80 % starf.

Menntun, hæfni og reynsla:

-Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, BS í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
-Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
-Reynsla af sérkennslu.
-Góð íslenskukunnátta.
-Reynsla af starfi í leikskóla.
-Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
-Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
-Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
-Góð tölvukunnátta.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á [email protected]. Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 4887049, netfang: [email protected] og Vigdís L. Árnadóttir [email protected]

Allar umsóknir verða skoðaðar.

Umsóknarfrestur er til 6. nóvember 2026.

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á þennan fund!
23/10/2026

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á þennan fund!

Hefur þú áhuga á að starfa í Fjölmenningarráði RY? Sendu þá póst á johann@ry.is, þú getur einnig sent tillögu um aðra. W...
22/10/2026

Hefur þú áhuga á að starfa í Fjölmenningarráði RY?
Sendu þá póst á [email protected], þú getur einnig sent tillögu um aðra.

Would you like to be a member of the Multicultural Council of Rangárþing ytra?
If you're interested, send an email to [email protected].
You are also welcome to nominate someone else!

Address

Suðurlandsvegur 1
Hella
850

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3544887000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rangárþing ytra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Rangárþing ytra:

Shortcuts

Share