24/09/2026
Minni á Dag Snorra Sturlusonar í Reykholti á laugardag
Snorrastofa verður með hátíð tileinkaða Snorra Sturlusyni laugardaginn 26. september kl. 14 í bókhlöðu stofnunarinnar. Þemað verður „goðafræði og sagnaskemmtan“.
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun setja dagskrána og ræða stuttlega um goðafræðiverkefni Snorrastofu. Þá mun Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur, fjalla um jötna í norrænni goðafræði. Síðast fyrir hlé kemur Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, með erindi sitt „Um guði og hetjur í sagnaskemmtun miðalda“.
Eftir hléið mun Terry Gunnell, þjóðfræðingur og prófessor emeritus flytja fyrirlesturinn: „Hlutverk og vettvangur Völuspár fyrr og nú: Hvernig breytist kvæðið í flutningi“. Í fyrirlestri hans verða inn á milli sýnd myndbönd með áhugaverðum dæmum um miðlun á goðafræðinni, þ.e. brot úr sýningu Västanå teater á Eddu eftir Jon Fosse, flutningur Einar Selvik á broti úr Völuspá, og að lokum brot úr flutningi danska leikhópsins Republique á Völuspá.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Veitingar í hléi.