SÞ Ísland

Appeler Itinéraire Site Web Contacter l'organisation

SÞ Ísland Upplýsingar um Sameinuðu þjóðirnar á íslensku. Sjá einnig www.unric.org/is

30/10/2026

Alþjóðleg afvopnunarvika 24.-30.október. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Að binda enda á refsileysi fyrir glæpi gegn blaðamönnum er ein mikilvægasta og flóknasta áskorun síðari tíma. Það er nau...
30/10/2026

Að binda enda á refsileysi fyrir glæpi gegn blaðamönnum er ein mikilvægasta og flóknasta áskorun síðari tíma. Það er nauðsynleg forsenda þess að tryggja tjáningarfrelsi og aðgang allra borgara að upplýsingum. Ógnir og árásir bitna sérstaklega á kvenkyns blaðamönnum, einkum þær sem eiga sér stað á netinu. 2.nóvember er Alþjóðlegur dagur gegn refsileysi við glæpum gegn blaðamönnum. Sjá grein í ummælum
Blaðamannafélag Íslands Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands UNESCO

Vistkerfi og tegundirnar sem á þeim byggja mátt þola hnignun í áratugi. Nú varpar hins vegar  skýrsla Umhverfisstofnunar...
29/10/2026

Vistkerfi og tegundirnar sem á þeim byggja mátt þola hnignun í áratugi. Nú varpar hins vegar skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) nýju ljósi á uppörvandi árangur í að snúa þessari þróun við. Sjá grein í ummælum. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Landvernd umhverfisverndarsamtök

„Harkaleg aðgerð“ Ísraels í borginni Hebron á Vesturbakkanum vekur alvarlegar áhyggjur af þjóðernishreinsunum, að sögn V...
28/10/2026

„Harkaleg aðgerð“ Ísraels í borginni Hebron á Vesturbakkanum vekur alvarlegar áhyggjur af þjóðernishreinsunum, að sögn Volkers Türk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þrjú þúsund Palestínumenn hafa verið hraktir að heiman í borginni. Sjá grein í ummælum. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

Stríð verða sífellt mannskæðari fyrir konur og stúlkur. Þær voru fjórðungur rúmlega 37 þúsund óbreyttra borgara sem létu...
27/10/2026

Stríð verða sífellt mannskæðari fyrir konur og stúlkur. Þær voru fjórðungur rúmlega 37 þúsund óbreyttra borgara sem létust í vopnuðum átökum á síðasta ári. Það er tvöfalt hærra hlutfall en árið 2021 – samkvæmt viðamikilli skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kom út í vikunni. Að minnsta kosti 25 konur og stúlkur eru drepnar á hverjum degi á átakasvæðum. Sjá grein í ummælum. UN Women Ísland Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að norræn forysta geti „vísað veginn“ í glímunni við hn...
27/10/2026

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að norræn forysta geti „vísað veginn“ í glímunni við hnattrænar áskoranir á borð við vaxandi ójöfnuð, loftslagsbreytingar og nýja tækni sem „þróast hraðar en geta okkar til að hafa stjórn á henni“.

Í myndbandsávarpi til sjötugasta og áttunda þings Norðurlandaráðs í Helsinki sagði Guterres að til að takast á við þessar áskoranir þyrfti samstöðu, samtal og samstilltar aðgerðir. Sjá grein í ummælum. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

Fólk þarf að búa yfir færni til að skilja skriflegar upplýsingar, túlka gögn, rata um opinbera þjónustu og taka upplýsta...
26/10/2026

Fólk þarf að búa yfir færni til að skilja skriflegar upplýsingar, túlka gögn, rata um opinbera þjónustu og taka upplýstar ákvarðanir í daglegu lífi. Undir yfirskriftinni „Við eigum öll hlut að máli – miðla- og upplýsingalæsi fyrir fólkið“ varpar yfirstandandi Alþjóðleg vika miðla- og upplýsingalæsis ljósi á mátt einstaklinga og samfélaga til að taka upplýstar ákvarðanir, hugsa á gagnrýninn hátt og taka þátt á merkingarbæran hátt í sífellt flóknara upplýsingaumhverfi. Sjá grein í ummælum. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

23/10/2026

Dagur Sameinuðu þjóðanna er 24.október en þá gekk sáttmáli samtakanna í gildi og þau hófu formlega störf árið 1945.
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

23/10/2026

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri segir í ávarpi á degi Sameinuðu þjóðanna að nú sé brýnna en nokkru sinni fyrr að standa staðfastlega vörð um stofnsáttmála samtakanna og alþjóðalög.Dagur Sameinuðu þjóðanna 24.október 2026. Sjá grein í ummælum Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

22/10/2026

Ekki er allt satt sem er á netinu. Nokkur góð ráð til að hafa í huga. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Adresse

UNRIC, Residence Palace, Rue De La Loi 155
Brussels
1040

Téléphone

+3548613989

Notifications

Soyez le premier à savoir et laissez-nous vous envoyer un courriel lorsque SÞ Ísland publie des nouvelles et des promotions. Votre adresse e-mail ne sera pas utilisée à d'autres fins, et vous pouvez vous désabonner à tout moment.

Contacter L'organisation

Envoyer un message à SÞ Ísland:

Raccourcis

Partager