Glerárskóli

Call Directions Website Contact the organization

Glerárskóli Þetta er fésbókarsíða Glerárskóla, sem miðlar upplýsingum af heimasíðu skólans.

Grænn dagur mánudaginn 9. nóvember.Í tilefni af Degi gegn einelti sem er 8. nóvember ár hvert ætlum við í Glerárskóla að...
05/11/2026

Grænn dagur mánudaginn 9. nóvember.

Í tilefni af Degi gegn einelti sem er 8. nóvember ár hvert ætlum við í Glerárskóla að hafa GRÆNAN dag í skólanum mánudaginn 9. nóvember og efla nemendur í samskiptum og kærleika hvern gagnvart öðrum. Græni liturinn vísar til verndarans í eineltishring Olweusar, þess sem grípur inn í, stendur með þolandanum og reynir að stöðva eineltið.
Við hvetjum því alla okkar nemendur og starfsfólk til að klæðast grænu á mánudaginn.

Skemmtilegt vináttuverkefni í 1. bekk.Nemendur í 1. bekk fengu góða heimsókn nú á dögunum frá nemendum í 8. bekk.Heimsók...
30/10/2026

Skemmtilegt vináttuverkefni í 1. bekk.

Nemendur í 1. bekk fengu góða heimsókn nú á dögunum frá nemendum í 8. bekk.
Heimsóknin var liður í vinnu 1. bekkinga með þemað vináttu en nemendur unnu saman að verkefni sem tengdist því.

Nemendur teiknuðu myndir af sjálfum sér og besta vini sínum og tóku nemendur í 8. bekk einnig þátt í verkefninu.
Úr varð skemmtileg samvera þar sem nemendur á ólíkum aldri unnu saman, miðluðu hugmyndum og lærðu hver af öðrum.

Það var ánægjulegt að sjá hversu vel samvinnan gekk og hvernig verkefnið skapaði tækifæri til að efla tengsl milli árganga.
Hægt er að sjá myndir frá verkefninu á heimasíðu skólans https://glerarskoli.is/

Haustfrí framundan í Glerárskóla.Þegar kennslu lýkur í dag, föstudaginn 23. október, eru nemendur komnir í haustfrí því ...
23/10/2026

Haustfrí framundan í Glerárskóla.

Þegar kennslu lýkur í dag, föstudaginn 23. október, eru nemendur komnir í haustfrí því frí er í skólanum mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október.

Frístund er opin í haustfrínu fyrir þá nemendur sem skráðir hafa verið í vistun þessa daga.

Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 28. október.

Rósaball fimmtudaginn 22. október.Á morgun, fimmtudaginn 22. október, verður hið árlega Rósaball fyrir 8. – 10. bekk.Rós...
21/10/2026

Rósaball fimmtudaginn 22. október.

Á morgun, fimmtudaginn 22. október, verður hið árlega Rósaball fyrir 8. – 10. bekk.
Rósaballið er skemmtileg hefð hér í Glerárskóla og felur í sér að 10. bekkingar sækja nemendur í 8. bekk,
gefa þeim rós og fylgja þeim á ballið. Þetta er falleg leið til að bjóða nemendur 8. bekkjar velkomin á
unglingastigið og eflir vináttu og samkennd meðal nemenda.

Ballið er opið öllum nemendum í 8.-10.bekk á Akureyri, hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 23:00.
Aðgangseyrir inn á ballið er 1.500 krónur.

Bleiki dagurinn 2026Miðvikudaginn 21. október er Bleiki dagurinn, dagur þar sem við sýnum konumsem greinst hafa með krab...
19/10/2026

Bleiki dagurinn 2026

Miðvikudaginn 21. október er Bleiki dagurinn, dagur þar sem við sýnum konum
sem greinst hafa með krabbamein samstöðu og stuðning.

Við hvetjum nemendur okkar og starfsfólk til að taka þátt í deginum með því að klæðast einhverju bleiku þennan dag.

Sýnum samstöðu og verum bleik!

Söngsalur og verðlaunaafhending fyrir Ólympíuhlaup ÍSÍÍ Glerárskóla eru reglulega haldnir söngsalir þar sem nemendur og ...
14/10/2026

Söngsalur og verðlaunaafhending fyrir Ólympíuhlaup ÍSÍ

Í Glerárskóla eru reglulega haldnir söngsalir þar sem nemendur og starfsfólk koma saman í sal skólans og syngja. Stigin skiptast á að velja lögin hverju sinni.
Í lok síðustu skólaviku var haldinn söngsalur þar sem Ivan Mendez, tónmenntakennari skólans, stýrði söngnum. Að þessu sinni valdi yngsta stigið okkar lögin og var vel tekið undir.

Söngsalurinn var jafnframt nýttur til að veita verðlaun fyrir Ólympíuhlaup ÍSÍ. Að þessu sinni voru eftirfarandi nemendur á mið- og unglingastigi hlutskarpastir:

8. – 10. b. – drengir
1. Edrien Zeg (9. b.)
2. Adrien Zues (10. b.)
3. Jóel Orri (10. b.)

8. – 10. b. – stúlkur
1. Lydia Björk (9.b.)
2. Maísól Anna (9.b.)
3. Maríanna (8.b.)

5. – 7. b. – drengir
1. Nadir (6.b.)
2. Óðinn Helgi (5.b.)
3. S. Eysteinn (6.b.)

5. – 7. b. – stúlkur
1. Elísa Dagný (7.b.)
2. Bergþóra (5.b.)
3. Julietta (7.b.)

Myndir frá verðlaunaafhendingu má sjá á heimasíðu skólans https://glerarskoli.is/

Skipulagsdagur og samtal heimilis og skólaMánudaginn 12. október er skipulagsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.Þr...
09/10/2026

Skipulagsdagur og samtal heimilis og skóla

Mánudaginn 12. október er skipulagsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.

Þriðjudaginn 13. október og miðvikudaginn 14. október fer fram samtal heimilis og skóla. Að þessu sinni er samtalið nemendastýrt, þar sem nemendur fá tækifæri til að leiða samtalið, segja frá námi sínu, styrkleikum og því sem þeir vilja bæta.

Við hlökkum til góðra og uppbyggilegra samtala við nemendur og foreldra/forráðamenn.

Á þessum dögum mun 10. bekkur vera með kökubasar og kræsingar, sjá auglýsingu.

Vel heppnuð rýmingaræfing.Á hverju ári eru haldnar rýmingaræfingar í Glerárskóla þar sem æft er og farið yfir það verkla...
07/10/2026

Vel heppnuð rýmingaræfing.

Á hverju ári eru haldnar rýmingaræfingar í Glerárskóla þar sem æft er og farið yfir það verklag sem unnið er eftir ef til rýmingar kemur.
Ein slík æfing fór fram í morgun.

Æfingin í morgun gekk afar vel og tókst að rýma skólann hratt og örugglega eftir að brunabjallan fór í gang. Að þessu sinni fóru nemendur í 3. og 6. bekk út um neyðarop í kennslustofum sínum en nemendur í öðrum bekkjum gengu skipulega úr stofum sínum í fylgd starfsfólks.

Þegar út var komið söfnuðust nemendur og starfsfólk saman á körfuboltavelli skólans þar sem farið var yfir hvort allir væru örugglega komnir út. Þegar búið var að ganga úr skugga um að enginn væri eftir inni í skólanum gengu bekkirnir, í fylgd starfsfólks, inn í íþróttahús skólans og þar lauk æfingunni.

Nemendur og starfsfólk sýndu góða samvinnu og brugðust hratt og örugglega við þegar brunabjallan hringdi.
Fleiri myndir frá æfingunni má finna á heimasíðu skólans https://glerarskoli.is/

Göngum í skólann – frábær þátttaka í GlerárskólaÍ september tók Glerárskóli þátt í verkefninu Göngum í skólann.Verkefnið...
05/10/2026

Göngum í skólann – frábær þátttaka í Glerárskóla

Í september tók Glerárskóli þátt í verkefninu Göngum í skólann.
Verkefnið náði yfir tvær skólavikur, dagana 7.-18. september, og tóku allir bekkir skólans þátt.

Verkefnið Göngum í skólann hvetur börn og ungmenni til að nýta virkan ferðamáta, svo sem að ganga eða hjóla í skólann, og stuðlar þannig að aukinni hreyfingu, heilbrigðum ferðavenjum og betra umhverfi.

Þátttaka í Glerárskóla var almennt mjög góð og gaman að sjá hvað nemendur okkar stóð sig vel. Að þessu sinni fengu þeir bekkir viðurkenningu sem náðu 90% þátttöku eða meira.
5. bekkur og 7. bekkur fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur en 10. bekkur og 8.RLB fyrir frábæran árangur.

10. bekkur bar sigur úr býtum með tæplega 98% þátttöku en fast á hæla þeirra kom 8.RLB. Glæsilegur árangur hjá þessum frábæru krökkum!

Við erum virkilega stolt af öllum okkar nemendum sem tóku þátt í verkefninu og óskum þeim til hamingju með þátttökuna.

Address

V/Höfðahlíð
Akureyri
603

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Glerárskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Glerárskóli:

Shortcuts

Share

Category

Nearby government services