28/05/2026
Myndir frá dásamlegum tónleikum Blood Harmony í síðustu viku
Í Bergi eru haldnir tónleikar, ráðstefnur, fundir, kvikmyndasýningar, veislur, afmæli og í raun mannfagnaðir af öllu tagi.
Húsið er opið virka daga 11:00 - 17:00
og laugardaga 13:00 - 16:00
Menningarhúsið Berg er staðsett í hjarta Dalvíkur og er glæsileg umgjörð utan um hverskonar menningarstarfsemi. Í Bergi er einnig bókasafn bæjarins og kaffi- og veitingarhúsið Hóllinn. Bókasafn Dalvíkurbyggðar er gott safn, þar er hægt að setjast niður eða á kaffihús fá sér kaffi og lesa bók, skoða dagblöð dagsins eða tímarit viku
28/05/2026
Myndir frá dásamlegum tónleikum Blood Harmony í síðustu viku
27/05/2026
Frábært listafólk heimsækir Dalvík á morgun, fimmtudag, kl 20
26/05/2026
Salka kvennakór var með afar vel sótta og sérstaklega fallega tónleika hjá okkur um daginn.
20/05/2026
Blood Harmony - útgáfutónleikar í Bergi kl. 20 í kvöld
Í kvöld er loks komið að því að systkinin Örn, Ösp og Björk í hljómsveitinni Blood Harmony fagni útgáfu plötu sinnar með tónleikum í heimabyggð! Þau munu leika lög af plötunni í heild sinni, auk ábreiðna af lögum sem eru í miklu uppáhaldi hjá þeim.
Á tónleikunum fá þau til liðs við sig Sigmar Þór Matthíasson á bassa og Þorvald Þór Þorvaldsson á slagverk.
Miðaverð er 7500 kr og verða miðar seldir í hurð.
FORSALA verður í afgreiðslu Bókasafnsins á opnunartímum safnsins. Forsöluverð er 6500 en henni lýkur kl 17:00 þann 21.maí.
Platan, sem bæði kemur út á vínyl og CD, verður til sölu að tónleikum loknum.
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Dalvíkurbyggðar
19/05/2026
FÖNDUR OG HANDVERKSSÝNING
Það er bjartur og fallegur dagur á Dalvík. Í Menningarhúsinu Bergi og á Bókasafninu er margt um að vera.
------
Föndur - Origami á Bókasafninu kl. 15-16.30
Þar er hægt að læra að brjóta origami trönu (fugl)
úr fallegum pappír.
------
Handverkssýning í salnum kl. 14-17
Tómstundastarf eldri borgara og öryrkja í
Dalvíkurbyggð
18/05/2026
Opnun sýningar Guðbjargar Ringsted - Blómlegt, heppnaðist einstaklega vel enda sýningin gullfalleg.
Hún verður opin á opnunartíma bókasafnsins, til kl. 17 á virkum dögum og 16 á laugardögum, til 4. júní nk.
15/05/2026
Í kvöld kl. 20!
Sumarið kemur með Sölkunum! Árlegir vortónleikar Sölku kvennakórs á föstudag, 15. maí, kl. 20.
Að vanda er lagaval fjölbreytt í skemmtilegum útsetningum.
Stjórnandi: Mathias Spoerry
Undirleikur: Hörður Kristjánsson
Kynnir: Þórey Dögg Jónsdóttir
Miðaverð 5000 kr
14/05/2026
Sýning á verkum eldri borgara og öryrkja í Dalvíkurbyggð 19. maí
| Monday | 11:00 - 17:00 |
| Tuesday | 11:00 - 16:00 |
| Wednesday | 11:00 - 17:00 |
| Thursday | 11:00 - 17:00 |
| Friday | 11:00 - 17:00 |
| Saturday | 13:00 - 16:00 |