Jóhann Helgi & Co hefur starfað á íslenskum markaði í 36 ár og byggir starfsemi sína á gæðum, ábyrgð og fagmennsku.
Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun, uppsetningu og viðhaldi leik- og íþróttasvæða ásamt verklegum framkvæmdum og skrúðgarðyrkju, þar sem öryggi, ending og vandað verklag eru ávallt í forgrunni. Jóhann Helgi & Co er umboðsaðili fjölda sérvalinna framleiðenda sem allir uppfylla ströngustu kröfur um öryggisstaðla, gæði og endingu.
Eigandi fyrirtækisins, Jóhann Helgi Hlöðversson, er skrúðgarðyrkjumeistari og leiðir hann einstakt lið fagmanna með mikla reynslu af uppsetningum, skrúðgarðyrkju og gerð leik- og íþróttasvæða, auk annarra tengdra verkefna.
Með traustu utanumhaldi, skýrum verkferlum og persónulegri þjónustu tryggir Jóhann Helgi & Co áreiðanlegar lausnir sem standast kröfur bæði viðskiptavina og tíma.
Jóhann Helgi & Co ehf
Jóhann Helgi & Co ehf var stofnað árið 1990 sem verktakafyrirtæki og hefur síðastliðin 25 á
04/12/2025
Jólagjöf ársins 2025🎄🎅🏻
Jólagjöfin í ár.Bergoflooring - Fullko Jólagjöfin í ár. Bergoflooring - Fullkomin lausn fyrir bílskúra, verkstæði og geymslur. Í burtu með köld og blaut gólf. Smart og fallegt útlit. Margir litir í boði. Sænsk gæði. CE vottað 10 ára ábyrgð. Jóhann Helgi & Co [email protected] S. 565-1048.
05/11/2025
Framúrskarandi 🤩
Þakklát fyrir okkar frábæra starfsfólk og viðskiptavini.
Án ykkar væri þetta ekki hægt.
TAKK❤️
30/09/2025
Takk viðskiptavinir og starfsfólk fyrir síðastliðin ár 🥹
Við erum þakklát 🤍
15/06/2025
Múmínkastali í Kjarnaskógi – ævintýrið lifnar við
Við hjá Jóhanni Helga & Co erum stolt af því að hafa tekið þátt í uppsetningu á þessum glæsilega Múmínkastala frá Lappset í Kjarnaskógi, þar sem Skógræktarfélag Eyjafjarðar er að skapa sannkallaða ævintýraveröld fyrir börn og fjölskyldur.
Múmínkastalinn er ekki aðeins leiktæki heldur heimur úr ævintýrum Tove Jansson, þar sem börnin geta leikið sér í kringum hið þekkta bláa Múmínhús og látið hugmyndaflugið ráða för. Við hjá Jóhanni Helga & Co kappkostum að bjóða vönduð leiktæki og leikaðstöðu sem sameina öryggi, gæði og sköpunargleði.
Við þökkum kærlega fyrir frábært samstarf við Skógræktarfélag Eyjafjarðar og alla þá sem komu að þessari framkvæmd með okkur. Þetta verkefni er enn ein sönnun þess að þegar góðir kraftar sameinast verða til verkefni sem gleðja og gefa samfélaginu mikinn virðisauka um ókomna tíð.
Við óskum öllum gestum Kjarnaskógar og Múmínsamfélaginu á Íslandi innilega til hamingju með nýja kastalann.
28/01/2025
Minnum á að við tökum að okkur snjómokstur ❄️❄️
04/01/2025
Lappset rólan skartar sínu fegursta i kvöld ✨
02/01/2025
Við hjá Jóhanni Helga & Co viljum þakka samstarfið og viðskiptin á árinu sem er að líða.
Við tökum spennt á móti nýju ári með mörgum spennandi nýjungum🙂
Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári 🎄
Jólakveðjur 🎄
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Vatnsholt 2
Selfoss
801
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 18:00 |
| Tuesday | 08:00 - 18:00 |
| Wednesday | 08:00 - 18:00 |
| Thursday | 08:00 - 18:00 |
| Friday | 08:00 - 18:00 |
| Saturday | 08:00 - 18:00 |
