Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Árborg

Share

Í febrúar 1998 sameinuðust Eyrarbakkahreppur, Stokkseyrarhreppur, Sandvíkurhreppur og Selfosskaupstaður í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Árborg.

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 16/06/2026

Vináttu í nærumhverfi á Strandheimum fagnað fjórða árið í röð

Leikskólinn Strandheimar hefur skapað þá hefð að fagna vináttuverkefni elsta árgangs barna á Eyrarbakka og Stokkseyri með því að eyða heilum degi saman í útikennslu og leik í Hallskoti í lok skólaárs.

Þetta er ævintýralegur dagur fyrir börn og starfsfólk þar sem sköpunarkraftur, gleði og frelsi ráða för. Börnin fara í skemmtilega leiki úti í náttúrunni, byggja kofa, veiða, hvíla sig í hengirúmum, tálga ofl. Þau grilla saman hádegisverðinn og eiga yndislega samveru.

Verkefnið Vinátta í nærumhverfinu felst í því að elstu börn leikskólans hittast einu sinni í mánuði, til skiptis á Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri og verja þar deginum saman við leik og störf. Til að fagna velgengni verkefnisins, vináttu og tengsla barnanna er skemmtileg hefð að eyða deginum saman í ævintýraskóginum Hallskoti enda staðurinn tilvalinn til útikennslu.

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 15/06/2026

Erum við ekki öll farin að pússa spariskóna og blása í lúðrana?

Hæ hó og jibbí jeij, það verður fjölbreytt hátíðardagskrá á Selfossi og Eyrarbakka fyrir alla aldurshópa. Sjá nánari dagskrá hér og á vefsíðu sveitarfélagsins 🥳🇮🇸😍🎈📯

14/06/2026

Tilkynning | Vinna við Eyraveg mánudaginn 15. júní

Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að leggja ekki við Eyraveg 8 - 24 þann 15. júní vegna framkvæmda við bílastæði.

Þökkum skilninginn,
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar

13/06/2026

Opnunarhátíð Oceanus, dagur 1 af 4 í dag. Það verður opið á morgun sunnudaginn 14. júní, lau. 20. júní og sun 21. júní kl. 13-18. Ekki missa af þessari stórkostlegu hátíð á Eyrarbakka.

13/06/2026

Opnunarhátíð Hafsjór - Oceanus hefst í dag við Óðinshús á Eyrargötu - Eyrarbakka. 🎨🌞🥳

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 12/06/2026

17. júní hátíð á Eyrarbakka 2026

Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur í íþrótta- og samkomuhúsinu Stað, Eyrarbakka.
Sjá nánari dagskrá á viðburðadagatali arborg.is

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 11/06/2026

Malbikunarframkvæmdir í gangi á Suðurhólum í dag. Malbikað verður um 4800 fm2 svæði. ☀🚛💚

Ljósmyndari: Magnús Ingi Eggertsson

Photos from Sveitarfélagið Árborg's post 10/06/2026

Oceanus „Stórsjór“ fer fram í fimmta sinn á Eyrarbakka

35 alþjóðlegir listamenn taka þátt í listamannadvöl og sýningarhátíð.

Dagana 15. maí–15. júní 2026 fer fimmta útgáfa Oceanus „Stórsjór“ fram á Eyrarbakka. Um 35 listamenn frá ólíkum heimshornum koma saman í sjávarþorpinu til að taka þátt í mánaðarlangri listamannadvöl sem lýkur með sýningum, gjörningum, tónlistarviðburðum, opnum vinnustofum og fjölbreyttri dagskrá fyrir almenning.

Á aðeins fimm árum hefur Oceanus fest sig í sessi sem einstakur vettvangur fyrir samtímalist á Íslandi. Hátíðin er listamannarekið frumkvæði sem byggir á samveru, samstarfi og tengingu við staðinn. Á hverju ári umbreytist Eyrarbakki í lifandi samfélag listamanna þar sem ný verk, samtöl og vináttubönd verða til í nánu sambandi við sögu þorpsins, náttúru þess og íbúa.

Frétt í fullri lengd í fyrstu athugasemd.

Want your business to be the top-listed Government Service in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Austurvegi 2
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00