Austurbrú

Call Directions Website

Austurbrú Austurbrú stuðlar að jákvæðri þróun menntunar, menningar og atvinnuþróunar á Austurlandi.

Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu. Austurbrú hyggst vinna að markmiðum sínum með því að skapa þverfaglegan samstarfsvettvang og vinna að:
• Nýsköpun, þróun og eflingu atvinnulífs og samfélags.
• Öflugri símenntun, starfsþróun og starfsfræðslu.
• Skilvirkri upplýsingastarfsemi og heildstæðri markaðssetningu.
• Fjölbreyttri uppbyggingu háskólanáms og rannsókna.
• Fjölþættri starfsemi á sviði menningar, lista og skapandi greina.

Dagar myrkurs á Austurlandi!Fjölbreyttir viðburðir verða í boði víðs vegar um fjórðunginn næstu daga, allt frá listasýni...
29/10/2026

Dagar myrkurs á Austurlandi!

Fjölbreyttir viðburðir verða í boði víðs vegar um fjórðunginn næstu daga, allt frá listasýningum og ljósalistaverkum til hrekkjavökuskemmtana, myrkrabaða og fleiri spennandi uppákoma.

👇 Skoðið dagskrána hér!

Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð Austurlands sem haldin er ár hvert síðustu vikuna í október. Þar fögnum við skammdeginu, samverunni og öllu því sem lýsir upp myrkrið.

SSA mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrúnni og telur þær aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.Í ályk...
28/10/2026

SSA mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrúnni og telur þær aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Í ályktun stjórnar SSA er þess krafist að stjórnvöld falli frá breytingunum og gagnrýnt að þær hafi verið undirbúnar án raunverulegs samráðs við sveitarfélög og landshlutasamtök.

Lesið nánar um ályktunina á vef Austurbrúar. Tengill í athugasemd.

Opið er fyrir skráningar á Matarmótið 2026 sem fram fer laugardaginn 14. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Matarmót...
28/10/2026

Opið er fyrir skráningar á Matarmótið 2026 sem fram fer laugardaginn 14. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Matarmótið verður nú haldið í sjötta sinn og eru framleiðendur á Austurlandi hvattir til að skrá þátttöku fyrir 8. nóvember.

Opnað hefur verið fyrir skráningar á Matarmótið 2026 sem fram fer laugardaginn 14. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Matarmótið verður nú haldið í sjötta sinn og eru framleiðendur á Austurlandi hvattir til að skrá þátttöku fyrir sunnudaginn 8. nóvember.

Alls bárust 109 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands vegna verkefnaársins 2027. Umsóknum fjölgar frá fyrra ári og end...
27/10/2026

Alls bárust 109 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands vegna verkefnaársins 2027. Umsóknum fjölgar frá fyrra ári og endurspeglar fjöldinn mikinn áhuga á atvinnuþróun, nýsköpun og menningarstarfi á Austurlandi.

Guðröður Hákonarson, betur þekktur sem Gurri, hlaut Klettinn 2026, hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi.Gu...
26/10/2026

Guðröður Hákonarson, betur þekktur sem Gurri, hlaut Klettinn 2026, hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi.

Gurri hefur ásamt fjölskyldu sinni um árabil staðið fyrir öflugri uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað, meðal annars á sviði gistingar, veitinga og afþreyingar.

Við óskum Gurra og fjölskyldu hans innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu!

Nánar um Gurra og uppbygginguna í Neskaupstað í athugasemd.

Til hamingju, Árni!Árni Magnús Magnússon, stofnandi Fjord Bikes á Borgarfirði eystri, hlaut Frumkvöðulinn 2026, hvatning...
26/10/2026

Til hamingju, Árni!

Árni Magnús Magnússon, stofnandi Fjord Bikes á Borgarfirði eystri, hlaut Frumkvöðulinn 2026, hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi.

Austurbrú óskar Árna innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar honum fyrir mikilvægt framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi.

Frétt í athugasemd.

Ferðaþjónustufólk af Austurlandi kom saman á Seyðisfirði á árlegum haustfundi greinarinnar. Þar var rætt um markaðsmál, ...
26/10/2026

Ferðaþjónustufólk af Austurlandi kom saman á Seyðisfirði á árlegum haustfundi greinarinnar. Þar var rætt um markaðsmál, ný tækifæri og framtíð ferðaþjónustunnar, auk þess sem hvatningarverðlaun ársins voru afhent.

Og auðvitað gafst tími til að njóta Seyðisfjarðar í allri sinni dýrð.

Svipmyndir og nánari umfjöllun á heimasíðu Austurbrúar. Tengill í athugasemd. 👇

Þrjár kirkjur verða að lifandi ljósalistaverkum á Dögum myrkurs! ✨👺Dagana 24.–31. október fyllist Fjarðabyggð af tónlist...
23/10/2026

Þrjár kirkjur verða að lifandi ljósalistaverkum á Dögum myrkurs! ✨

👺Dagana 24.–31. október fyllist Fjarðabyggð af tónlist, þjóðsögum, myndlist og fleiri tilefnum til að hittast í haustmyrkrinu. Aðgangur að mörgum viðburðum er ókeypis.

Finndu eitthvað við þitt hæfi
🔗hlekkur á frétt í fyrstu athugasemd.

„Styrkirnir hafa gert okkur kleift að ráðast í metnaðarfull verkefni og bjóða upp á sinfóníska tónlist á Austurlandi. Án...
15/10/2026

„Styrkirnir hafa gert okkur kleift að ráðast í metnaðarfull verkefni og bjóða upp á sinfóníska tónlist á Austurlandi. Án þeirra væri starfsemi hljómsveitarinnar vart möguleg.“

Þetta segir Sóley Þrastardóttir hjá Sinfóníuhljómsveit Austurlands, sem hefur byggt upp öflugt tónlistarstarf með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Austurlands.

Við tókum Sóleyju tali um tilurð hljómsveitarinnar, áskoranirnar sem fylgja því að halda úti sinfóníuhljómsveit á Austurlandi og metnaðarfull verkefni fram undan.

Ert þú með hugmynd sem gæti auðgað menningar- eða atvinnulíf á Austurlandi?

Uppbyggingarsjóður styður við menningu, atvinnuþróun og nýsköpun og nú er tækifærið til að sækja um styrk fyrir þitt verkefni!

Lestu viðtalið: https://austurbru.is/fra-sjo-hljodfaeraleikurum-til-sinfoniuhljomsveitar/

Kynntu þér sjóðinn og sæktu um: https://austurbru.is/throun/uppbyggingarsjodur-austurlands/

Umsóknarfrestur rennur út 21. október kl. 14.

Matarmótið 2026 – vertu með!Opnað hefur verið fyrir skráningar á Matarmótið sem haldið verður í sjötta sinn í Sláturhúsi...
15/10/2026

Matarmótið 2026 – vertu með!

Opnað hefur verið fyrir skráningar á Matarmótið sem haldið verður í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 14. nóvember.

Við hvetjum austfirska framleiðendur til að taka þátt, kynna vörur sínar, efla tengsl og skapa ný viðskiptatækifæri.

Skráningarfrestur er til 8. nóvember. Fjöldi sýnenda er takmarkaður!

👉 Nánari upplýsingar og skráning: https://austurbru.is/opnad-fyrir-skraningar-a-matarmotid-2026/

Address

Tjarnarbraut 39e
Egilsstaðir
700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Austurbrú posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share